Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Síða 27
Á veitingastaðnum Olde Hansa er þjónustu-
fólk klætt samkvæmt fatatísku gullaldar
Hansakaupmanna á fimmtándu öld.
dýr sem renna má niður með heima-
gerðu hunangsöli. Undirritaður var
þó ekki hugaðri en svo að hann fékk
sér Himalaya-lambasteik sem reynd-
ist afar ljúffeng. Almennt má segja að
matsölustaðir séu mjög góðir í Tall-
inn. Verðlag á þessum slóðum er
svipað og víða í Vestur-Evrópu. Vilji
menn hlífa pyngjunni er betra að fara
aðeins fjær ráðhústorginu.
Langagata og Toompea
Langagata eða Pikk Jalg er ein
helsta gatan í miðbænum. Þar eru
veitingahús, verslanir, söfn og gisti-
hús ásamt hinu virðulega kaffihúsi
Maiasmokk sem hefur verið starf-
rækt á sama stað síðan 1864. Innrétt-
ingar á fyrstu hæðinni hafa að mestu
verið óbreyttar í um 100 ár. Þegar
inn er komið eru til sýnis og sölu
snotur marsipandýr í gjafaumbúðum.
Fjölbreytt úrval er af kökum og kon-
fekti með kaffinu. Uppi á annarri hæð
er tveggja manna borð með skemmti-
legu útsýni yfir Pikk-stræti sem ligg-
ur upp á kastalahæðina Toompea.
Þegar þangað er komið blasir við hin
skrautlega rússneska Alexander
Nevsky-rétttrúnaðarkirkja, en rúm-
lega þriðjungur borgarbúa er rúss-
neskumælandi. Hún var reist kring-
um árið 1900 til að leggja áherslu á
vald keisaradæmisins yfir landinu.
Í hverfinu eru ýmsar fleiri stjórn-
arbyggingar ásamt nokkrum sendi-
ráðum. Á hæðinni eru frábærir út-
sýnisstaðir, sérlega hentugir fyrir þá
sem ekki hafa heilsu til að klifra upp í
kirkjuturna. Frá útsýnispallinum við
Patkuli vaateplats er frábært útsýni
til norðurs yfir borgina, þar sem
virkisturnarnir njóta sín vel. Bak við
pallinn er stórglæsileg verslun með
óvenju fjölbreyttu úrvali handverks-
muna og minjagripa. Útsýnispallur-
inn Kohtuotsa út frá Kohtu-götu veit-
ir frábært útsýni til austurs yfir
borgina. Mjósleginn ráðhústurninn,
kirkjuturnarnir og virkisturnarnir
innan um rauð tígulsteinsþökin. Í
fjarska eru svo háhýsi nýja mið-
bæjarins og skemmtiferðaskipin í
höfninni. Trúbadúr nokkur af eldri
kynslóðinni gerði mikla lukku meðal
kínverskra ferðamanna, þegar hann
tók nokkra slagara á máli þeirra.
Ferðast um borgina
Gamli bærinn innan borgarmúra er
það lítill að allt er í stuttu göngufæri.
Til að kynnast Tallinn er ágætt að
koma við á upplýsingamiðstöðinni við
Niguliste 2, örskammt frá ráðhús-
torginu. Þar er hægt að fá ýmiss kon-
ar kort af borginni. Eitt það aðgengi-
legasta heitir „Free map made by
locals“. Þar eru einnig ágætar upp-
lýsingar um ýmsa áhugaverða staði.
Ef ætlunin er að fara vítt og breitt
um borgina með strætisvögnum og
sporvögnum er „Tallinn – Public
Transport for visitors“ alveg ómiss-
andi. Það sýnir allar strætó- og spor-
vagnaleiðir með númerum. Eitt far í
strætó kostar 2 evrur hjá bílstjóra.
Hægt er að fá Smartcard á blað-
sölustöðum og víðar fyrir 2 evrur.
Með því er hægt að kaupa innlegg
fyrir aðgang í strætisvagna og spor-
vagna. 5 dagar kosta 6 evrur, en
mánuðurinn 23 evrur. Kortalesari er
inni í vögnunum. Þeir sem hyggjast
fara víða til að skoða söfnin geta
fengið sér „Tallinn Card“ sem fæst í
upplýsingamiðstöðinni. Það veitir að-
gang í yfir 40 söfn og alla strætis-
vagna og sporvagna. Sólarhringskort
kostar 24 evrur, en þrír sólarhringar
45 evrur.
Undirritaður skellti sér í nokkur
strætóferðalög til að skoða byggða-
safnið og Kadriorg-skrúðgarðana, en
þar er sumarhöll Rússakeisara, sem
Pétur mikli lét reisa skömmu eftir að
hann lagði landið undir sig árið 1810.
Höllin er nú deild i listasafni eist-
neska ríkisins, helguð verkum eldri
meistara. Skammt þar frá er lista-
safnið KUMU sem vígt var árið 2006
og sýnir listaverk frá nítjándu öld
fram til dagsins í dag. Í Kadriorg-
garðinum má svo finna lítið barnvænt
tívolí.
Danska þjóðsagan
Á þrettándu öld stóð yfir mikið átak
að kristna þjóðirnar við austanvert
Eystrasalt. Á þeim tíma þótti sverðið
henta best til kristniboðs. Sagan seg-
ir að sumarið 1219 hafi Danir háð
mikla orrustu við heimamenn um
hæð eina á norðurströnd Eistlands.
Þegar hallaði á Danina opnuðust
himnarnir og birtist fáni mikill, rauð-
ur með hvítum krossi og sveif til jarð-
ar. Danski herinn með Valdimar 2.
konung í broddi fylkingar efldist
mjög við þessa sýn og náði hæðinni á
sitt vald. Fáninn var kallaður Danne-
brog og varð þaðan í frá þjóðfáni
Danmerkur. Danir komu sér fyrir á
hæðinni, reistu kastala og virkismúra
utan um þorpið. Heimamenn nefndu
hæðina Taani Linn, sem þýðir Dana-
virki. Nafnið var síðan stytt í Tallinn.
Nokkrum árum síðar hröktu þýsku
krossriddararnir Dani frá borginni
og í kjölfarið komu Hansakaupmenn
sér þægilega fyrir og nefndu þeir
borgina Reval, en Eistland ásamt
Lettlandi var kallað Livland á þeim
tíma sem þýska riddarareglan réð
ríkjum. Borgin varð síðan öflug og
mikilvæg verslunarborg. Þegar Eist-
land fékk sjálfstæði árið 1918 var
nafninu borgarinnar aftur breytt í
Tallinn.
Hægt að bóka sjóferðina
á netinu
Ferjurnar Victoria og Baltic Queen
bjóða upp á 2ja og 4 manna klefa.
Baltic Queen er auk þess með fjöl-
skylduklefa fyrir allt að átta manns,
þar af minnst 2 börn. Ef óskað er eft-
ir sjávarsýn gegnum kýrauga þarf að
panta klefa í A-flokki, eða A-class
cabin. 2ja manna klefarnir eru um 9
fermetrar og kosta frá 110 evrum
aðra leiðina, dálítið misjafnt eftir
dögum. Hægt er að bóka ferðina
ásamt kvöldverðarhlaðborði á þessari
síðu: https://www.tallinksilja.com/en/
book-a-cruise.
Á Olde Hansa er hægt að
fá sér bjarndýrasteik og
ýmsa aðra framandi rétti.
Rússneska kirkjan Alexander Nevsky á Toompea-hæðinni. Heimamenn eru
mishressir með að hafa hana þarna andspænis þinghúsinu.
Utan við Coffee Bar 10133 við Suurtüki 2 í útjaðri gamla bæjarins.
’Áhugi flestraferðamanna bein-ist að gamla borgar-hluta Tallinn, sem
hefur varðveist vel
frá seinni hluta mið-
alda. Heillandi er að
ganga þar um götur,
sem flestar eru stein-
lagðar og henta ekki
fyrir háa hæla.
Á fyrstu hæð Maiasmokk-kaffihússins hafa innréttingar verið að mestu
óbreyttar í um hundrað ár.
Saumað út undir kirkjuvegg í
byggðasafninu.
Hópur fjöllistafólks styttir farþegum
stundir í sjóferðinni til Tallinn.
21.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27