Morgunblaðið - 07.11.2018, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2018
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2018 Ford F-350 Platinum
BREYTTUR 37” Litur: Platinum hvítur, svartur að innan.
6,7L Diesel , 450 Hö, 925 ft of torque. Með Ultimate
pakka, sóllúgu, power running boards, hita,kæling og
nudd í sætum, heithúðaðan pall, dráttarpakki í palli,
fjarstart og margt fleira. Breyttur með Carli suspention
2,0 lift kit, Fox demparar og 37 dekk.
Stórglæsilegur! ATH á myndum vantar kanta.
VERÐ
12.490.000 m.vsk
2018 GMC Denali 3500
Litur: Onyx black, svartur að innan. 6.6L Duramax
Diesel, 445 HÖ, Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri,
sóllúga, BOSE hátalarakerfi, dual alternators, upphituð
og loftkæld sæti, heithúðaður pallur og kúla í palli
(5th wheel pakki) og fleira.
VERÐ
10.890.000 m.vsk
2018 Ford F-350
Lariat Ultimate
Litur: White platinum metallic, Svartur að innan.
6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque.
Upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og
trappa í hlera, Driver altert-pakka.
VERÐ
9.950.000 m.vsk
2018 Ram Limited 3500
Litur: Svartur/ svartur að innan. 6,7L Cummins,
loftpúðafjöðrun, Aisin sjálfskipting, upphitanleg og
loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, heithúðaður pallur,
defroster í afturrúðu. Keyrður 3000 km. Aukahlutir á
mynd: 35” dekk og LED-bar í stuðara og krómrör á palli.
VERÐ
9.680.000 m.vsk
V
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þessa
dagana á umfangsmikilli tónleika-
ferð í Japan og hafa viðtökur, að
sögn aðstandenda hljómsveit-
arinnar, verið mjög góðar og er upp-
selt á flesta af þeim tólf tónleikum
sem hljómsveitin kemur fram á. Í
gærkvöldi lék hljómsveitin á þriðju
tónleikunum, í Sapparo, og áður
hafði verið uppselt á fyrstu tónleik-
unum í Kawasaki og Hamamatsu og
var hljómsveitin klöppuð upp á báð-
um stöðum og lék aukalag.
Vladimir Ashkenazy, aðalheið-
ursstjórnandi SÍ, sveiflar tónsprot-
anum á ferðalaginu en hann kemur
oft fram í Japan og nýtur mikillar
hylli þar í landi. Einleikari á tónleik-
unum er japanski píanóleikarinn
Nobuyuki Tsujii – Nobu, en hann er
blindur og er afar vinsæll í heima-
landi sínu. Hljómsveitin hefur alla
tónleikana á Jökulljóði eftir Þorkel
Sigurbjörnsson en flytur síðan ýmist
píanókonsert nr. 2 eftir Rakhmaínov
og sinfóníu nr. 2 eftir sama tónskáld,
eða píanókonsert nr. 2 eftir Chopin
og sinfóníu nr. 2 eftir Sibelius.
Linna ekki látum
„Þetta er í einu orði sagt stórkost-
legt. Frammistaða hljómsveitar-
innar og fagnaðarlæti tónleikagesta
sem linna ekki látum fyrr en þau fá
aukalag,“ segir Arna Kristín Einars-
dóttir, framkvæmdastjóri hljóm-
sveitarinnar, og bætir við að í tón-
leikaferðinni leiki hljómsveitin fyrir
um 35.000 tónleikagesti. Þetta sé því
ekki lítil landkynning fyrir Ísland.
Arna Kristín segir að móttökur
hafi til þessa verið frábærar og
ferðalagið gengið vel. „Það er til að
mynda gaman að fá að leika hér með
Nobu, hann er mikil stjarna hérna.
Við finnum líka vel að gestir eru
spenntir fyrir því að heyra í hljóm-
sveitinni. Japanskir tónleikagestir
sitja grafkyrrir í sætunum, þeir eru
svo agaðir, en svo tekur við þvílíkt
lófaklapp þegar verkunum lýkur.
Við höfum verið klöppuð upp og beð-
in um aukalag.“
Til stóð að hljómsveitin færi í tón-
leikaferð um Japan fyrir áratug en
hún var blásin af vegna efnahags-
hrunsins. Arna Kristín segist hafa
hitt konu sem var þá komin með
miða og var ánægð að fá nú loksins
að heyra í hljómsveitinni.
„Við höfum aldrei farið svona
langt að heiman eða verið svona
lengi,“ segir Arna Kristín um tón-
leikaferðalagið. Þá hefur Sinfóníu-
hljómsveitin ekki áður haldið svona
marga tónleika á ferðalagi.
Klöppuð upp í Japan
Þrennum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands af tólf
er lokið í Japan „Í einu orði sagt stórkostlegt“
Hvað freistar þín mest á Airwaves?
Tónlistarhátíðin Ice-
land Airwaves hefst í
dag og hefur framboð
tónleika aldrei verið
meira. Um 240 hljóm-
sveitir og sólótónlistar-
menn koma fram á há-
tíðinni, sem er sú
tuttugasta í röðinni og
eru listamennirnir frá
25 löndum.
Morgunblaðið hafði
samband við fimm
listamenn sem ætla á
hátíðina og bað þá að
segja frá því hvaða
hljómsveitum og tón-
listarmönnum þeir
væru spenntastir fyrir
og hvers vegna.
Alvia er svo ótrúlega flott listakona. Ég veit ekki
hvað annað ég get sagt en hvað ég dýrka hana
mikið sem persónu á sviði og í raunveruleikanum.
Listin hennar er svo útpæld og
töff.
Godchilla er uppáhalds ís-
lenska hljómsveitin mín!
Kassettan þeirra er á sísnún-
ingi í eldhúsinu mínu heima.
Ég hef oft séð þá spila en ég
fæ aldrei nóg. Madonna and
child eru dularfullar systur frá
dularfullum stað sem flytja
dularfulla tónlist. Minna mig á
Þöngul og Þrasa í Múmíndal.
Ég veit aldrei við hverju má bú-
ast á tónleikunum þeirra en er alltaf komin fremst
upp að sviðinu með uppglennt augu og munn,
tilbúin að vera numin á brott af undarlegum öfl-
um og flutt til dularfullrar plánetu þeirra.
Cyber. Ég dáist mjög mikið að þessum stelpum.
Ég veit að þær leggja ótrúlega mikið í flotta sviðs-
framkomu og mér finnst það ótrúlega aðdáun-
arvert. Ég hef aldrei séð þær á tónleikum þó ég
hafi unnið með þeim í einu lagi á síðustu plötu
þeirra. Þannig að ég get ekki beðið eftir að fá að
sjá þær í fyrsta sinn
Birnir er mitt guilty pleasure! Ég bý erlendis
núna en þegar ég kem í heimsókn finnst mér best
að fara á rúntinn um Reykjavík með litla bróður
mínum með tónlist Birnis á hæsta hljóðstyrk.
SÓLVEIG MATTHILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR TÓNLISTARKONA
Alvia ótrúlega flott
Morgunblaðið/Eggert
Töff Alvia á
Airwaves í fyrra.
Sólveig Matthildur
Kristjánsdóttir
Eistneski rapparinn Tommy Cash er
sá sem ég er langspenntust að sjá
í ár. Ég elska myndböndin hans,
hvernig hann
hreyfir sig, fötin
hans og lögin
hans. Ég ætla að
vera fremst á
fimmtudaginn
þegar hann treð-
ur upp í Lista-
safni Reykjavíkur
og öskra með
þegar hann fer
með línuna:
„Why have abs
when you can have kebabs?“ enda
sannari orð vandfundin. Kannski
kíki ég svo eftir það og fæ mér
húðflúrið “$¥ eins og allir hörð-
ustu aðdáendurnir hans gera. En
það fer svolítið eftir því hvort bjór-
inn sem verður seldur í Listasafn-
inu verður jafn svakalega dýr og
hann hefur verið þar hingað til. Af
öðrum erlendum atriðum er ég svo
næstspenntust að sjá Jimothy
Lacoste. Tónlistin hans kemur mér
alltaf í gott skap og ég er mjög
spennt að sjá hvernig hún kemur
út á sviði.
Oft finnst mér skemmtilegast að
sjá íslensku atriðin á Airwaves. Í ár
er GDRN efst á listanum yfir það
sem ég verð að sjá. Ég sá hana í
fyrsta skipti í sumar á Secret Sol-
stice. Ég fór bara inn í tjaldið þar
sem hún var að spila því það var
svo mikil rigning og VÁ, ég hef
bara aldrei orðið jafn heilluð og
jafn skyndilega orðið ofuraðdáandi.
Nýja platan hennar innsiglaði svo
endanlega aðdáun mína. Hún er
mjög heillandi, öruggur og sjarm-
erandi flytjandi. Ég mæli með því
að allir fari að sjá hana.
Af öðru íslensku hlakka ég mikið
til að sjá asdfhg og DJ Flugvél og
Geimskip. Sú síðarnefnda var líka
að gefa út tölvuleik sem hún og
Donna vinkona mín gerðu. Allir
ættu að fara inn á heimasíðuna
hennar og prófa hann.
Mér yngra og svalara fólk segir
að ég verði að tékka á hljómsveit-
inni Gróa. Það sé svona bandið
sem ég eigi eftir að monta mig af
að hafa séð á Airwaves.
Ég reyni að vera búin að tékka á
öllum sem eru að spila, en vera
ekki með of niðurneglt prógramm
því það er líka alltaf gaman að
hitta einhvern á barnum sem mælir
með einhverri hljómsveit því
frænka nágranna hans er hljóð-
maður hjá þeim. Stundum endar
það á að ég ramba á nýja uppá-
haldshljómsveit lífs míns, þó það
geti líka farið þannig að ég þurfi
bara að ræskja mig og muldra bara
eitthvað um að þetta sé alla vega
rosa gott treble hjá frænkunni.
KAMILLA EINARSDÓTTIR RITHÖFUNDUR
Langspenntust fyrir eistneskum rappara
Kamilla
Einarsdóttir