Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 58
58 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Ingigerður Guð-mundsdóttir, fram-kvæmdastjóri Chip & PIN Solutions, dótt- urfélags Valitor, á 40 ára afmæli í dag. Chip & PIN þjónustar posa og býður upp á greiðsluþjónustu fyrir millistór og lítil fyrirtæki á Bretlandi. Ingigerður hóf störf hjá Valitor 2011 en flutti út vorið 2017 og varð þá rekstrarstjóri Chip & PIN. Hún var síðan skip- uð framkvæmdastjóri núna í september en tæp- lega 80 manns vinna hjá fyrirtækinu. „Þetta hefur gengið mjög vel og starfið er fullt af skemmtilegum áskorunum. Það er sér- stakt að vera Íslendingur í bresku fyrirtæki og áhugavert að sjá muninn milli Íslands og Bret- lands þegar kemur að vinnustaðamenningu.“ Fyrirtækið er með skrifstofu í Leeds en höfuðstöðvarnar eru í bæn- um Bishop’s Stortford sem er rétt utan við London. Bærinn er í ná- munda við Stansted-flugvöll, og í þeim bæ býr Ingigerður ásamt eig- inmanni og sonum. „Þetta er búinn að vera mjög góður tími. Hér er gott íþróttastarf fyrir strákana og sérstaklega góðir skólar sem hefur orðið til þess að börnin aðlagast vel.“ Ingigerður segist ekki hafa mikinn tíma fyrir áhugamálin þessa stundina og hreyfing hafi setið á hakanum. „Ég hef mjög gaman af skíðamennsku og við ætlum að skella okkur á skíði um jólin í Austur- ríki. Það er því miður lítið hægt að stunda það sport í Bretlandi.“ Eiginmaður Ingigerðar er Haraldur Eiríksson ferðamarkaðs- ráðgjafi og synir þeirra eru Goði tíu ára og Kári átta ára. Stjúpdóttir Ingigerðar er Halla Karen og á hún tvö börn. Í tilefni afmælisins fór fjölskyldan til Marokkó í síðustu viku og Ingigerður ætlar að taka sér frí í vinnunni í dag. „Ætli það verði ekki kósíheit með fjölskyldunni.“ Framkvæmdastjórinn Ingigerður. Íslenskur stjóri í bresku fyrirtæki Ingigerður Guðmundsdóttir er fertug í dag Ó lafur Eggertsson fæddist 8. nóvember 1943 í Lax- árdal í Þistilfirði. Hann ólst þar upp á stóru heimili allt til unglings- ára að við tók framhaldsskóli á Laug- um og sumarvinna í brúargerð og vegavinnu. „Á Laxárdalsheimilinu vorum við þrjár kynslóðir, amma Guð- rún Guðmunda, afi Ólafur, mamma og pabbi og svo við átta systkinin.“ Tvö sumur vann Ólafur í Mjólkur- stöð KEA og í framhaldi af því eitt sumar sem mjólkurstöðvarstjóri á Þórshöfn. Veturna 1964 til 1968 sat Ólafur Kennaraskóla Íslands en hafði þrjá vetur þar á undan kennt á Langanesi og í Þistilfirði. Með kennaraprófið upp á vasann kenndi hann einn vetur á Hallormsstað, næsta á Djúpavogi, en frá hausti 1970 var hann skólastjóri við Hamraborg í gamla Berunes- hreppi. „Fyrst var þar heimavist, en Ólafur Eggertsson, ferðaþjónustub. og fv. skólastjóri – 75 ára Fjölskyldan Stödd í Berunesi fyrir fimm árum. Á myndina vantar Sigríði, börnin hennar og þrjú yngstu barnabörnin. Smiður, kóngur, kennarinn, kerra, plógur, hestur Hjónin Stödd á Tenerife á 50 ára brúðkaupsafmæli sínu 26.12. 2017. Hafnarfjörður Kári Þór Helgason fæddist 3. janúar 2018 kl. 21.43 á Landspítalanum í Reykjavík. Hann vó 3.732 g og var 51 cm langur. Foreldrar eru Helgi Þór Ara- son og Elísabet Heiðarsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Hágæða kristalglös frá Þýskalandi Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin! Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550 progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17. Allir velkomnir einstaklingar og fyrirtæki Ekki bara glas heldur upplifun Allt fyrir eldhúsið Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.