Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2018, Qupperneq 40
SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2018
GM 9900 Verð frá 450.000,-
GM 3200 Verð frá 595.000,-
GM 2100 Verð frá 556.000,-
GM 7700 Verð frá 639.000,-
GM 3300 Verð frá 685.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CONDEHOUSE TEN
Borðstofuborð
„Konur voru mjög virkir þátttak-
endur í fyrstu borgaralegu uppreisn
Palestínumanna, sem var frið-
samleg, en sú saga er svolítið
gleymd. Það eru í rauninni til mjög
fáar heimildir um þessar konur,“
segir Magnea Marinósdóttir, sem
skipuleggur sýningu myndarinnar
Naila og uppreisnin sem sýnd verð-
ur á RIFF á sunnudaginn.
Heimildarmyndin Naila og upp-
reisnin fjallar um þátttöku kvenna í
fyrstu borgaralegu uppreisn Palest-
ínumanna. Í henni fylgja áhorf-
endur palestínska andspyrnuleið-
toganum Nailu Ayesh, sem gekk til
liðs við neðanjarðarhreyfingu
kvenna sem voru í fararbroddi
borgaralegrar andspyrnuhreyf-
ingar, þegar Palestínumenn á
Vesturbakkanum gerðu uppreisn
gegn Ísraelum árið 1987.
Að sýningunni lokinni mun Feda
Abelhady-Nasser, sendiherra og
varafastafulltrúi Palestínu hjá Sam-
einuðu þjóðunum, ræða um stöðu
mála og framtíðarhorfur Palestínu.
„Abelhady-Nasser er ein fárra
kvenna sem eru í forsvari fyrir mál-
stað Palestínu. Hún hefur mikið
fram á að færa, þannig að mér
fannst mjög mikilvægt að fá konu í
þessari stöðu til að lyfta viðburð-
inum,“ segir Magnea.
Nú eru 25 ár liðin síðan svokallað
Óslóarsamkomulag var undirritað,
en með því átti að leggja grunn að
endanlegu friðarsamkomulagi milli
Palestínu og Ísraels. Í ljósi mikilla
átaka á svæðinu undanfarin ár, seg-
ir Magnea það brýnt að vekja at-
hygli á ástandinu á Gazaströndinni
með sýningu myndarinnar.
„Það er oft tilhneiging til að
gleyma sögu kvenna en með mynd-
inni er verið að skrásetja hana. Við
vinnslu myndarinnar upplifðu
margar konur það að börnin þeirra
t.d. vissu ekki að mamma eða amma
þeirra hefði á yngri árum verið
þátttakandi í uppreisninni,“ segir
Magnea. Myndin verður sýnd á
sunnudag í Bíó Paradís en nálgast
má frekari upplýsingar um dagskrá
kvikmyndahátíðarinnar á riff.is.
Myndin á að vekja athygli á þátttöku palestínskra kvenna í uppreisninni.
Ljósmynd/Magnea Marinósdóttir
Konur í uppreisninni í Palestínu
Myndin Naila og upp-
reisnin fjallar um sögu
kvenna sem tóku þátt í
fyrstu borgaralegu
uppreisn Palestínu-
manna.
Erlendar símfregnir voru fastur
liður í Morgunblaðinu um langa
hríð. Fréttir bárust vitanlega
ekki á sama hraða og nú á tím-
um ógnarhraða í samskiptum.
Þann 31. október 1929 var sagt
frá verðhruni í Kauphöllinni í
New York sem varð tveimur
dögum fyrr, þann 29. október, og
markaði upphaf þess tímabils
sem síðar hefur verið nefnt
kreppan mikla.
Verðhrunið í kauphöllinn í
New York, var fyrirsögn sím-
fregnarinnar.
„Frá New York er símað:
Gengisfall verðbrjefanna á kaup-
höllinni hjer í fyrradag, er mesta
gengisfall í sögu kauphallarinnar.
Gangverð verðbrjefa lækkaði í
fyrradag um 10 milj. dollara. Alls
nemur gengisfallið síðan verð-
hrunið byrjaði í síðastliðinni viku
kringum 30 milj. dollara.
Aðalbankastjórar stórbank-
anna hjeldu ráðstefnu á skrif-
stofu Morgans og ákváðu að
reyna af öllum mætti að hindra
frekara hrun, en samt varð aftur
í gær feiknarlegt hrun. 16 mil.
hlutabrjefa voru seld í gær.
Gangverð fjell stöðugt.“
GAMLA FRÉTTIN
„Frá New
York er
símað“
29. október 1929 er sögulegur dagur, hrundagurinn í kauphöllinni í New
York. Hingað bárust fregnirnar af hruni vestra tveimur dögum síðar.
Wikimedia Commons
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Kanye West
tónlistarmaður
Justin Bieber
tónlistarmaður
Egill Ólafsson
tónlistarmaður