Morgunblaðið - 07.11.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.11.2018, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Eggert Selfoss Húsið er líklega ónýtt. Landsréttur felldi í gær úr gildi gæsluvarðhald yfir konu sem grunuð er um aðild að húsbruna á Kirkju- vegi 18 á Selfossi 31. október síðast- liðinn. Kemur þetta fram í tilkynn- ingu sem birt er á heimasíðu lögreglunnar. „Í framhaldi af niðurstöðu Lands- réttar hefur hún nú hafið afplánun fangelsisvistar sem hún á óafplánaða vegna eldri dóms,“ segir þar, en kon- an kærði gæsluvarðhaldsúrskurð til Landsréttar og skilaði lögreglan á Suðurlandi rökstuðningi fyrir úr- skurðinum til dómsins í gær. Konan var handtekin á vettvangi brunans samt karlmanni. Var fólkið í kjölfarið úrskurðað í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna og sætti það einangrun. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, sagði nýverið í samtali við mbl.is að verið væri að vinna úr þeim rannsóknar- gögnum sem aflað var á vettvangi. Tvennt lést í brunanum. Konan komin í fangelsi  Landsréttur felldi úr gildi gæsluvarðhald yfir henni FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2018 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 20% afslátturaf öllum CHANELvörum Chanel kynning í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ miðvikudag til föstudags Gréta Boða kynnir nýju fallegu jólalitina í CHANEL Verið velkomin Vatnsheldir Kuldaskór SMÁRALIND www.skornirthinir.is Innbyggðir broddar sólaí Verð 16.995 Stærðir 36 - 47 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er svo mikil dýpt í þessum ljóð- um, á við bestu skáld. Svo skrifar hann svo fallega,“ segir Páll Guð- mundsson, listamaður í Húsafelli, en hann hefur samið lög við þrjú kvæði Þorsteins Jakobssonar, sem gjarnan var kallaður Steini Hreða, og flutti þau á panflautu við opnun sýningar í Reykholti um fullveldisárið 1918. Saga ársins er meðal annars sögð með orðum Þorsteins sem skrifaði mikið, meðal annars handrituð blöð. Þorsteinn Jakobsson var frændi Páls, þeir eru báðir afkomendur séra Snorra Björnssonar í Húsafelli og Þorsteinn átti lengi lögheimili þar þótt hann væri vinnumaður víða. Þorsteinn er Páli hugstæður þótt hann hafi verið barn að aldri þegar Þorsteinn dó. „Ég man óljóst eftir honum en hann var afar góður við mig. Ég hef málað margar myndir af honum,“ segir Páll. Þegar Óskar Guðmundsson, rithöf- undur og fræðimaður í Reykholti, var að undirbúa fullveldissýninguna barst það í tal við Pál að til væru í handritum kvæði eftir Þorstein. Það leiddi til þess að Páll fór að semja lög. „Textinn er svo fallegur að hann leið- ir mig að lögunum. Ég gat bara ekki hætt.“ Hann samdi meðal annars lag við kvæðið Útsýn sem Þorsteinn samdi þegar hann var á vertíð suður með sjó vorið 1918. Hann samdi lagið fyrir panflautu og tvær aðrar skrítnar flautur en allar hefur hann smíðað sjálfur úr efnum úr umhverfi sínu. Þegar til kom reyndist hljómburð- urinn í hátíðarsal Snorrastofu vera þannig að panflautan hljómaði best og flutti hann lögin með henni eftir að ljóðin voru lesin. Flautuna smíðaði hann meðal annars úr hundrað ára stiklum rabarbara og einnig hvannar. Páll er afar ánægður með sýning- una í Reykholti, segir að Óskar, starfsfólk Snorrastofu og þau sem settu sýninguna upp hafi unnið afrek. „Það er líka fallegt að heiðra mann sem vann við að grafa skurði,“ segir Páll. Ljósmynd/Gunnlaugur Auðunn Júlíusson Tónlist Páll flytur lög við ljóð Steina Hreða á rabarbaraflautuna sína. Lék lög við kvæðin á eigin rabarbaraflautu  Páll heiðrar minningu frænda síns Lögreglan á Suðurnesjum hand- tók í síðustu viku fjóra erlenda karlmenn sem hafa farið á milli húsa undanfarna daga til að bjóða þjónustu við þrif. Að minnsta kosti einn úr hópnum er með tengsl við skipulagðan far- andbrotahóp sem tengist tugum mála sem varða fjársvik, að því er segir í tilkynningu frá lögregl- unni. Einnig er uppi grunur um að fjórmenningarnir hafi ekki haft nægjanlegt fé fyrir uppihaldi sínu hér á landi. Lögregla tók af þeim skýrslur og voru þeir síðan látnir lausir. Þeir eru farnir úr landi. Lögreglu höfðu borist tilkynn- ingar frá íbúum í Reykjanesbæ um útlendinga sem buðust til að hreinsa stéttir og sinna öðrum verkum gegn gjaldi. Fleiri erlendir hópar hafa einn- ig boðið þjónustu við þrif, málun og fleira í umdæminu. Íbúi sem samdi við þrjá slíka um að þrífa hjá sér innkeyrsluna fyrir 40 þús- und krónur var rukkaður um 208 þúsund eftir að verkinu lauk. Skrifað hafði verið undir samn- ing með fyrrgreindu upphæðinni en mennirnir tóku til við að hrella íbúann, hringja linnulaust í hann og banka hjá honum til að fá sitt fram. Á endanum hringdi íbúinn í lögreglu sem gerði mönnunum að stöðva áreitið. Lögreglan ráðleggur fólki að eiga ekki viðskipti við menn af „þessu tagi“, eins og fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Handtóku „farandverka- menn“ á Suðurnesjum Gul viðvörun er í gildi á landinu til hádegis í dag, að því er fram kemur á heimasíðu Veðurstofu Íslands. Fram til klukkan níu gildir viðvör- unin um Breiðafjörð og Vestfirði en á hádegi fellur hún úr gildi fyrir Vestfirði. Á Vestfjörðum gengur í norðaust- anstorm, 18-25 m/s með mjög hvöss- um vindhviðum. Dálítil slydda eða snjókoma verður á svæðinu og er mælst til þess að vegfarendur sýni aðgát. Á Breiðafirði er gert ráð fyrir norðaustan 15-23 m/s og hvassast verður norðantil með vindhviðum allt að 35 m/s nyrst. Dálítil slydda eða snjókoma verður á fjallvegum og mælist Veðurstofan til þess að vegfarendur sýni aðgát, einkum þeir í ökutækjum sem viðkvæm eru fyrir vindi. Lægir með kvöldinu Að öðru leyti er útlit fyrir aust- læga átt 5-13 m/s á morgun og rign- ingu með köflum, einkum á Aust- fjörðum og Suðausturlandi. Á Vest- fjörðum er spáð norðaustan 13-20 m/s og slyddu eða rigningu. Í kvöld verður vindur heldur hægari en yfir daginn. Á morgun er útlit fyrir austan 8- 15 m/s og rigningu víða. Úrkomulít- ið verður á Norðurlandi. Um landið vestanvert styttir upp annað kvöld og verður hiti á bilinu 3-8 stig. Gul viðvörun norðvestantil á landinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.