Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Qupperneq 35
21.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 10.-16. OKTÓBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 NærbuxnaverksmiðjanArndís Þórarinsdóttir
2 Mín sökClare Mackintosh
3 Sænsk gúmmístígvélHenning Mankell
4 ByltingHörður Torfason
5 Iceland in a BagÝmsir höfundar
6 HeiðurSólveig Jónsdóttir
7 SvikLilja Sigurðardóttir
8 MiðnæturgengiðDavid Walliams
9 LjóðpundariÞórarinn Eldjárn
10 Sagas Of The Icelanders
1 NærbuxnaverksmiðjanArndís Þórarinsdóttir
2 MiðnæturgengiðDavid Walliams
3 LjóðpundariÞórarinn Eldjárn
4 Langelstur í leynifélaginuBergrún Íris Sævarsdóttir
5 DraumurinnHjalti Halldórsson
6 Afi sterki og skrímslinJenný Kolsöe
7 SilfurlykillinnSigrún Eldjárn
8
Ótrúleg ævintýri Brjálínu
Hansen
Finn-Ole Heinrich/
Rán Flygenring
9 Bangsi litli í skóginumBenjamin Chaud
10 Kepler62 – 3: FerðalagiðTimo Parvela
Allar bækur
Barnabækur
Ég var að lesa Villinorn: Eldraun
eftir Lenu Kaaberbøl. Rakst á hana
í bókabúð og lét það eftir mér að
kaupa hana. Mér
fannst hún ansi
skemmtileg. Hún er
ekki frumleg en
þetta er svo vel gert
og forvitnilegt að ég
á eftir að kaupa bók
númer tvö.
Svo las ég líka Óvelkomna
manninn eftir Jónínu Leósdóttur.
Mér finnst stundum
gott að slappa af
með létta krimma,
gott að grípa þá og
týna sér. Þessi kar-
akter sem hún er að
skrifa um, Edda í
Vesturbænum, er
stórfengleg, ég skemmti mér svo
vel yfir henni.
Ég les eiginlega enga krimma en
var óvart að lesa tvo,
Jónínu og svo líka
Lethal White eftir
Robert Galbraith
eða J.K. Rowling. Ég
er fallin fyrir þessum
persónum, Robin og
Cormoran. Sumum
finnst bókin of löng,
en Rowling er svo skemmtilegur
penni að ég kvarta ekki yfir því að
þetta séu of margar blaðsíður.
ÉG VAR AÐ LESA
Arndís Þór-
arinsdóttir
Arndís Þórarinsdóttir
er rithöfundur.
Hrafnaklukkur heitir ný ljóðabók eftir Kristian
Guttesen og er ellefta frumorta bók hans.
Fyrsta bókin, Afturgöngur, kom út árið 1995,
en síðast komu út bækurnar Hendur morð-
ingjans og Englablóð árið 2016. Kristian hefur
einnig verið ötull þýðandi og var til að mynda
tilnefndur til Íslensku þýðingarverðlaunanna
árið 2007. Ljóð hans hafa líka verið þýdd á fjöl-
mörg tungumál, meðal annars albönsku,
dönsku, frönsku, spænsku og úkraínsku.
Hrafnaklukkur fjallar um mennsku, anda og sjálf og skiptist í þrjá
samnefnda kafla. Deus gefur út.
Ný glæpasaga Lilju Sigurðardóttur heitir
Svik og segir frá Úrsúlu, sem er nýlega flutt til
Íslands eftir áralöng störf á hættusvæðum
heimsins. Hún er beðin um að taka sæti í ríkis-
stjórn landsins sem utanþingsráðherra og
hyggst láta til sín taka, en fjölmiðlar og refskák
stjórnmálanna þvælast fyrir henni. Við bætist
að gamall útigangsmaður eltir hana á röndum
og virðist vilja vara hana við yfirvofandi hættu.
Þríleikur Lilju, Gildran, Netið og Búrið, kemur
um þessar mundir út víða um lönd og Gildran
var nýlega tilnefnd til breska Gullrýtingsins. JPV gefur út.
Þriðja bókin í bókaröðinni Smásögur heims-
ins, sem hefur að geyma smásögur frá ýmsum
löndum, er komin út og ber yfirskriftina Asía og
Eyjaálfa. Í bókinni eru sögur eftir Katherine
Mansfield, Dazai Osamu, Saadat Hasan Manto,
Leylâ Erbil, Peter Carey, Gregorio C. Brillantes,
Zakaria Tamer, Atsiri Tammatsjót, Duong Thu
Huong, Bisham Sahni, Beth Yahp, Ch’oe Yun,
Mo Yan, Hanan al-Shaykh, Bandi, Eka Kurniaw-
an, Amos Oz, Fariba Vafi, Mai Al-Nakib og
Stephanie Ye. Bjartur gefur út
NÝJAR BÆKUR
Ragnheiður Eyjólfsdóttir hlaut íslensku barnabóka-verðlaunin 2015 fyrir sína fyrstu bók, Skuggasögu– Arftakann, sem segir frá ævintýrum Sögu sem
berst við ill öfl í álfheimum. Rotturnar heitir ný skáldsaga
hennar, sem er einnig ætluð ungmennum, en líka full-
orðnum, en nú eru lesendur staddir í nútímanum, eða í það
minnsta nútíma sem gæti orðið: Sögupersónurnar eru
unglingar sem ráðnir eru nauðugir viljugir í sumarvinnu
úti á landi og komast smám saman að því að ekki er allt
með felldu. Við sögu koma hátæknileg siðblind líftækni-
fyrirtæki, stökkbreyttar svartadauðabakteríur og afkom-
endur Hval-Einars Herjólfssonar.
Aðspurð hvernig svo snúnar hugmyndir sem lesa má í
bókinni rata saman nefnir Ragnheiður tvær uppsprettur:
„Þetta hljómar kannski pínu skrýtið en ég bý erlendis og
hef einhvern veginn flækst inn í áhugaverðan vinahóp
samkynhneigðra karlmanna sem eru allir hámenntaðir
doktorar í furðulegum hlutum og í þeim hópi koma fram
alls konar furðuleg skemmtilegheit sem maður drekkur í
sig.
Svo hef ég líka mikinn áhuga á tækni og vísindum, hef
mikið pælt í því hvernig faraldrar fara af stað og les mikið
um það á netinu og þegar ég datt um þessa svartadauða-
stökkbreytingu, CCR5-D32, tók sagan þessa stefnu. Ég
las einnig nokkrar fræðibækur um smitsjúkdóma sem
yfirsmitsjúkdómalæknir á LSH mælti með fyrir leik-
menn,“ segir Ragnheiður og bætir við að stökkbreytingin
geri það að verkum að maður verði ónæmur fyrir svarta-
dauða en líka fyrir stórubólu, „en stórabóla er ekki mjög
spennandi sjúkdómur“, segir hún og hlær. „Svartidauði er
skemmtilegra fyrirbæri og því varð hann fyrir valinu, Auk
þess sem saga hans á Íslandi er mun áhugaverðari.
Svartidauði kemur reglulega upp í heiminum, aðallega á
vanþróuðum svæðum, en sjúkdómar eru alltaf að breyta
sér, þeir vilja lifa áfram, og þetta gæti svosem gerst allt
saman. Smitsjúkdómalæknar og aðrir sem rýna í svona
fræði segja að það sé spurning um hvenær svona stór far-
aldur gangi yfir en ekki hvort.“
– Þótt sagan sé vissulega ævintýraleg er ekki svo erfitt
að trúa því að slíkt og þvílíkt geti gerst.
„Ég lagði upp með að maður gæti hugsað með sér eftir
lesturinn: Vá, þetta gæti gerst! Það er ekki allt raunhæft í
sögunni og ég tek mér bessaleyfi til þess að sveigja ein-
hverjar staðreyndir að söguþræðinum en ég geri mitt
besta til að reyna að láta þetta allt ganga upp.“
– Bróðir Hilsifjar er tölvuþrjótur og skiptir talsverðu
máli í sögunni. Ert þú tölvufróð?
„Upp að einhverju marki, ég kann ýmislegt fyrir mér
þannig, en þeir sem eru sérfróðir munu hrista hausinn yfir
einhverju. Flest af dótinu í sögunni er þó til í alvörunni og
byggist á hugmyndum um „the internet of things“ þar
sem allt er veftengt. Ég átti samtöl við fólk sem er sérhæft
í tölvuöryggismálum sem benti mér á leiðir sem hægt væri
að nýta í skáldsögum sem þessari. Þessar leiðir beygði ég
svo aðeins og einfaldaði svo þær hentuðu sögunni betur.“
– Tvíleikurinn Skuggasaga var hreinar ævintýrabækur,
en Rotturnar eiga rætur í raunveruleikanum.
„Ég er á þeim stað akkúrat núna; eftir Skuggasögu
langaði mig til að gera eitthvað allt annað.“
Svartidauði snýr aftur
Í nýrri skáldsögu Ragnheiðar Eyjólfsdóttur koma fyrir ill líftæknifyrirtæki,
hugdjörf ungmenni, tölvuþrjótar og stökkbreyttar bakteríur.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Ragnheiður Eyjólfsdóttir lagðist í rannsóknir.
Morgunblaðið/Eggert
Selhellu 13 • 221 Hafnarfirði • Sími 554 0500 • bodtaekni.is
Allt til merkingar
og pökkunar
Úrval varahluta og
aukabúnaðar
Tækniþjónusta
Viðgerðir
Viðhald
Límmiðar
Prentarar
Plast
Vogir
Pökkunarvélar
Plöstunarvélar
Sorppressur o.fl.