Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 62

Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 prinsessur, meðan þær hefðu kannski frekar áhuga á að vera ill- mennið,“ segir Blær. „Svo blandast klámið inn í þetta því margir karlar gera kröfu um að konur séu hvort tveggja í senn Disney-prinsessa og klámstjarna,“ segir Haraldur. „Í verkinu erum við bæði að leika ýktar ofurhetjur og förum líka í öfg- arnar á kynjahlutverkum,“ segir Blær. „Við komumst að því að þessi leikur væri það sem persónur verks- ins héldu að þær ættu að vera í til að geta funkerað,“ segir Haraldur. „Og líka hvernig þeim líður þegar þau eru á einhverjum efnum, því þá líður þeim eins og ofurhetjum. Í augum hvort annars líður þeim líka eins og ofurhetjum. Þegar maður er í sinni fyrstu ástarvímu verður hin mann- eskjan svo ógeðslega æðisleg,“ segir Blær. „Ástarvíman kallast líka á við vímuna sem fíkniefni framkalla. Þeg- ar kemur að sterkum efnum eru neytendur alltaf að reyna að endur- lifa fyrstu vímuna. Persónur verks- ins eru með sama hætti alltaf að reyna að endurheimta spennuna sem ríkti þegar þau kynntust fyrst,“ segir Haraldur. Mér skilst að verkið sé að hluta sjálfsævisögulegt en höfundur þekk- ir af eigin raun heim fíknarinnar og byggir atburðarás á minningum og tilfinningum úr eigin lífi og fortíð. Var það eitthvað sem þið rædduð á æfingatímabilinu? „Hann var ótrúlega opinskár um sína reynslu og var ekkert að skafa utan af hlutunum. Stundum efuð- umst við um sannleiksgildi hluta þar sem þeir virkuðu svo fjarstæðu- kenndir en þá gat hann upplýst okk- ur um að svona væri þetta í raun,“ segir Haraldur og tekur fram að vissulega taki höfundur sér líka skáldaleyfi til að þjóna verkinu. „Eft- ir því sem á æfingaferlið hefur liðið höfum við síðan auðvitað gert efnið að okkar,“ segir Haraldur. Vinir frá fimm ára aldri Höfundur leikur sér í líka mark- visst með samspil veruleikans og leikhússins. Hvernig upplifið þið þann leik? „Þessi leikur skapar óræðni og óvissu í verkinu sem er mjög spenn- andi. Við erum leikarar inni í leik- rými með búninga og leikmuni sem við kannski notum eða ekki. Stund- um erum við sem Blær og Haraldur á sviðinu bara að leika okkur – eins og í leikskólanum í gamla daga,“ seg- ir Blær og rifjar upp að þau Haraldur hafi þekkst síðan þau voru fimm ára, en þau kynntust á leikskól- anum Grænuborg. „Við ætluðum að gifta okkur,“ seg- ir Haraldur kíminn og bendir á þá skemmtilegu tilviljun að þau leiki ekki aðeins par í Tvískinnungi heldur einnig í leikritinu Kæru Jelenu sem frumsýnt verður eftir áramót. „Við vissum hvort af öðru á grunn- skólaárunum og hittumst síðan aftur í MH þar sem við stofnuðum saman leikhópinn Maddý ásamt fleiri krökkum sem eru að gera góða hluti í leiklist í dag, þeirra á meðal eru Tyrfingur Tyrfingsson og Kolfinna Nikulásdóttir,“ segir Blær. „Samband okkar byggist því á trausti sem nýtist vel í allri sköp- unarvinnunni,“ segir Haraldur. „Þessi sýning byggist að stórum hluta á því sem er á milli leikaranna frekar en hvað leikarinn er að gera. Ég held að sú orka sem er á milli okkar sé mjög dýrmæt. Orkan sem við færum inn í þetta verk byggist á leikgleði og er að einhverju leyti barnaleg orka sem hentar þessu verki fullkomlega, af því að þetta er verk um fólk sem á erfitt með að þroskast og er að einhverju leyti börn en á sama tíma laust við sak- leysi. Þau algjörlega éta í sig sakleysi hvort annars og skemma hvort ann- að,“ segir Blær. „Það er vel þekkt að fólk sem hef- ur verið lengi í rugli og neyslu staðn- ar í þroska,“ segir Haraldur. „Það staðnar í þroska á einhverjum stöð- um en er komið með allt of mikla reynslu á öðrum sviðum. Þannig má segja að það sé í raun orðið mis- þroska,“ segir Blær. Talandi um leikgleði og barnalega orku þá vekur athygli að klifurgrind á hvolfi leikur stórt hlutverk í leik- myndinni sem Sigríður Sunna Reyn- isdóttir hannaði. „Já, þetta er eins og Hljómskála- garðurinn frá helvíti,“ segir Blær kímin og rifjar upp að bæði börn og síðan ungt fólk á djamminu leiki sér að því að klifra í klifurgrindinni í Hljómskálagarðinum. „Þetta verður því allt í senn leikvöllur, leiksvið og leikvangur því þetta er líka bardagi,“ segir Blær. Skemmandi hringekja Hvernig hefur samstarfið við leik- stjórann verið?Höfðuð þið unnið með honum áður? „Nei, bara verið aðdáandi úr fjar- lægð,“ segir Haraldur. „Ég líka, enda dáðst að honum sem listamanni lengi, hvort heldur sem leikari, leik- stjóri eða handritshöfundur. Ég var því mjög spennt að fá að vinna með honum,“ segir Blær og tekur fram að Ólafur Egill hafi komið sér á óvart. „Fyrirfram hélt ég að hann væri sem leikstjóri algjör púki, svona í anda Tyrfings. En svo reyndist hann vera með stærsta hjarta í heimi og opnaði sig algjörlega fyrir okkur frá fyrsta degi. Eftir á að hyggja er það örugg- lega lykillinn að því að hann hefur einstakt lag á að fanga það sem er spennandi, ögrandi og á köflum ljótt,“ segir Blær. Hvað haldið þið að áhorfendur fari út með að sýningu lokinni? „Ég vona að sýningin veki áhorf- endur til umhugsunar um sjálfa sig og aðra í kring sem eru í vanda,“ seg- ir Haraldur. „Mér líður eins og við séum óvart að hitta á einhverja öldu í samfélaginu þar sem fíkn er til skoð- unar, enda er þetta aðkallandi mál- efni sem vert er að skoða,“ segir Blær og nefnir í því samhengi kvik- myndina Lof mér að falla og sjón- varpsþættina Lof mér að lifa. „Styrkur Tvískinnungs felst í því að sýna gráa svæðið, hvað hlutirnir eru alltaf mismunandi gráir í stað þess að vera svart/hvítir. Áhorfendur geta horft á sömu senuna og hugsað með sér að Haraldur sé fáviti eða Blær tussa og sveiflast milli þess að finnast þetta geðveikt partí eða hálf- ógeðslegt, því þannig er lífið,“ segir Blær og bætir við: „Von mín er að áhorfendur geti fengið kaþarsis eða tilfinningalega útrás þegar þeir verða vitni að þessu eitraða sam- bandi við annað fólk og hluti.“ „Það væri líka óskandi að áhorf- endur sem sjálfir eru í rugli eða of- beldissambandi fái kjark til að standa með sjálfum sér,“ segir Har- aldur. „Þetta er samt ekki forvarnar- verkefni. Við erum ekki að predika eða móralísera. Ég vona bara að fólk tengi við aðstæður og lýsingar verks- ins, hvort sem það þekkir ofbeldis- samband af eigin raun eða afspurn. Uppfærslan sýnir áhorfendum hversu auðvelt er að detta í end- urtekinn vítahring samskipta. Ef ég á að tala fyrir sjálfa mig þá elska ég að djamma og gæti gert miklu meira af því en ég geri. En hvert og eitt okkar verður að meta hvenær við er- um hætt að fá eitthvað út úr hlut- unum og dottin í skemmandi hring- ekju,“ segir Blær. „Persónur verksins geta ekki hætt saman af því þær eru fastar í munstri og eru hræddar við að fara út af sporinu, sem er nokkuð sem allir tengja við,“ segir Haraldur að lokum. Ljósmynd/Grímur Bjarnason Hlutverkaleikur Haraldur Ari Stefánsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir sem Járnmaðurinn og Svarta ekkjan. „Líður eins og ofurhetjum“  Borgarleikhúsið frumsýnir Tvískinnung eftir Jón Magnús Arnarsson í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar  Verk sem fjallar um fíkn, óra, ástríður, þráhyggju og öfgar á kynjahlutverkum VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Tvískinnungur nefnist nýtt íslenskt leikrit eftir Jón Magnús Arnarsson í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar sem frumsýnt verður á Litla sviði Borgarleikhússins annað kvöld. Verkinu er lýst sem einvígi þar sem tveir leikarar takast á við tvísaga for- tíð. Undir krauma ólgandi fíknikvika, tilfinningar og ástríður, þráhyggja, órar og líka spurningin um sjálfs- mynd og -vitund. Blaðamaður settist niður með Haraldi Ara Stefánssyni og Þuríði Blævi Jóhannsdóttur sem leika í uppfærslunni. „Í grunninn fjallar verkið um það að bera ábyrgð á eigin lífi, hvort heldur það er innan sambands eða í tengslum við misnotkun efna. Þegar upp er staðið hvílir ábyrgðin á hverju og einu okkar. Verkið spyr þeirrar spurningar hvort persónurnar tvær sem fjallað er um séu óhamingju- samar hvor í sínu lagi eða geri hvor aðra óhamingjusama saman. Þau eru föst í sjálfmeðvituðum sjálfshat- ursspeglasal, eins og skáldið sagði. Þau gera í því að brjóta hvort annað niður og beita til þess bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi. Þess vegna er við hæfi að verkið sé krefjandi bæði and- lega og líkamlega,“ segir Haraldur og tekur fram að þau Blær séu bæði lemstruð eftir átök síðustu vikna. Vilja endurheimta spennuna Járnmaðurinn og Svarta ekkjan úr persónugalleríi Marvel eru meðal hlutverka sem þið bregðið ykkur í í sýningunni. Getið þið sagt mér meira frá hlutverkaleikjunum sem persón- ur verksins stunda? „Á æfingatímanum ræddum við talsvert um þau hlutverk sem fólk bregður sér í og hefur væntingar um í samskiptum við hitt kynið. Hvernig stelpur dreymir um rómantíska Disney-prinsinn á hvíta hestinum,“ segir Haraldur. „Mín upplifun er sú að konum finnist að gerð sé krafa til þeirra um að þær séu Disney- MIÐNÆTURSPRENGJA AFSLÁTTUR AFÖLLUM VÖRUMALLANDAGINN Í KRINGLUNNI 20%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.