Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Forsætisráðuneytið hafði í gær-
morgun samband við Minjastofnun
og óskaði eftir því að starfsmenn
stofnunarinnar könnuðu ástand leg-
steins Jóns Magnússonar forsætis-
ráðherra í gamla kirkjugarðinum
við Suðurgötu. Ekki náðist í Katr-
ínu Jakobsdóttur forsætisráðherra
til að inna hana eftir viðhorfi henn-
ar til málsins.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær er legsteinninn mjög
laskaður og nokkur ár frá því að
áletruð marmaraplata framan á
honum brotnaði og var fjarlægð.
Platan er nú í geymslu í húsnæði
kirkjugarðanna í Gufunesi. Brotnað
hefur upp úr legsteininum þar sem
platan var. Jón lést og var jarð-
settur í garðinum sumarið 1926.
Minningarmark um Þóru Jóns-
dóttur konu hans, sem lést 1947,
stendur hins vegar heilt í grafreitn-
um.
Agnes Stefánsdóttir, sviðsstjóri
rannsókna og miðlunar, segir að
málið sé á algjörum byrjunarreit
hjá stofnuninni en orðið verði við
beiðni forsætisráðuneytisins.
Gamli kirkjugarðurinn, Hóla-
vallagarður eins og hann heitir
formlega, nýtur aldursfriðunar
samkvæmt lögum um menningar-
minjar. Agnes staðfesti að til um-
ræðu hefði verið innan Minjastofn-
unar að friðlýsa garðinn sérstak-
lega en engar ákvarðanir um það
hefðu verið teknar. Með sérstakri
friðlýsingu skapast auknir mögu-
leikar á vernd kirkjugarðsins og á
viðgerðum minningarmarka innan
hans.
Jón Magnússon var forsætisráð-
herra þegar Ísland varð fullvalda
1918. Margir líta svo á að hann hafi
átt mestan þátt í að samkomuulag
tókst um sambandslögin milli Ís-
lands og Danmerkur.
Tekur undir með sagnfræðingi
Einar K. Guðfinnsson, formaður
nefndar sem skipulagt hefur dag-
skrá vegna 100 ára afmælis full-
veldisins á þessu ári, segir að sér
hafi ekki verið kunnugt um ástand
legsteinsins fyrr en hann las um
það í Morgunblaðinu. Hann kveðst
taka undir með Gunnari Þór
Bjarnasyni sagnfræðingi, höfundi
nýrrar bókar um fullveldið, að þetta
sé ekki vansalaust, sérstaklega á
þessu afmælisári. Sér finnist eðli-
legt að reynt sé að bregðast við og
lagfæra legsteininn hið fyrsta.
Minjastofnun skoði legstein Jóns
Formaður nefndar vegna fullveldis-
afmælis vill láta lagfæra legsteininn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Varðveitt Brotna marmaraplatan af legsteininum er í geymslu í Gufunesi.
Byggingamenn hafa ágætis aðstæður til að
halda áfram með verk sín þessa dagana. Víða má
sjá menn að störfum við byggingar. Í Urriðaholti
í Garðabæ voru menn að koma fyrir gluggum í
fjölbýlishúsi. Hverfið er smám saman að taka á
sig mynd. Í haust hófust síðan framkvæmdir við
nýjan áfanga, austan við Urriðaholtsskóla. Því
má eiga von á að byggingakranar verði áfram
tákn þessa nýja íbúðahverfis.
Morgunblaðið/Eggert
Glugginn hífður á sinn stað
Það hefur eflaust ýmsum brugðið í
brún þegar þeir skoðuðu Lögbirt-
ingablaðið í gærmorgun.
Þar birtist tilkynning um gjald-
þrot félagsins 17. júní ehf., til
heimilis við Hraunbæ í Reykjavík.
Lýstar kröfur voru tæpar þrjár
milljónir og engar eignir fundust í
búinu.
17. júní ehf. var stofnað árið 2012
og var hlutafé 500 þúsund krónur.
Tilgangur félagsins var rekstur
bars, veitingasala, svo og kaup, sala
og rekstur fasteigna og lausafjár
ásamt lánastarfsemi tengdri rekstr-
inum og annar skyldur rekstur.
Oft gætir mikils frumleika þegar
einkahlutafélögum er gefið nafn.
Sem dæmi um félög sem tekin hafa
verið til gjaldþrotaskipta á liðnum
mánuðum má nefna Tryllt ehf.,
Skálkaskjól ehf., Haldleysi ehf.,
Raddsvið ehf., Steypusuð ehf. og
Diskó eða Dauði ehf.
17. júní
gjaldþrota
Gjaldþrot Veitingasalan gekk ekki.
Guðmundur
Benedikt Bald-
vinsson, sem lýst
var eftir á mánu-
dag, fannst lát-
inn á höfuð-
borgarsvæðinu á
þriðjudagskvöld.
Ekki er talið að
andlátið hafi bor-
ið að með sak-
næmum hætti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Umfangsmikil leit stóð yfir allan
þriðjudag á höfuðborgarsvæðinu
þar sem á þriðja hundrað björg-
unarsveitarmenn tóku þátt.
Guðmundur, sem var 55 ára, læt-
ur eftir sig tvö börn.
Aðstandendur vilja koma á fram-
færi þakklæti til allra þeirra sem
veittu aðstoð við leitina að Guð-
mundi.
Fannst látinn
Guðmundur Bene-
dikt Baldvinsson
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Breyttar mælingar á útblæstri bif-
reiða eru að valda umtalsverðri
hækkun á verði nýrra bíla og hafa að
óbreyttu í för með sér aukna verð-
bólgu með tilheyrandi hækkun á höf-
uðstól verðtryggðra lána að mati
hagfræðings sem Bílgreinasamband-
ið (BGS) fékk til að reikna út verð-
bólguáhrifin ef ekki verður brugðist
við þessum breytingum samhliða
veikingu á gengi.
Breytingar á mengunarstaðli
vegna útblásturs bíla tóku gildi 1.
september í Evrópu og geta skrán-
ingar á gildum fyrir koltvísýringslos-
un leitt til að bílar færist í hærri vöru-
gjaldaflokka, en frumvarp um
vörugjald sem nú er til meðferðar á
Alþingi á ekki að taka gildi fyrr en 1.
janúar. Skv. því eiga breytingarnar
ekki að leiða til hærri bílaskatta.
Vill Bílgreinasambandið að gildin
verði lækkuð fram að áramótum. Að
öðrum kosti muni verðhækkanir hafa
veruleg áhrif. Fulltrúar Bílgreina-
sambandsins hafa fundað með efna-
hags- og viðskiptanefnd Alþingis og í
viðbótarumsögn til nefndarinnar í
gær kemur fram að skv. útreikning-
um hagfræðings vegi kaup á nýjum
bílum 8,13% í vísitölu neysluverðs.
10% hækkun á verði bifreiða jafngildi
ríflega 0,8% hækkun vísitölunnar.
Verðtryggðar skuldir heimilanna eru
um 1.300 milljarðar og þessi hækkun
myndi því leiða af sér um 10,3 millj-
arða kr. hækkun á höfuðstól lána.
3,5% hækkun frá 1. sept.
„Gengisáhrif síðastliðinna mánaða
munu að auki leggjast ofan á þessar
hækkanir vegna vörugjalda en frá 1.
september til og með 1. nóvember
veiktist krónan um 10%,“ segir í um-
sögninni. Bent er á að nú þegar hafi
nýir bílar hækkað í verði um 3,5% frá
1. september. Ef ekki verði brugðist
við með hraði muni þessar breyting-
ar hafa enn meiri áhrif á hagsmuni
almennings. ,,Bílgreinasambandið er
tilbúið að leggja til reiknilíkön sem á
einfaldan máta hjálpa embætti toll-
stjóra að reikna vörugjöld m.v. þær
lækkanir sem lagðar eru til.“
Fram kemur að breytingarnar
hafa ekki einasta valdið verðhækk-
unum heldur hefur bílasala dregist
saman, líkt og átt hefur sér stað í
Evrópu. Sala á fólksbílum hér dróst
saman um 28% í október frá fyrra
ári. Gert er ráð fyrir 30-40% sam-
drætti í sölu nýrra bíla í nóvember og
desember.
Meiri verðbólga og hærri lán
Sala fólksbíla dróst saman um 28% í okt. Spá 30-40% samdrætti í sölu nýrra
bíla í nóv. og des. BGS vill að útblástursgildi lækki til áramóta vegna vörugjalds
Morgunblaðið/Hari
Umferð Frá 1. september hafa nýir
bílar hækkað í verði um 3,5%.