Morgunblaðið - 07.11.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2018
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Bók með 33 ljóðum eftir Þórberg
Þórðarson rituðum af honum sjálf-
um með eigin hendi er meðal verka
á netbókauppboði Gallerís Foldar
og Bókarinnar á Klapparstíg. Upp-
boðið hófst um síðustu helgi og
stendur til 24. nóvember. Tvö
ljóðanna í bókinni virðast ekki hafa
birst áður. Bókin er bundin í skinn
og í öskju. Þegar hafa verið boðnar
fyrir hana 200 þúsund krónur, en
hún gæti farið á mun hærra verði.
Bókin er með orðum Þórbergs
„ein lítil ljóðasyrpa uppteiknuð
handa vini mínum Ársæli Árnasyni,
honum til heimulegra umþenkinga,
á hvítasunnudag 1921 af Þórbergi
Þórðarsyni“. Ársæll var á sinni tíð
þjóðkunnur bókbindari og þýðandi
skáldverka og rak einnig bókaút-
gáfu og bókaverslun í Reykjavík.
Hann gaf m.a. út fyrstu verk Hall-
dórs Laxness og Davíðs Stef-
ánssonar.
„Þau eru hvorki ort mér til
lofs né frægðar“
Í formála ljóðasyrpunnar segir
Þórbergur: „Nöfn hafa kvæði þessi
engin, heldur eru þau diktuð og
uppteiknuð eftir því sem andinn hef-
ir mér inn gefið af mildríkri náð
sinni, bæði inni í mínu sólarlitla
kamerzi og úti á víðum velli, á því og
því augnabliki. Þau eru hvorki ort
mér til lofs né frægðar, heldur ber á
þau að líta sem valdboð míns skáld-
lega harðstjóra, hver eigi hefir vilj-
að láta hönd mína aðgerðarlausa á
hinum hátíðlegu augnablikum
stemminganna, sem yfir mig hafa
fallið í svo mörgum situationum
míns brogaða lífs.“
Í prentuðu ljóðasafni Þórbergs
Eddu sem kom út 1944 er að finna
31 ljóðanna í syrpunni sem Ársæll
fékk. Tvö ljóðanna hefur ekki hefur
tekist að finna í útgefnum bókum
Þórbergs.
Auk ljóðasyrpunnar með eigin
hendi Þórbergs eru margar bóka
hans í frumútgáfum eða eldri út-
gáfum á uppboðinu. Ari Gísli Braga-
son hjá Bókinni segir að allt séu
þetta góð eintök verkanna.
Samtals er 100 bækur eftir ýmsa
höfunda á uppboðinu og margar í
mjög fallegu bandi. Meðal verka í
fyrstu útgáfu eru Svartar fjaðrir
Davíðs Stefánssonar, Stjörnufræði
eftir Ursin í þýðingu Jónasar Hall-
grímssonar, prentuð í Viðey 1842,
með öllum kortum og myndum,
Kvæði Eggerts Ólafssonar frá 1832
og Sagan af Niali Þorgeirssyni og
sonum hans (Njála) frá 1772 í sam-
tíma bandi.
Ljóð Þórbergs Þórðarsonar
með eigin hendi á uppboði
33 ljóð í bókinni Talið að tvö þeirra hafi ekki birst áður
Þórbergur Auk handritsins eru
margar bækur hans á uppboðinu.
Ljóðasyrpa Verkið geymir 33 ljóð
með eigin hendi Þórbergs.
Fágætt Hér sést Betlehemstjarnan eftir Þórberg ritað af honum sjálfum.
Beiðni Arctic Fish og Arnarlax um
tímabundna undanþágu frá kröfu
um starfsleyfi er enn í vinnslu í
umhverfisráðuneytinu. Leyfismál
fyrirtækjanna vegna eldis í Pat-
reks- og Tálknafirði eru því ekki
komin í lag þrátt fyrir að sjávar-
útvegsráðherra hafi veitt þeim
rekstrarleyfi til bráðabirgða til 10
mánaða.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála felldi úr gildi starfs-
og rekstrarleyfi Matvælastofnunar
og Umhverfisstofnunar fyrir rúm-
um mánuði vegna ófullnægjandi
umhverfismats. Starfsleyfi er for-
senda rekstrarleyfis og er málið
því í sömu stöðu og áður.
Arctic Fish og Arnarlax sóttu
um bráðabirgðaleyfin strax daginn
eftir að Alþingi heimilaði sjávar-
útvegsráðherra að veita fiskeldis-
fyrirtækjum rekstrarleyfi til
bráðabirgða en umhverfisráðherra
hafði fyrir hliðstæða heimild gagn-
vart starfsleyfum.
Lýkur eins fljótt og auðið er
Heimild umhverfisráðherra er
að finna í lögum um hollustuhætti.
Þar segir að ef ríkar ástæður mæla
með því og að fenginni umsögn
Umhverfisstofnunar og eftir atvik-
um heilbrigðisnefndar sé ráðherra
heimilt að veita slíka undanþágu.
Samkvæmt upplýsingum um-
hverfisráðuneytisins er beiðni fyr-
irtækjanna í vinnslu og unnið að
því að ljúka henni eins fljótt og
auðið er. helgi@mbl.is
Starfsleyfi eru í
vinnslu í ráðuneyti
Leyfismál laxeldis enn óleyst
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Patreksfjörður Skip á vegum Arnarlax dælir seiðum í sjókvíar fyrr á árinu.
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
e u or , r y uo nar, st r s nv rp, m nn s nv rp,
soundbarir, bassabox og ýmislegt annað.
15% afsláttur
af flestum SAMSUNG vörum* í nokkra daga
LÁGMÚLA 8 - 530 2800
*Athugið að afslátturinn gildir ekki af öðrum sértilboðum sem eru í
gangi. Ekki er afsláttur af símum, spjaldtölvum eða úrum.