Morgunblaðið - 08.11.2018, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.11.2018, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Olíudreifing ehf. átti hæsta boðið í 300.000 lítra af flugvélaeldsneyti sem Landhelgisgæslan auglýsti til sölu á dögunum. Alls bárust fjögur tilboð í olíuna. Olíudreifing bauð 38 krónur fyrir lítrann en við bætist virðisaukaskatt- ur. Heildarupphæðin var því 11,4 milljónir króna. G 17 ehf. bauð 10,6 miljónir, Olís 9,3 milljónir og Skeljungur hf. 3,6 millj- ónir. Ríkiskaup sáu um útboðið. Morgunblaðið sneri sér til Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, og spurðist nánar fyrir um þessa olíusölu, enda ekki á hverjum degi sem stofnunin auglýsir olíu til sölu. – Hvernig eignaðist Gæslan þetta flugvélaeldsneyti? „Samkvæmt samningi við utanrík- isráðuneytið annast Landhelgisgæsla Íslands tiltekin verkefni samkvæmt varnarmálalögum nr. 34/2008. Eitt þessara verkefna er rekstur, umsjón og hagnýting öryggissvæða og mann- virkja í eigu Atlantshafsbandalags- ins. Annars vegar er um að ræða olíu sem var á eldsneytiskerfinu á Kefla- víkurflugvelli fyrir september 2006 og nýtt hefur verið til að hreinsa elds- neytisdreifikerfið á Keflavíkurflug- velli. Hins vegar er um að ræða elds- neyti sem dælt hefur verið af flugvélum, t.d. vegna bilana, af þjóð- um sem hér hafa sinnt loftrýmis- gæslu og öðrum verkefnum hér á landi. Vegna skorts á eldsneytis- birgðaaðstöðu í kerfinu samfara auk- inni umferð um Keflavíkurflugvöll þarf að losa eldsneytistankinn sem ol- ían er geymd í.“ – Mun andvirðið renna til Land- helgisgæslunnar? „Samanber framangreindan samn- ing og varnarmálalög rennur and- virðið til reksturs og viðhalds mann- virkja Atlantshafsbandalagsins, þ.e.a.s. ekki til Landhelgisgæslu Ís- lands.“ – Hversu umfangsmikil er olíu- birgðastöð NATO á Keflavíkurflug- velli og hve miklar birgðir eru þar? „Olíubirgðastöð NATO á Keflavík- urflugvelli samanstendur af átta elds- neytisbirgðatönkum, sjö tönkum sem rúma hver um sig 15,5 milljónir lítra eldsneytis og einum sem rúmar fjórar milljónir lítra. Til stöðvarinnar teljast löndunarbryggja í Helguvíkurhöfn, dælu- og lagnakerfi frá bryggju að birgðastöð og lagnakerfi frá birgða- stöðinni upp á Keflavíkurflugvöll. Til stöðvarinnar teljast einnig tvær af- greiðslustöðvar, austur- og vestur- stöð á Keflavíkurflugvelli, sem hvor um sig samanstanda af þremur birgðatönkum (2,5 milljónir lítra) auk lagnakerfis í flughlöðum við báðar af- greiðslustöðvarnar. Stöðin var leigð út samanber útboð sem fram fór 2008 og er Olíudrefing ehf. leigjandi.“ Olíudreifing átti hæsta tilboðið  Bauð 11,4 milljónir króna í flugvélaeldsneyti sem Landhelgisgæslan auglýsti nýlega til sölu Morgunblaðið/Arnaldur Keflavíkurflugvöllur P-3C Orion-kafbátaleitarvél Varnarliðsins ræsir hreyfla sína og undirbýr að taka á loft. Tankurinn sem Landhelgis- gæslan hefur haft til umráða verður tekinn í notkun fyrir almenna eldsneytisafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. Á svokölluðu austursvæði eru þrír olíugeymar. Olíu- dreifing notar tvo þeirra og Gæslan hefur fengið að nota þann þriðja. „Vegna aukinna umsvifa þurftum við að losa þennan geymi. Það varð ofan á að við keyptum olíuna. Við munum síðan endurselja hana. Það fer eftir gæðunum hvaða verð við fáum,“ segir Hörður Gunnarsson, forstjóri Olíudreifingar. Hann segir að það hafi verið komið að við- haldi á þessum geymi og verður ráðist í það í fram- haldinu. Meðal annars þarf að mála geyminn. Meginstarfsemi Olíu- dreifingar er dreifing og birgðahald á fljótandi elds- neyti fyrir eigendur sína, N1 hf. og Olíuverslun Íslands hf. Starfsmenn félagsins eru um 130 talsins á 34 starfs- stöðvum víðsvegar um landið. Tæma þurfti olíutankinn OLÍUDREIFING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Þórhallur Þráinsson, fornleifafræð- ingur og teiknari, veitti á þriðjudag- inn viðtöku heiðursverðlaunum hinnar sænsku Gústavs Adolfs aka- demíu á sviði þjóðmenningar í Upp- sölum. Er það fyrir framúrskarandi teikningar hans af norrænum forn- minjum sem birst hafa í mörgum bókum og fræðigreinum á undan- förnum árum. Eru teikningarnar sagðar sérlega vandaðar og ná- kvæmar og gerðar á fræðilegum grundvelli. Fleiri voru heiðraðir við sama til- efni. Athöfnin var mjög hátíðleg og formföst og voru verðlaunahafar og gestir í kjólfötum eða síðkjólum. Verðlaunin sem Þórhallur fékk auk viðurkenningarskjals nema 45 þúsund sænskum krónum, rúmlega 600 þúsund krónum íslenskum. Búsettur í Svíþjóð í 12 ár Þórhallur er fornleifafræðingur að mennt og var búsettur í Upp- sölum í Svíþjóð um tólf ára skeið. Á þeim tíma gerði hann fjölmargar teikningar af forngripum fyrir sænska fræðimenn og annaðist einn- ig sýningagerð. Teikningar eftir hann hafa birst í Árbók Fornleifa- félagsins hér heima. Þórhallur starf- aði um tíma sem teiknari hjá tölvu- leikjafyrirtækinu CCP og var um skeið formaður fornminjanefndar. Heiðraður Þórhallur Þráinsson með verðlaunaskjalið. Framúrskarandi teikningar  Sænsk akademía heiðrar íslenskan fornleifafræðing  Verðlaunaður fyrir vandaðar teikningar af fornminjum Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Með free@home hefur aldrei verið auðveldara og hagstæðara að stjórna heimilinu, sumarbústaðnum eða fyrirtækinu. Ertu að byggja, breyta eða bæta? Endilega kynntu þér málið. Snjalllausnir – nútíma raflögn SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.