Morgunblaðið - 07.11.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 07.11.2018, Síða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2018 GEFÐUGJÖF SEM GEFUR Þegar þú gefur L‘OCCITANE gjöf, gefurðu gersemar Provence; grípandi hlýjuna, hreinleika náttúrunnar og töfrandi fegurð. Í öllu sem við gerum leggjum við áherslu á að styðja við fólk og vernda líffræðilegan fjölbreytileika náttúrunnar. Kringlan 4-12 | s. 577-7040 Þegar ráðamenn tala um loftslagsáætlun okkar Íslend- inga, þá finnst mér þeir alltaf gleyma því, að við búum í eldfjallalandi, þar sem allt getur gerst og setur allar lofts- lagsáætlanir á hvolf. Þetta góða fólk verður að muna það, að við getum aldrei stjórnað náttúruöflunum. Eldfjöllin spúa eldi og eimyrju yfir okkur, þegar þeim sýnist, og þau menga út frá sér. Þess vegna verður þetta góða fólk, sem býr til loftslagsáætlanirnar, að muna eftir þeim virku eldfjöllum, sem við höfum hér í landi, og taka þau og mengunina frá þeim inn í áætlunina. Það er því ekki hægt að negla niður fastar áætlanir í þessum málum, eins og engin séu eldfjöllin á landinu, sem geta sett allt úr skorð- um í þessum efnum. Við megum því ekki horfa framhjá þessu grundvallaratriði. Það verður að taka allt með í reikninginn, líka mengun frá eldfjöllum. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Eldfjöllin okkar og loftslagsáætlunin Morgunblaðið/RAX Á þessu ári halda Al- mannaheill – samtök þriðja geirans upp á tíu ára afmæli sitt. Af því tilefni er vert að staldra við og spyrja til hvers við þurfum slík samtök. Félagasamtök á Ís- landi sem starfa í al- mannaþágu bæta sam- félag okkar á margan hátt. Almannaheilla- félög vinna að því að auðga líf fólks og dýra og vernda náttúruna án hagn- aðarsjónarmiða. Í þessum félögum starfa sjálfboðaliðar sem vinna á óeigingjarnan hátt árið um kring. Slíkt sjálfboðastarf er reyndar mannrækt- andi í sjálfu sér og hafa fjölmargar rannsóknir sýnt að þátttaka í sjálf- boðaverkefnum eykur lífsgæði sjálf- boðaliðanna sjálfra. Almannaheillafélög í landinu eru fjölmörg og eru samtals með tugi þús- unda félagsmanna sem þjóna margfalt fleirum. Almannaheill eru samstarfs- vettvangur þessara félaga og sjálfs- eignarstofnana á Íslandi sem vinna að almannaheill án hagnaðarsjónarmiða. Markmiðið er að stuðla að fagmennsku og trúverðugleika slíkra félaga og bæta starfsskilyrði þeirra. Almanna- heill er vettvangur þar sem félaga- samtök læra hver af öðrum og þar sem færi gefst til að eiga samtal og stilla af kúrsinn miðað við breyttar áherslur í heiminum og alþjóðlega viðtekin gildi. Dæmi um verkefni Almannaheilla eru siðareglur fyrir félagasamtök, tillögur að heildarlögum um almannaheilla- félög, nám fyrir stjórnendur félaga- samtaka, Lýsa (áður Fundur fólksins), árleg lýðræðishátíð. Nýverið gerðu Al- mannaheill samning við yfirvöld um að kynna heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna fyrir íslenskum félaga- samtökum. Þegar við, almenningur, fyrirtæki og yfirvöld, styðjum félagasamtök til góðra verka viljum við geta treyst þeim. Við viljum að fólkið eða málefnið sem félaga- samtökin starfa fyrir njóti faglegrar hjálpar, að félagasamtökin taki vandaðar ákvarðanir, fari vel með fjármagn og komi í veg fyrir hags- munaárekstra. Við viljum ekki að fjármálaóreiða eða eiginhagsmunapot i félagasamtökunum skaði málstaðinn sem við styðj- um. Því miður er alltaf hætta á að það gerist í fé- lagasamtökum eins og annars staðar þar sem peningar og hagsmunir eru í húfi. Gæðastarf og stuðningur við fé- lagasamtök er því mikils virði. Á afmælishátíð Almannaheilla í dag, 7. nóvember, afhendir forsetinn viður- kenninguna Fyrirmynd 2018 einum fé- lagasamtökum til almannaheilla sem starfa af fagmennsku og skipuleggja starfsemi sína með gagnsæi og skil- virkni og með góða þjónustu og siðferði að leiðarljósi. Framtíð félaga til almannaheilla á Íslandi er björt. Fleiri og fleiri ein- staklingar vilja taka þátt í starfsemi fé- laga sem hafa ríkan tilgang fyrir sam- félagið. Almannaheill munu halda áfram að styðja við slík félög og hjálpa þeim að starfa af fagmennsku og trú- verðugleika. Fagmennska og trúverðugleiki félagasamtaka Eftir Ketil Berg Magnússon Ketill Berg Magnússon » Almannaheill er vettvangur þar sem félagasamtök læra hver af öðrum og færi gefst til að eiga samtal og stilla af kúrsinn miðað við breyttar áherslur í heiminum og alþjóðlega viðtekin gildi. Höfundur er formaður Almanna- heilla, samtaka þriðja geirans. Nú er byrjað að snjóa. Snjórinn sem fell- ur hér er eðlilega vímu- laus. Óprúttnir aðilar innan áfengisiðnaðarins hafa notað tilfinninga- leg tengsl við jólin, jóla- snjóinn, til að auka sölu á sínu áfengi. Jólin eru hátíð ástar og friðar, há- tíð barnanna. Börn fagna almennt jólunum með fjölskyldunni og vinum. Sum börn kvíða samt jólunum; börn sem búa við neyslu áfengis eða annarra vímuefna. Börn upplifa yfirleitt óöryggi innan um fólk sem er undir áhrifum. Sum börn kvíða fyrir rauðu dögunum á almanak- inu, frídögum, þegar áfengi eða önnur vímuefni eru höfð um hönd. Það er okkar að vernda börnin og gefa þeim tækifæri til að eiga öruggt og gott líf. Við eigum að leggja lið við að skapa að- stæður fyrir börn til að alast upp við sem bestar aðstæður. Það er óverjandi þegar fyrirtæki markaðssetja markvisst sín vímuefni beint og óbeint til að eyðileggja jóla- hátíðina fyrir börnum. Rannsóknir sýna að áfengisauglýsingar, beint eða óbeint, auka sölu áfengis. Áfengis- iðnaðinum er að upplagi alveg sama um neikvæðar afleiðingar neyslu áfengis eða annarra vímuefna. Mark- mið áfengisiðnaðarins er að hagnast sem mest á sínum vímuefnum. Sam- keppnin er hörð og berast nú fréttir frá Bandaríkjunum um áhuga áfengisiðnaðarins á að taka þátt í sölu og dreifingu kannabis. Það er stefna okkar að draga úr notkun á áfengi og öðrum vímuefnum. Við höfum sett okkur skýr markmið með Sam- einuðu þjóðunum og ætl- um að ná heimsmark- miðum fyrir árið 2030. Slíkt gerist ekki með til- slökun á áfengislöggjöf- inni. Það er þjóðinni til framdráttar að ná heimsmarkmið- unum og draga úr notkun vímuefna, sama í hvaða formi þau eru. Við skulum eiga samtal um forvarnir því að margir eru að gera góða hluti. Vitundarvakning er í gangi og margir leggjast á árarnar. Við skulum leggja þeim lið við að koma til skila að við þurfum ekki vímuefni alltaf, við ætlum að draga úr neyslunni, jólahátíðin er einstaklega gott tækifæri til að vera með börnunum í öruggu vímulausu umhverfi. Hvítur jólasnjór Eftir Aðalstein Gunnarsson Aðalsteinn Gunnarsson » Áfengisauglýsing eða hvatning til neyslu vímuefna er óvið- unandi ofbeldi og þarf að fordæma. Höfundur er framkvæmdastjóri IOGT á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.