Morgunblaðið - 07.11.2018, Side 36
Fljúgðu til
Akureyrar
á Kabarett
Menningarfélag Akureyrar og
Air Iceland Connect kynna
Kabarett í Samkomuhúsinu.
Bókaðu flug norður á Kabarett.
airicelandconnect.is
Náttúran, sínusbylgjan og Kringlan
er yfirskrift háskólatónleika sem
haldnir verða í kapellunni í aðal-
byggingu Háskóla Íslands í dag kl.
12.30. Þar koma fram Sigrún
Harðardóttir á fiðlu og Þórdís Gerð-
ur Jónsdóttir á selló, sem skipa
Cauda Collective, og frumflytja eig-
ið verk. Auk þess flytja þær verk
eftir Guðna Franzson og Ríkharð H.
Friðriksson. Aðgangur er ókeypis.
Verk fyrir segulband,
fiðlu og selló í dag
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 311. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Geysilega óvænt úrslit litu dagsins
ljós í Safamýri í gær þegar botnlið
Selfoss skellti Íslands- og bikar-
meisturunum í Fram á þeirra eigin
heimavelli. Selfyssingar voru án
sigurs í deildinni eftir fyrstu sjö
leikina en bættu úr því með stæl í
gær. Hrafnhildur Hanna Þrastar-
dóttir var nánast óstöðvandi og
skoraði 13 mörk fyrir Selfoss. »2-3
Geysilega óvænt úrslit
hjá meisturunum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Sjöunda umferð Olísdeildar karla
var umferð jafnteflanna en jafn-
framt nokkuð óvæntra úrslita. Fjór-
um viðureignum af sex lauk með
jafntefli sem m.a. hefur orðið til
þess að umræða hefur vaknað um
hvort rétt væri að leggja niður jafn-
tefli á Íslandsmótinu í handknatt-
leik og láta leika til þrautar. Slíkt
var reynt á einni leiktíð
fyrir um hálfum öðr-
um áratug. Reynsl-
an var svo góð að
ákveðið var að
halda því ekki
áfram vetur-
inn á eftir.
»2
Hugmyndir uppi um að
leggja niður jafntefli
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Að syngja með átrúnaðargoðinu
Sissel Kyrkjebø er draumur sem ég
átti aldrei von á að upplifa. Hvað þá
að fá að syngja með henni á jóla-
tónleikum í Hörpu, fyrir framan Ís-
lendinga og alla fjölskylduna,“ segir
Rebekka Ingibjartsdóttir tónlistar-
kona, sem búsett er í Ósló. Þangað
flutti Rebekka fyrir þremur árum
þegar hún hóf nám í tónvísindum en
hún nemur nú söng og kórstjórn.
„Áður en ég flutti til Óslóar bjó ég
með foreldrum mínum og systkinum
í Bergen, heimabæ Sissel Kyrkjebø,
þar sem allir íbúar fylgjast vel með
henni,“ segir Rebekka, sem sá aug-
lýsingu í bergensku fréttablaði þar
sem auglýst var eftir söngvara til að
syngja dúett með Sissel. Leitað var
að söngvara ættuðum frá hverri
þeirri borg á Norðurlöndunum þar
sem Sissel verður með jólatónleika.
„Ég sótti um af rælni, hálfpartinn
í bríaríi og átti alls ekki von á að fá
tækifærið. En
svo fékk ég póst
frá umboðsmanni
Sissel þar sem
mér var tilkynnt
að ég hefði verið
valin og ég ætti
að syngja Some-
where úr West
Side Story á
hvorum tveggja
tónleikum Sissel í
Hörpu 19. desember,“ segir Reb-
ekka og bætir við að hún sé enn ekki
alveg búin að meðtaka það að hún sé
að fara að syngja með átrún-
aðargoðinu í jafnstóru tónleikahúsi
og Harpa er.
„Kannski verður það raunveru-
legra að ég sé að fara að syngja með
stjörnunni sem ég er búin að hlusta á
síðan ég var lítil þegar við tökum
fyrstu æfinguna saman. Þangað til
nýti ég tímann og æfi mig á meðan
ég bíð eftir boði á æfingu með Sissel
Kyrkjebø,“ segir Rebekka með til-
hlökkun.
Rebekka segir að fjölskylda henn-
ar sé tónelsk langt aftur í ættir.
„Afar mínir eru báðir músíkalskir,
annar lærði á orgel og hinn getur
spilað á öll hljóðfæri. Foreldrar mín-
ir, Helga Sigríður Þórsdóttir og
Ingibjartur Jónsson, eru mikið söng-
fólk og syngja nú með Mótettukór
Hallgrímskirkju. Ég ólst upp við að
fara á kóræfingar með mömmu og
pabba,“ segir Rebekka, sem spilar á
fiðlu, en hún byrjaði í Allegro Su-
zuki-skóla hjá Lilju Hjartardóttur
sex ára og spilar enn. Rebekka segir
foreldra sína hafa stutt sig vel í tón-
listarnáminu og séð til þess að hún
æfði sig heima, fylgt henni á tónleika
og stutt við bakið á henni þegar hún
ákvað að fara í tónlistarnám í Ósló.
Að sögn Rebekku syngur yngri syst-
ir hennar og spilar á gítar en íþróttir
eiga hug bróður hennar allan.
Rebekka segist upplifa áhrif tón-
listar á mismunandi hátt eftir því
hvað hún sé að fást við í hvert skipti.
Þegar hún er ekki að sinna tónlist
nýtur hún þess að dansa sving.
Fjölhæf Rebekka Ingibjartsdóttir stjórnar skólasystkinum sínum í hljómsveit og kór norska tónlistarháskólans.
Syngur dúett með
átrúnaðargoðinu í Hörpu
Rebekka valin til að syngja með Sissel á jólatónleikum
Rebekka
Ingibjartsdóttir