Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Side 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Side 19
sinn rétta föður. „Mamma var al- gjörlega í rusli yfir þessu. Hún hafði enga ástæðu til að efast um dóminn frá 1971 og blóðrannsóknina sem þá var gerð. Hún var miður sín og vildi gera allt til að hjálpa mér að finna föð- ur minn.“ Móðir Kristínar sagði henni þá frá því að það væri annar sem kæmi til greina, bandarískur hermaður sem var á leið í stríðið í Víetnam sem hún hafði hitt í London. Ástæða þess að hún nefndi hann aldrei fyrr var sú að hún treysti upphaflegu rannsókninni, enda hafði hún engar forsendur til annars. „En hún mundi ekki hvað hann hét fullu nafni. Þannig að ég var að leita að nál í heystakki. Ég leitaði í 18 ár, sendi þúsundir tölvupósta á menn sem gætu hafa verið í London 1969 og reyndi allt til að finna minn rétta föður.“ Það var svo í febrúar á þessu ári að leitin bar árangur. Kristín hafði skráð DNA-upplýsingar sínar inn í gagna- grunn myheritage.com og þar fékk hún svörun. Maður í Bandaríkjunum reyndist skyldur henni. Hún hringdi í manninn, þennan nýja frænda sinn, og sagði honum sögu sína. Sá hringdi einhver símtöl og fljótt kom í ljós að maður honum skyldur, raunar föður- bróðir hans, hefði rætt um ástina sína frá Íslandi sem rann honum úr greip- um í London forðum daga. Föður- bróðirinn heitir John David Lambert og reyndist sannarlega faðir Krist- ínar. Það hafa þau fengið staðfest með 99,999% vissu með DNA-prófi. Ástfanginn af stúlkunni frá Íslandi Það urðu miklir fagnaðarfundir þegar Kristín og faðir hennar hittust í fyrsta sinn í maí síðastliðnum. „I don’t need a DNA-test“ voru orð Johns Davids Lamberts þegar hann sá Kristínu fyrst. Prófið var nú samt framkvæmt en það var víst um leið ljóst að hún til- heyrði þessari fjölskyldu, svo sterkur er ættarsvipurinn. Faðir hennar og fjölskylda hans tóku henni opnum örmum, en faðir hennar hefur verið giftur tvisvar og á sjö börn. Í ljós kom að hann hafði reynt að leita móður hennar uppi eftir að hann kom heim frá Víetnam. Hann hafði orðið ást- fanginn af henni eftir tímann sem þau vörðu saman í London 1969 og vildi hitta hana aftur. Hann hafði þó enga hugmynd um að hún hefði orðið ófrísk og eignast stúlkubarn. Svo mikil áhrif hafði móðir hennar þó haft á hann að nokkur af börnunum hans og fyrrver- andi eiginkonur höfðu heyrt af ástinni hans frá Íslandi. Henni gleymdi hann aldrei þótt þeim hefði ekki lánast að hittast að nýju í þessu lífi. Móðir Kristínar lést árið 2012 og lifði því ekki þann dag að sjá Kristínu finna föður sinn. Kristín hefur farið þrisvar til Texas að heimsækja hann og hálfsystkini sín og hefur hugleitt að flytja þangað til að geta kynnst þeim öllum betur og varið tíma með föður sínum, sem hefur verið heilsu- tæpur undanfarið. „Við þurfum að bæta upp þau 48 ár sem við misstum af saman. En fyrsta hindrunin er að klára þetta mál með faðernið. Það skiptir miklu máli fyrir hann að fá það viðurkennt að ég sé dóttir hans og það er mikilvægt fyrir mig að vera rétt feðruð í þjóðskrá. Ég er algjör- lega íslensk lagalega séð og með ís- lenskt vegabréf. Ég ætti bara að þurfa að framvísa DNA-prófinu og fá þetta leiðrétt. Ég skil ekki að neinum á Íslandi geti fundist eðlilegt að neita mér um að breyta skráningunni. Það var hægt að kippa Jóni út af fæðingarvottorðinu mínu með einu pennastriki, og þá bjó ég á Englandi. Ég þurfti ekki að búa á landinu til þess. En núna, þegar ég vil fá réttan föður minn, John, skráðan á fæð- ingarvottorðið þá er það ekki hægt því ég bý ekki á Íslandi! Þetta er al- veg ruglað. Þetta skiptir engu máli fyrir neinn í heiminum nema mig og pabba minn og okkar fjölskyldur. Þess vegna skil ég ekki af hverju er ekki bara hægt að laga þetta. Það tók mig átján ár að finna hann en nú kem ég að lokuðum dyrum.“ Kristín bendir á að í barnalögum (í þeim lögum er fjallað um faðerins- mál) er áhersla lögð á rétt barna til að þekkja báða foreldra sína. Henni þykir sem brotið sé gegn þessum rétti og í raun hafi verið brotið gegn honum þegar hún var barn með því að dómstólar hér hafi rangfeðrað hana. Hún bendir einnig á að þrátt fyrir að uppúr árinu 1995 hafi komið fram nákvæmari rannsóknir við að greina faðerni með DNA-prófum þá hafi fólk sem byggði vitneskju um sitt faðerni á eldri prófum, líkt og hún, ekki verið látið vita um ónákvæmnina sem fyrri rannsóknum fylgdi. Mikil- vægt sé að málið sé leiðrétt. „Þið seg- ið annars vegar að ég eigi rétt á föður en svo þegar ég finn hann, minn rétta föður, þá viljið ekkert gera fyrir mig. Réttindi mín sem íslenskur ríkis- borgari ættu að vera í gildi hvar sem ég bý.“ Kristín er ósátt við þau svör sem hún fær frá Þjóðskrá að hún þurfi að flytja lögheimili sitt til Íslands og höfða dómsmál. Það að flytja milli landa sé enda ekkert sem sé hrist fram úr erminni. „Ég á ekki að þurfa að fara heim til Íslands til að fá þetta leiðrétt. Ég myndi missa vinnuna og þyrfti að fara frá börnunum mínum bara til að flytja lögheimilið mitt tímabundið og höfða dómsmál. Það bara hlýtur að vera einhver leið til að veita undanþágu. DNA-próf liggur fyrir og það hlýtur að vega þyngst í þessu. Það er enginn vafi á því að þetta er faðir minn en samt þarf mál- ið að fara fyrir dóm og ég að flytja milli landa til að geta farið í mál. Ég skil ekki af hverju svona lítið land þarf að vera með svona flókið kerfi. Ég myndi alveg skilja það ef ég og pabbi minn þyrftum að mæta t.d. í eitthvert íslenskt sendiráð og skrifa undir, en ég skil ekki að ég þurfi virkilega að fara alla þessa leið til að fá þetta leiðrétt.“ Einn þingmaður svaraði Kristín hefur reynt hvað hún getur til að vekja athygli á stöðu sinni, með- al annars með því að skrifa bréf til allra þingmanna. „Ég er búin að senda öllum 63 þingmönnunum tölvu- póst, en aðeins einn þeirra hefur svarað, það er Helgi Hrafn Gunnars- son. Hann gat svo sem ekki mikið gert en sýndi mér þó allavega þá virð- ingu að svara.“ Einn annar möguleiki mun þó vera í stöðunni en það er að faðir Kristínar sæki um að hún sé skráð dóttir hans fyrir dómstól í Texas. Ekki er orðið fyllilega ljóst hvort það gengur upp. En Kristín er afar ósátt við að geta ekki fengið faðernið leiðrétt hér á landi, þar sem hún er fædd og kallar heima. Hún kemur hingað reglulega og heimsækir ömmu sína og vill halda tengslum við landið. „Ég hef alltaf verið stolt af því að vera Íslend- ingur, einmitt vegna þess að Ís- land stendur framarlega í mannréttindum eins og rétti barna og rétti feðra. Þetta var fyrsta þjóðin til að kjósa konu sem forseta, landið er fyrir- mynd þegar kemur að jafnrétti og mannréttindum. Ég er alltaf að segja fólki að fara til Íslands því hér sé allt svo frábært. Fólkið er enn frábært, en kerfið er gallað. Ég veit ekki hvað við pabbi höfum langan tíma saman en ég vil reyna að nýta tímann sem best. Hann er eina foreldrið sem ég á eftir á lífi og eini afi barnanna minna. Ég eyddi öllum mínum frítíma í 18 ár í að finna hann og enginn hjálpaði mér. Börnin mín ólust upp við það að ég væri alltaf að leita. Ekkert af þessu er mér að kenna og ég ætti ekki að þurfa að taka út refsingu fyrir eitthvað sem gallað kerfi bjó til. Ef þetta er reglan, þá þarf að breyta reglunum. Mér finnst ég hafa þurft að líða nóg fyrir þetta nú þegar og vil bara fá þetta leiðrétt. Ég bið ekki um mikið.“ Úr einkasafni ’ Ég get ekki lýst þvíhversu ruglingslegtþað var að komast aðþví að Jón væri ekki faðir minn. Það sló mig al- gjörlega út af laginu. 21.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Að sögn Guðbjargar Önnu Bergsdóttur lögmanns, sem Kristín hefur leitað til hér á landi, er málið snúið. „Hún hef- ur enga leið til að sækja málið fyrir dómi hér á landi nema hún flytji til Ís- lands. Af því að hvorki hún né faðir hennar eru búsett hér á landi rekast þau alls staðar á veggi, 8. grein barnalaga kveður á um lögsögu í faðern- ismálum og er skýr um að að- ilar þurfi að vera búsettir hér á landi,“ segir Guðbjörg. Hún hefur kannað aðra leið sem hægt er að fara í faðern- ismálum, en það er að leita til sýslumanns. „Það kemur fram í 4. gr. barnalaga að hægt sé að gera faðernisviðurkenningu hjá sýslumanni. En þar gilda sömu reglur. Fram kemur í 68. gr. barnalaga að stjórnvöld geti leyst úr þeim málum er tengj- ast öðrum ríkjum ef barn er bú- sett hér á landi, eða sá sem krafa beinist að er búsettur hér á landi. En í barnalögum kemur einnig fram að dómsmálaráð- herra geti úrskurðað um um- dæmi sýslumanns, jafnvel þótt hann sé ekki búsettur í því um- dæmi.“ Þarna vísar Guðbjörg í 4. mgr. 69. gr. barnalaga þar sem segir: [Ráðuneytið] 1) ákveður úrskurðarumdæmi ef hvorki barn né sá sem krafan beinist að er búsett hér á landi eða ef annars leikur vafi á því hvar leysa skuli úr máli samkvæmt framangreindu. Guðbjörg skoðaði hvort hægt væri að fara þessa leið, að sækja um breytingu á faðerni til sýslu- manns og fá því þannig breytt í þjóðskrá. „Ég kannaði þessa leið, en samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fékk frá dómsmálaráðu- neyti þá hefur það aldrei farið þannig. Ávallt hefur verið úr- skurðað samkvæmt heim- ilisfesti. Það er alveg hægt að láta á það reyna, en miðað við þetta eru litlar líkur á að það verði úrskurður sem hjálpar Kristínu í hennar máli. Þá mun að öllum líkindum einnig taka töluverðan tíma að fá slíkan úr- skurð.“ Hún segir málið í raun óskilj- anlegt, þar sem í þessu tilviki leiki enginn vafi á faðerni. Krist- ín sé nú ófeðruð í þjóðskrá. „Það samþykkja allir að hann sé faðir hennar, það þarf bara að fá þetta skjalfest og staðfest og skráð á fæðingarvottorð. Hann vill gjarnan láta skrá sig sem föður hennar. Fram kemur í 1. gr. a í barnalögum að barn eigi rétt á að þekkja báða foreldra sína og að móður sé skylt að feðra barn sitt. Hún er núna ófeðraður Ís- lendingur og getur ekkert gert í því nema flytja til Íslands og höfða dómsmál hér. Það er meira en að segja það að flytja milli landa,“ segir Guðbjörg. Rekast alls staðar á veggi Guðbjörg Anna Bergsdóttir lögfræðingur Kristín sendi niðurstöður DNA-prófs sem sann- ar að John David Lambert er faðir hennar, stað- festingu hans og önnur nauðsynleg gögn til Þjóð- skrár Íslands og taldi, miðað við fyrri samtöl við stofnunina, að það dygði til að skrá réttan föður. Svo var þó ekki og fékk hún þetta svar: „Sæl Kristín Þjóðskrá hefur móttekið frá þér faðernisvið- urkenningu til skráningar í þjóðskrá. Í ljósi þess að móðir þín er látin þarf málið að fara fyrir dómstóla. Dómsmál er einungis hægt að höfða hér á landi ef eftirfarandi skilyrði 8. gr. barnalaga eru uppfyllt: a. aðili er búsettur hér á landi, b. dánarbú stefnda er eða hefur verið til skipta hér á landi, „Í ljósi þess að móðir þín er látin …“ c. barn er búsett hér á landi. Miðað við upplýsingar þær sem þú hefur gefið upp á framangreint ekki við í þínu tilviki. Er þér því ráðlagt að leita aðstoðar lögmanns varðandi framhaldið.“ Blaðamaður leitaði til Þjóðskrár Íslands eftir nánari skýringum og fékk þau svör að stofnun- inni sé ekki heimilt að skrá faðerni nema á grundvelli faðernisviðurkenningar, sem er yfir- lýsing móður um hver sé faðir barns hennar sem viðkomandi maður gengst við. Grunnskilyrði fyrir breytingu á faðerni er því að kona hafi lýst tiltekinn mann föður barnsins. Sé móðir látin er engin leið fær nema dómstólaleiðin, mál verði að fara fyrir dóm svo hægt sé að fá faðerni við- urkennt.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.