Morgunblaðið - 07.11.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.11.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2018 7. nóvember 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.7 121.28 120.99 Sterlingspund 157.03 157.79 157.41 Kanadadalur 92.04 92.58 92.31 Dönsk króna 18.399 18.507 18.453 Norsk króna 14.395 14.479 14.437 Sænsk króna 13.28 13.358 13.319 Svissn. franki 120.07 120.75 120.41 Japanskt jen 1.0655 1.0717 1.0686 SDR 167.24 168.24 167.74 Evra 137.29 138.05 137.67 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.0062 Hrávöruverð Gull 1231.6 ($/únsa) Ál 1966.5 ($/tonn) LME Hráolía 72.85 ($/fatið) Brent Hagnaður fasteignafélagsins Regins á þriðja ársfjórðungi nam 776 millj- ónum króna, samanborið við 1.342 milljónir á sama tímabili í fyrra. Minnkar hann því um ríflega 42% milli ára. Rekstrartekjur jukust um 223 millj- ónir króna og reyndust tæpur 2,1 millj- arður. Rekstrarhagnaður fyrir mats- breytingu jókst sömuleiðis um 154 milljónir. Hins vegar nam matsbreyt- ing fjárfestingareigna 655 milljónum á þriðja fjórðungi þessa árs, samanborið við 1,1 milljarðs hækkun í fyrra. Í lok fjórðungsins námu heildar- eignir Regins 130 milljörðum króna. Um síðustu áramót námu eignirnar hins vegar 99,6 milljörðum króna og hafa þær því aukist um ríflega 30 milljarða króna á níu mánuðum. Munar þar helst um kaup félagsins á öllu hlutafé dótturfélaga FAST-1 slhf. en heildarvirði hins keypta var 22,7 milljarðar króna. Frá áramótum hafa skuldir félagsins aukist um 24,2 millj- arða og stóðu þær við lok þriðja árs- fjórðungs í 89,1 milljarði króna. Eigið fé hafði hækkað um 6,3 milljarða frá áramótum og nam 41 milljarði króna. Á fyrstu níu mánuðum ársin hefur Reginn hagnast um tæpa 2,3 millj- arða króna, samanborið við tæpa 2,9 milljarða yfir sama tímabil í fyrra. Rekstrartekjur hafa aukist um 679 milljónir en rekstrarkostnaður fjár- festingareigna um 215 milljónir. Hins vegar eru matsbreytingar lægri sem nemur 413 milljónum, m.v. fyrra ár og standa í 1,9 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Hagnaður Regins minni BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir að ekki hafi verið talin ástæða til að loka fyrir viðskipti með bréf Icelandair Group í upphafi við- skiptadags á mánudag, þrátt fyrir að ljóst hafi verið á þeim tíma að síðar um daginn myndi berast tilkynning til markaðarins um að félagið hefði fest kaup á öllu hlutafé WOW air eftir maraþon- viðræður yfir ný- liðna helgi. „Það þarf ríka ástæðu til að stöðva viðskipti. Ekki nægir að stór tíðindi séu í vændum ef trúnaður ríkir um þær upplýsingar, enda væru viðskipti þá stöðvuð mun oftar en raunin er.“ Segir Páll að Kauphöllin hafi ekki haft ástæðu til að ætla annað en að trúnaður ríkti um upplýsingarnar fram að því að ákvörðun var tekin um að stöðva viðskiptin, en það var gert rétt í þann mund sem tilkynning um kaupin barst í gegnum tilkynningar- kerfi Kauphallarinnar. „Viðskiptin voru stöðvuð tíma- bundið þannig að markaðsaðilar fengju ráðrúm til að átta sig á þess- um tíðindum,“ segir Páll. Þá segir hann að rétt hafi verið að opna að nýju fyrir viðskipti með bréf félagsins rúmum klukkutíma eftir að viðskiptin voru stöðvuð og tilkynn- ingin barst. Í henni kom fram að kaupverðið næmi um 1-3,6 milljörðum króna, miðað við dagslokagengi bréfa Ice- landair á mánudag, en endanlegt verðmat á WOW air liggur ekki fyrir. Versta mögulega útkoma í því mati er sú að WOW air renni inn í Icelandair með því að síðarnefnda fé- lagið legði aðeins til 1,8% hlut í sér til að mæta víkjandi láni sem Skúli Mogensen hafði veitt WOW air fyrr á þessu ári. Í ljósi þess hversu óljóst kaupverðið mun að endingu verða má spyrja hvort fjárfestar hafi haft aðgang að nægjanlegum upplýsing- um til að geta myndað sér skoðun á verðmæti félagsins. „Ég tel að það hafi verið rétt að opna fyrir viðskipti með bréf félags- ins. Almennt reynum við að vera með opið í lengstu lög,“ segir Páll Harðarson. Töldu skilyrðum fullnægt Lög um kauphallir, lög um verð- bréfaviðskipti og reglugerð um upp- lýsingagjöf og tilkynningarskyldu kveða á um gagnsæi á skipulegum verðbréfamarkaði og skapa umgjörð sem tryggja á að fjárfestar hafi jafn- an aðgang að nægjanlegum upplýs- ingum til að geta tekið ákvarðanir. Páll tekur þó fram að stundum sé ekki auðvelt að greiða úr óvissu. „Það eru ríkir hagsmunir að vera með opið. Það getur vissulega oft skapast óvissuástand sem er ekkert endilega auðvelt að greiða úr. Við töldum skilyrðum fullnægt til þess að opna fyrir viðskipti.“ En er stundum verra að gefa tak- markaðar upplýsingar heldur en engar og kom aldrei til greina að stöðva viðskipti til lengri tíma? „Það eru engin fordæmi, ef undan- skilin eru eftirmál hrunsins, fyrir því að stöðva viðskipti til lengri tíma. Þegar ákvörðun er tekin um opnun viðskipta þá er því beint til félagsins að huga að því hvort upplýsingarnar sem eru birtar séu fullnægjandi til að hefja viðskipti á nýjan leik. Þá skipt- ir meginmáli að tryggja jafnræði meðal fjárfesta,“ segir Páll. „Það er Kauphallarinnar og Fjár- málaeftirlitsins að ganga eftir því ef við teljum að upplýsingum sé áfátt eða hægt sé að greina frá meiru en félögin hafa veitt. Þá er það gert. En ég vil í sjálfu sér ekki tjá mig um þetta einstaka mál að því leytinu,“ segir Páll í samtali við Morgun- blaðið. En voru fjárfestar ekki að taka ákvarðanir í ljósi afar takmarkaðra upplýsinga í gær? „Auðvitað voru fjárfestar ekki að taka ákvarðanir í ljósi fullkominna upplýsinga en það sem máli skiptir er hvort félagið hafi reynt að greiða úr óvissunni að því marki sem hægt var þannig að fjárfestar hafi bestu fáanlegu upplýsingar. Það er spurn- ing sem skiptir máli að mínu viti á þessum tímapunkti. Það er mat sem þarf að fara fram hverju sinni. En þetta eru góðar og ígrundaðar spurningar sem þú hefur,“ segir Páll. Er ekki ástæða til að halda að þær upplýsingar sem vanti skipti veru- legu máli um kaupin, hvort þau séu góð eða slæm? „Vissulega má ætla að það eigi eft- ir að koma fram upplýsingar sem varpa frekara ljósi á áhrif kaupanna á Icelandair Group. Ég myndi ætla að þegar að niðurstaðan er fengin í skoðun Icelandair á þessu þá verði myndin skýrari. En það þarf ekki að greiða úr allri óvissu til að hafa opið fyrir viðskipti. Lykilatriði er að allar upplýsingar sem liggja fyrir séu birt- ar tafarlaust og jafnræðis fjárfesta gætt.“ Viðskipti með Icelandair Group í Kauphöllinni síðastliðinn mánudag námu tæpum 950 milljónum króna og hækkaðu bréf félagsins um 39%. Jókst markaðsvirði þess um 15 millj- arða í viðskiptunum. Þarf ekki að greiða úr allri óvissu Morgunblaðið/Hari Kauphöll Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir skilyrðum hafa verið fullnægt um að opna fyrir viðskipti.  950 milljóna viðskipti þrátt fyrir takmarkaðar upplýsingar Eftir gríðarlega hækkun á bréfum Icelandair Group í gær, þar sem hækkunin nam 39% en fór hæst í 52%, lækkaði gengi félagsins lítil- lega í viðskiptum gærdagsins. Viðskiptin með félagið í Kauphöll Ís- lands voru umtalsverð, rúmur milljarður króna og lækkaði gengi fé- lagsins um 1%. Í gær birti félagið flutningatölur sínar fyrir októbermánuð. Þar kemur fram að fjöldi farþega Icelandair nam 353 þúsundum í októ- ber og jókst um 10% í samanburði við sama mánuð í fyrra. Sætanýt- ing flugfélagsins nam 80,9% í samanburði við 83,4% í október á síðasta ári. Þá jukust framboðin sæti um 10% á milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar í gær. Farþeg- ar Air Iceland Connect voru 28 þúsund og fækkaði um 10% á milli ára. Fækkunina má rekja til þess að félagið hætti flugferðum til Bel- fast og Aberdeen sem og á milli Keflavíkur og Akureyrar. Sætanýting þess nam 69,2% og jókst um 5,9% á milli ára en fraktflutningar jukust um 5,9%. ENN MIKIL VELTA MEÐ BRÉF ICELANDAIR Viðskipti með Icelandair í Kauphöll fóru yfir milljarð ● Landsbankinn hefur sett rúman helming af hlut sínum í fjárfesting- arfélaginu Eyri Invest hf. í sölu. Um er að ræða 12,1% hlut en tilkynnt var um að bankinn ætlaði að selja allan hlut sinn í félaginu árið 2016. Á vef bankans kemur fram að Eyrir Invest hf. er fjár- festingarfélag sem stofnað var árið 2000. Langstærsta eign Eyris Invest hf. er 25,9% eignarhlutur í Marel hf. Miðað við markaðsvirði félagsins við lok við- skipta í Kauphöll í gær er sá hlutur met- inn á tæpa 72 milljarða króna. Eyrir Invest hf. á einnig tæpan helm- ings hlut í Eyri Sprotum slhf. og um þriðjungshlut í Efni ehf. Landsbankinn auglýsir 12,1% hlut sinn í Eyri Norræna húsið Sæmundargötu 11 Aðgangur ókeypis Sýnd til 30. apríl 2019 Ferðalag um furðuheim barnabókmenntanna Ævintýraleiðangur fyrir allskonar krakka Barnabókaflóðið Páll Harðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.