Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2018, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.10. 2018
LESBÓK
Þetta er eins og abstrakt ljóða-bók og óður til íslensku jökl-anna,“ segir ljósmyndarinn
Ragnar Axelsson, betur þekktur sem
RAX, um ljósmyndabókina Jökull
sem kemur út hjá bókaútgáfunni
Qerndu laugardaginn 13. október.
Sama dag kl. 14 verður samnefnd
sýning opnuð í Ásmundarsal þar sem
sjá má úrval mynda úr bókinni.
„Bókin byrjar á myndum af Snæ-
fellsjökli,“ segir RAX og bendir á að
eina mannfólkið sem sjá megi í allri
bókinni birtist á upphafssíðum bók-
arinnar sem gefi tilfinningu fyrir
smæð manneskjunnar gagnvart nátt-
úrunni. „Lesendur verða síðan að láta
sig dreyma restina og ímynda sér
hvað viðfangsefnin eru stór í reynd.
Góður vinur minn í Noregi hafði á orði
að myndir bókarinnar fönguðu andlit
jarðar. Mér þótti mjög vænt um þessa
lýsingu því þá varð mér ljóst að mynd-
irnar væru að virka,“ segir RAX og
flettir bókinni sem geymir ferðalag og
umbreytingu jökla úr ís í vatn sem
rennur til sjávar.
„Þessi bók verður ekki allra. Það er
auðveldlega hægt að fletta bókinni
hratt og sjá engan mun á myndefninu
milli blaðsíðna þar sem sjá má ís og
snjó í alls konar birtu,“ segir RAX og
bendir á að þeir sem lesi hana hægar
geti hins vegar leikið sér að því að
finna allar þær fígúrur sem mynd-
irnar hafa að geyma. „Þeir sem lesa
bókina hægt geta lesið ljóðið í mynd-
inni, horft á öll smáatriðin og fundið
andlitin eða fígúrurnar í myndunum.
Hérna sérðu til dæmis andlit karls
sem er líkt og með snjófarg á höfðinu
sem gæti verið allar áhyggjur heims-
ins. Á þessari mynd hér birtast tveir
líkamar sem halda hvor utan um ann-
an,“ segir RAX og rifjar upp að
starfsmenn prentsmiðjunnar á Ítalíu
þar sem bókin er prentuð hafi í fyrstu
ekki séð neinar fígúrur í myndunum,
en fljótlega verið farnir að leita að
mótívum sér til skemmtunar.
RAX hrósar ítölsku prentsmiðj-
unni í hástert. „Vinnubrögðin þar eru
öll í hæsta gæðaflokki og því frábært
að vinna með starfsmönnum prent-
smiðjunnar. Þeir höfðu svo mikinn
áhuga á því sem þeir voru að gera,
sem skiptir miklu máli – enda sam-
eiginlegt markmið okkar allra að
gera allt sem við gerum eins vel og
hægt er.“
Hjartað tekur kipp
Innganginn að bókinni ritar mynd-
listarmaðurinn Ólafur Elíasson en
lokaorðin á Tómas Guðbjartsson
læknir. „Tommi kom með mér í fimm
ferðir á stystu dögum ársins í fyrra
þar sem ég náði mörgum flottum
myndum. Ég hélt ég hefði nægan
tíma á árinu til að mynda, en tíð-
arfarið síðasta sumar bauð ekki upp á
það. Loks þegar kom góður dagur til
að fljúga dreif ég mig af stað og náði
þá myndinni sem endaði á forsíð-
unni,“ segir RAX og rifjar upp að
elstu myndir bókarinnar séu um tíu
ára gamlar, en flestar séu hins vegar
teknar á síðustu tveimur árum.
„Á þeim tíma er ég búinn að fljúga
villt og galið til að safna efni,“ segir
RAX sem fer oftast við annan mann í
ferðir sínar, enda þarf einhver að
stýra flugvélinni meðan RAX
myndar. „Sem betur fer þekki ég
marga sem vilja koma með mér. Ég
vakna klukkan fjögur á morgnana til
að vera kominn í loftið klukkan fimm.
Hjartað tekur kipp í hvert sinn sem
ég fæ að sjá náttúruna vakna við
sólarupprás og lifna við fyrir augum
mér. Það er ekki hægt annað en að
þykja vænt um landið sitt þegar mað-
ur fær að sjá það á þessum tíma-
punkti sólarhrings,“ segir RAX og
tekur fram að engin myndanna í bók-
inni sé tekin með dróna. „Ég myndi
aldrei mynda með dróna því þá finnst
mér allar myndirnar verða eins. Ég
tek allar mínar myndir á flugi og þá
get ég rammað inn myndefnið
sjálfur,“ segir RAX og viðurkennir að
hann leggi sig stundum í hættu til að
ná besta myndefninu.
Við eigum bara eitt heimili
„Jökull er fyrsta bókin sem kemur út
hjá forlaginu Qerndu sem við félag-
arnir Heiðar Guðjónsson og Einar
Geir Ingvarsson stofnuðum nýverið
til að gera bækur um norðurslóðir.
Nafnið hljómar eins og „can do“ á
ensku sem þýðir „ég get“. Samtímis
er þetta nafnið á grænlenskum hundi
sem gegnir mikilvægu hlutverki í
næstu bók sem við ætlum að gefa út á
næsta ári,“ segir RAX og bendir á að
á grænlensku þýði Qerndu svartur,
en merki forlagsins er höfuð á svört-
um hundi. „Í næstu bók teflum við
saman myndum og sögum af græn-
lenskum hundum sem ég hef verið að
safna síðustu árin í samtölum mínum
við heimamenn,“ segir RAX og tekur
fram að umfjöllunarefnið norður-
skaut bjóði upp á margvíslegar
útfærslumöguleika. „Við finnum fyrir
miklum áhuga á því sem við erum að
gera hjá stórum forlögum erlendis,“
segir RAX og tekur fram að mikil-
vægt sé að skrásetja þær breytingar
sem nú eru að verða á náttúrunni.
„Jökull er hugsuð sem fyrsta bókin
í seríu hjá Qerndu þar sem sjónum er
beint að norðurskautinu. Við teljum
mjög mikilvægt að þær breytingar
sem nú eru að verða á norður-
skautinu verði skrásettar. Við byrjum
á Íslandi, en munum í framhaldinu
einnig skrásetja náttúru og íbúa ann-
arra landa norðurskautsins,“ segir
RAX og tekur fram að metnaður for-
lagsins sé mikill.
„Ég er að fara í nýjar ferðir til allra
heimskautalandanna til að mynda,“
segir RAX, sem síðustu mörg árin
hefur myndað linnulítið á norður-
slóðum og fangað í myndum sínum
þær öru breytingar sem orðið hafa.
„Þessi bók, og þær sem á eftir koma,
eru ekki áróðursbækur með neinum
hætti. Við þurfum samt að ná eyrum
þeirra sem völdin hafa og raunveru-
lega geta dregið úr mengun og sóun.
Við eigum bara eitt heimili og það er
jörðin.“
Eins og vatnasinfónía
Jökull kemur samtímis út á íslensku
og ensku. „Auk þess gefum við út 50
númeruð eintök af bókinni í sér-
stökum kassa sem fylgir ljósmynd
sem ekki er að finna í bókinni,“ segir
RAX og bendir á að Einar Geir hafi
fengið þá skemmtilegu hugmynd að
hafa sex ólíkar baksíður.
„Hann er einhver mesti snillingur
sem ég hef unnið með,“ segir RAX
um Einar Geir, en þeir kynntust fyrst
þegar sá síðarnefndi hannaði bókina
Andlit norðursins þegar hún kom út í
nýrri útgáfu fyrir tveimur árum.
„Þeir Einar Geir og Heiðar eiga mjög
stóran þátt í bókinni enda afburða-
menn hvor á sínu sviði sem komu með
góðar athugasemdir í sköpunar-
ferlinu. Auk þess sem Börkur Arnar-
son í i8 gaf okkur góð ráð, en hann er
einn færasti galleristi í heiminum í
dag.“
Inntur nánar eftir sýningunni í
Ásmundarsal segir RAX að í stóra
rýminu uppi hafi verið settur saman
veggur af myndum auk þess sem sjá
má stakar myndir. „Þessi veggur er
eins og hávaðasamtal þar sem fígurur
myndanna tala saman. Þessar fígúrur
eru allar að bráðna. Samtímis eru
risar að vakna úr dvala, því þegar
jökullinn bráðnar þá vakna eldfjöllin
með tilheyrandi eldgosum. Sýningin
endar niðri í kjallara þar sem árnar
renna til sjávar,“ segir RAX og bend-
ir á að þannig sé samsömun milli sýn-
ingar og bókar þar sem síðasti hluti
bókarinnar inniheldur myndir af
rennandi vatni í alls kyns mynstrum.
„Síðustu myndir bókarinnar eru eins
og vatnasinfónía þar sem sjá má síð-
ustu andartök jöklanna á leið sinni á
haf út.“
Opna úr bókinni Jökull
Andlit jarðar
Jökull nefnist ný bók með ljósmyndum Ragnars Axelssonar, RAX, sem út kemur eftir viku. Samtímis opnar hann sýningu í
Ásmundarsal með úrvali mynda þar sem sjá má síðustu andartök jöklanna á leið sinni á haf út.
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
„Bróðir minn tók þessa mynd þegar ég var nýlentur úr síðasta fluginu mínu
fyrir Jökul,“ segir RAX, sem gefur út bók og opnar sýningu 13. október.
Ljósmynd/Sölvi Axelsson
Fugl sem RAX fangaði á Vatnajökli prýðir kápu nýju bókarinnar.