Morgunblaðið - 07.11.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2018
i
20% af hreinsun á sófaáklæðum
og gluggatjöldum til 16. nóvember.
STOFNAÐ 1953
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Heitar umræður um fjármál
Áætla 3,6 milljarða króna afgang af borgarsjóði Sjálfstæðismenn telja skuldaaukningu óhóflega
Oddviti Miðflokksins segir fjármálin á þunnum ís Með vaðið fyrir neðan sig, segir Viðreisn
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Fulltrúar meiri- og minnihluta bit-
ust um fjárhagsáætlun fyrir 2019 og
fimm ára áætlun fyrir árin 2019-
2023 sem lagðar voru fram á
borgarstjórnarfundi í gær. Gerir
borgarstjórnarmeirihlutinn ráð fyr-
ir 3,6 milljarða króna afgangi borg-
arsjóðs á næsta ári. Áætlaður af-
gangur af borgarsamstæðunni er
12,8 milljarðar eftir fjármagnsliði. Í
tilkynningu til Kauphallarinnar kom
fram að fjárhagur A-hluta borgar-
sjóðs væri sterkur og að skuldahlut-
fall A-hluta væri langt fyrir neðan
viðmið sveitarstjórnarlaga.
Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi
áætlun meirihlutans, einkum áætl-
aða þróun skulda borgarinnar, fast-
eignaskatta og útsvar. Sagði hann
skuldir og skuldbindingar borgar-
innar aukast um 38 milljarða um-
fram fyrri fimm ára áætlun sem
gerð var fyrir ári. Vaxtakostnaður
hækkaði um tvo milljarða á ári mið-
að við síðustu áætlun. Lögðu sjálf-
stæðismenn fram tillögu um að hag-
rætt yrði í rekstri, svið sameinuð og
safnað yrði í varasjóð. Einnig var
lögð til lækkun fasteignaskatts og
útsvars.
Borgin sögð rekin á lántöku
Vigdís Hauksdóttir, oddviti Mið-
flokksins, segir fjármál borgarinnar
á þunnum ís og að áætlaður afgang-
ur sé óásættanlegur. Hún nefnir að
til staðar séu óvissuþættir sem
hætta geti stafað af. „Það fer til
dæmis eftir því hvernig kjaramálin
þróast því kjarasamningar eru laus-
ir nú um áramótin,“ segir hún og
nefnir einnig að í áætluninni sé gert
ráð fyrir frekari skuldasöfnun. „Það
er verið að taka ný lán. Og að vísu
að borga niður önnur lán. Það má
með réttu segja að borgin sé rekin á
lántöku,“ sagði Vigdís, en útsvars-
mál voru einnig rædd á fundinum.
„Í Reykjavík eru allar gjaldskrár í
hámarki. Það er hvergi verið að
slaka á fyrir útsvarsgreiðendur,“
segir hún.
Undirbúin fyrir sveiflur
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti
Viðreisnar, vísar fullyrðingum um
óásættanlegan afgang til föðurhús-
anna. Kynntur hafi verið til sög-
unnar öryggis- og ábyrgðarsjóður
til að bregðast við efnahagssveifl-
um. Ýmsum sviðsmyndum hafi enn
fremur verið velt upp fyrir næstu
fimm ár.
„Við erum ánægð með áætlunina,
þar eru markmið sem við teljum
góð, á borð við sjálfbæran grunn-
rekstur, sjálfbæra fjármögnun fjár-
festinga, stöðugleika í greiðsluhæfi
og fjárhagslegt gegnsæi,“ segir hún.
Þórdís Lóa segir það markmið
meirihlutans að lækka skuldir. „Við
ætlum að lækka þær um átta millj-
arða til ársins 2023 en munum líka
halda ákveðnum fjárfestingum
gangandi,“ segir hún og nefnir sem
dæmi uppbyggingu í Úlfarsárdal og
íþróttamannvirki í Breiðholti.
„Á móti kemur að við hugsum
mikið um agaða fjármálastjórn og
leggjum til hagræðingarkröfu fyrir
árið þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi
ekki fattað það. Það gerðum við
með því að verðbæta ekki annan
kostnað og síðan kemur inn þessi
fasta hagræðingarkrafa um 1% öll
árin.“
Innt eftir viðbrögðum um gagn-
rýni á skuldasöfnun borgarinnar
segir Þórdís Lóa að til lengri tíma
standi til að greiða niður skuldir.
„Það er verið að auka skuldir á
þessu ári og því næsta af því það er
verið að byggja upp og endurfjár-
magna Orkuveituna. Síðan förum
við í að greiða niður skuldir,“ segir
hún.
Ekki náðist í Dag B. Eggertsson
borgarstjóra vegna fréttar.
Vigdís
Hauksdóttir
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það er allt fullt alls staðar, það er
ekkert nýtt. Þetta ástand er búið
að vara lengi. Það vantar bæði
legurými og hjúkrunarfræðinga,
lækna og annað fólk til starfa,“
segir Helgi Sigurðsson, prófessor
krabbameinslækninga við lækna-
deild Háskóla Íslands og yfirlækn-
ir á Landspítalanum, spurður út í
stöðu mála.
Helgi segir að 10 legurými af 14
séu nýtt á krabbameinsdeild þar
sem ekki sé nægur mannskapur til
að sinna 14 sjúklingum. Á meðan
dvelji krabbameinssjúklingar og
aðrir sjúklingar á almennum
deildum.
„Almenn deild og bráðamóttak-
an er það sem bíður sjúklinga sem
koma inn með bráðavanda. Skort-
ur á hjúkrunarfræðingum og öðru
starfsfólki og úrelt húsnæði hafa
háð okkur lengi – það eru ekki
nýjar fréttir,“ segir Helgi og bend-
ir á að það hefði þurft að taka nýj-
an spítala í notkun fyrir að
minnsta kosti 10 árum og umræða
um byggingu hans hafi staðið frá
árinu 1990.
13 ár frá „Símapeningunum“
„Þegar Landspítalinn og Sjúkra-
hús Reykjavíkur voru sameinuð
fyrir 18 árum var fyrirhugðuð
bygging nýs sjúkrahúss hluti af
sameiningunni. Það er ótrúlegt að
13 árum eftir að ríkið eyrnamerkti
svokallaða „Símapeninga“ til bygg-
ingar nýs spítala sé enn verið að
ræða byggingu hans. Ísland er
eina Norðurlandaríkið sem ekki
hefur byggt nýjan spítala,“ segir
Helgi og bætir við að stóra vanda-
málið sé að það stefni í hrikalegan
skort á hjúkrunarfræðingum. Það
geti hugsanlega dregið úr áhuga
þeirra sem stunda sérnám erlendis
á að koma heim í það umhverfi
sem boðið sé upp á og líkur séu á
að núverandi ástand vari næstu
árin.
Ekki hægt að nýta öll laus
rými krabbameinsdeildar
Bráðasjúklingar lagðir inn á almennar deildir á LSH
Lögreglan á
höfuðborgar-
svæðinu lýsti í
gærkvöldi enn
eftir 55 ára karl-
manni, Guðmundi
Benedikt Bald-
vinssyni, en ekk-
ert var þá vitað
um ferðir hans
síðan klukkan 18 á föstudag.
Björgunarsveitir á höfuðborgar-
svæðinu voru boðaðar út seinni part-
inn í gær vegna vísbendinga sem
lögreglu bárust og er unnið út frá
þeim, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Guðmundur Benedikt er sagður
vera um 170 til 175 sentimetrar á
hæð og er hann talinn vera í svörtum
jakka frá Cintamani, bláum galla-
buxum og svörtum skóm. Þá er hann
sagður vera með svarta húfu á höfði,
vera með gráa eða ljósa vinnuhanska
og með bakpoka. Mátti í gærkvöldi
sjá björgunarmenn leita Guðmundar
Benedikts í efri byggðum Reykja-
víkur, m.a. við Rauðavatn og í og við
Breiðholt og Norðlingaholt. Þeir
sem geta gefið upplýsingar um ferð-
ir hans eru beðnir um að hafa sam-
band við lögregluna í síma 444-1000.
Leitað að
Guðmundi
Benedikt
„Við vildum vekja athygli á örygg-
ismálum og ljúka þeirri ferð sem
faðir minn fór í en átti ekki aftur-
kvæmt úr,“ segir Sigurður Jónas
Eggertsson. Í hádeginu í gær tóku
nokkrir hjólreiðamenn sig til og
fóru sömu leið og Eggert Þorfinns-
son hugðist gera hinn 6. nóvember í
fyrra. Hann lagði þá upp frá heimili
sínu við Kirkjusand en varð fyrir bíl
þar skammt frá á Sæbraut. Í gær
var hjólað frá Kirkjusandi að
Hörpu og til baka en þá leið fór
Eggert oft. Aðstæðum á gangbraut-
inni þar sem banaslysið varð hefur
nú verið breytt og þær gerðar
öruggari.
„Tillitssemi er einfaldasta leiðin
til að auka öryggi allra,“ segir Sig-
urður Jónas, sem telur að öryggis-
mál eigi að vera efst á blaði þegar
umferðarlögum er breytt. Nú
standi slíkt fyrir dyrum og þar sé
lagt til að hjólreiðamaður sé að
jafnaði hægra megin á akrein. Slíkt
sé fráleitt, enda skerði það sýni-
leika hjólreiðamanna og hvetji til
framúraksturs. sbs@mbl.is
Luku við
hjólaferð
Eggerts
Morgunblaðið/Hari
Vöktu athygli á öryggi hjólreiðamanna við Sæbrautina í gær