Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 75
MENNING 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
Halloween, mynd JohnsCarpenter frá 1978, erbrautryðjandaverk.Myndin hratt af stað
gullöld slægjunnar (e. slasher) sem
einkenndi áttunda og níunda áratug-
inn í bandarískri kvikmyndagerð. Í
slægjumyndum er hópur ungmenna
eltur á röndum af sturluðum og
gjarnan grímuklæddum morðingja
sem murkar úr þeim lífið með fallísku
eggvopni.
Nú 40 árum síðar er komin (enn
önnur) ný Halloween-mynd. Hallo-
ween hefur þvælst í gegnum ótal
framhaldsmyndir og endurgerðir þar
sem gæðin eru rýr. Þessi mynd tekur
ekki tillit til þessara endurgerða, er
bara framhald af fyrstu myndinni frá
1978 og Jamie Lee Curtis snýr aftur í
hlutverki Laurie, sem varð fyrir
barðinu á hinum skelfilega morðingja
Michael Myers í frummyndinni.
Myndin hefst á því að blaðamenn
sem eru að vinna að hlaðvarpi taka
hús á Michael og geðlækni hans á
geðspítalanum þar sem hann hefur
dvalið síðustu 40 ár. Þau vilja endi-
lega fá hann í viðtal, sem er að sjálf-
sögðu borin von, því eins og allir
kunnugir seríunni vita þá segir Mich-
ael ekki eitt aukatekið orð í einni ein-
ustu mynd. Geðlæknirinn tjáir þeim
að það séu flutningar framundan hjá
Michael, það á flytja hann á nýja
stofnun. Líkt og búast má við ganga
flutningarnir ekki sem skyldi og
Michael kemst aftur á kreik.
Við kynnumst Laurie og fjölskyldu
hennar. Líf hennar er ein rjúkandi
rúst eftir hrekkjavökunóttina skelfi-
legu, hún hefur brennt allar brýr að
baki sér og Karen dóttir hennar vill
ekkert með hana hafa. Karen reynir
eftir fremsta megni að hlífa dóttur
sinni, Allyson, við samskiptum við
ömmu sína. Allyson er ákveðin ung
menntaskólastúlka sem eyðir tíma
sínum í hefðbundna unglingaiðju, að
hanga með kæró og vinum. Í gegnum
myndina fylgjumst við með þessum
þremur kynslóðum kvenna og spenn-
an magnast eftir því sem Michael
nálgast.
Illskan þegir
Hver er Michael Myers? Michael er
þögull grímuklæddur morðingi sem
drepur fórnarlömb sín með hníf, með
tilheyrandi blóðbaði. Fyrsta morðið
framdi hann einungis sex ára gamall,
þegar hann stakk systur sína til bana.
Michael er sem sagt fæddur morð-
ingi, það er hans eina köllun, það er
tilgangur hans í lífinu. Hann birtist
og hverfur líkt og fyrir töfra og nær
alltaf að koma fórnarlömbum sínum í
opna skjöldu. Sama þótt þú hlaupir
burt eins og þú eigir lífið að leysa þá
mun hann ná þér þó svo hann hlaupi
lítið sjálfur. Michael er meira en mað-
ur, meira en morðingi, hann er allt-
umlykjandi gjöreyðingarafl. Hann er
ekki bara djöfull í mannsmynd, hann
er djöfullinn sjálfur.
Síðasta stúlkan
Í bókinni Men, Women and Chain-
saws (1992) skoðar kvikmyndafræð-
ingurinn Carol Clover hryllings-
myndir í femínísku ljósi. Hún varpar
því fram að iðulega hafa slægjumynd-
ir verið túlkaðar sem kvenfjandsam-
legt kvikmyndaform. Í þeim eru kon-
ur sem eru kynferðislega virkar strá-
felldar af bandóðum karlkyns morð-
ingja. Yfirleitt lifir af ein ung kona,
„síðasta stúlkan“ (e. final girl) og
sigrast á morðingjanum eftir að hafa
horft upp á alla í kringum sig myrta
og situr svo uppi með ömurlega lífs-
reynslu. Sölutölur sýna að meirihluti
þeirra sem sækja svona myndir eru
ungir karlmenn og því ekki undarlegt
að álykta að þessar myndir höfði til
duldra sadískra kennda í karlmönn-
um. Clover heldur því hins vegar
fram að þessu sé öfugt farið, þessar
myndir höfði frekar til masókískra
kennda, að áhorfendur finni frekar til
samkenndar með þeim sem verður
fyrir ofbeldi (síðustu stúlkunni) held-
ur en þeim sem fremur ofbeldið. Þótt
slægjumyndin sé ekki femínískt form
í sjálfu sér þá var hún á sínum tíma,
þegar kvikmyndaformið var afar
karlmiðað, einn af fáum vettvöngum
þar sem kvenkyns sjónarhorn var í
brennidepli.
Í ljósi þessa er viðeigandi að nýja
Halloween-myndin hafi femíníska
slagsíðu. 40 ár eru liðin frá því Laurie
upplifði hið hræðilega hrekkjavöku-
kvöld árið 1978. Hún hefur eytt æv-
inni í að vígbúast gegn illsku heimsins
og heimili hennar er líkt og virki. Hún
klúðraði uppeldinu á dóttur sinni með
því að þjálfa hana í meðferð skot-
vopna og bardagalistum svo hún væri
við öllu búin. Allir telja hana vera
snaróða og fjölskylda hennar biðlar
til hennar að gleyma þessu bara, til að
halda áfram með líf sitt. Vegferð Lau-
rie er líkt við vegferð þolenda kyn-
ferðisofbeldis, sem eru fastir í við-
stöðulausri áfallastreituröskun.
Í myndinni birtast sjónarhorn
þriggja kynslóða kvenna, ömmu,
mömmu og dótturdóttur. Þegar í
harðbakkann slær eru það svo þrjár
konur sem taka höndum saman til að
sigrast á morðingjanum, þær einar
geta boðið illskunni birginn.
Úrvinnsla endurvinnslu
Ég beið eftir þessari mynd með nokk-
urri eftirvæntingu enda með veikan
blett fyrir Jamie Lee Curtis og hroll-
vekjum af öllu tagi, sér í lagi slægju-
myndum. Hins vegar hef ég ekki ver-
ið sérstaklega gefin fyrir endurgerðir
í gegnum tíðina og er ekki alltaf
reiðubúin að gefa þeim séns. Hér hef-
ur þó tekist glettilega vel til og þessi
kvikmynd skarar í það minnsta fram
úr öllum hinum framhaldsmyndunum
og endurgerðunum í seríunni.
Hér er haldið tryggð við þá B-
myndastemningu sem ríkir í slægju-
myndum yfirleitt, gríni og hallæris-
leika er gefið ákveðið pláss, sem er
ánægjulegt. Morðin eru skrautleg og
kvikmyndatökuvinnan í kringum þau
oft mjög lífleg og óvænt.
Kvikmyndin er afar spennandi og
þar spilar tónlist John Carpenter
stóra rullu. Carpenter hefur oftar en
ekki samið tónlistina í myndum sín-
um og hefur einstakt lag á að skapa
hryllilegan og spennuþrunginn hljóð-
heim. Tónlistin í upprunalegu Hallo-
ween-myndinni er fyrir löngu orðin
klassík og hér birtist hún að nýju,
endurmögnuð og löguð að nútíman-
um.
Handritið er ekki gallalaust, þar er
nokkuð um lausa enda og svolítið
pirrandi að þeir séu aldrei hnýttir.
Halloween er engu að síður hin
besta skemmtun og afar viðeigandi
hrekkjavökuáhorf.
Djöfullinn sjálfur
Endurkoma Jamie Lee Curtis snýr aftur í hinni nýju Halloween og sést hér glíma við raðmorðingjann Myers.
Smárabíó, Laugarásbíó, Borg-
arbíó og Sambíó Álfabakka.
Halloween bbbbn
Leikstjóri: David Gordon Green.
Handrit: David Gordon Green, Danny
McBride, Jeff Fradley. Kvikmyndataka:
Michael Simmonds. Klipping: Timothy
Alverson. Aðalhlutverk: Jamie Lee Curt-
is, Judy Greer, Andi Matichak, Haluk
Bilginer. 106 mín. Bandaríkin, 2018.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Haustsýning Grósku verður opnuð í
kvöld kl. 20 í sýningarsal Grósku á
2. hæð á Garðatorgi í Garðabæ.
„Um þessar mundir hvílir mikil
leynd yfir listsköpun myndlistar-
manna Grósku sem keppast við að
undirbúa hina árlegu haustsýningu
samtakanna. Þema sýningarinnar
er algert leyndarmál og vafalaust
leynist því ýmislegt óvænt í lista-
verkunum,“ segir í tilkynningu um
sýninguna. Tækifæri muni því gef-
ast til að hitta leyndardómsfulla
listamenn Grósku og þiggja veit-
ingar. Sýningin verður opin 9.-11.
nóvember kl. 12-18.
Gróska er félag myndlistar-
manna í Garðabæ sem var stofnað í
þeim tilgangi að gera listsköpun
sýnilegri í bæjarfélaginu. Félagið
heldur árstíðabundnar sýningar og
stendur einnig fyrir fleiri sýningum
sem eru breytilegar milli ára. Um-
fangsmest er Jónsmessugleðin sem
haldin er við Strandstíginn við Sjá-
landshverfið í Garðabæ en þangað
streyma þúsundir gesta á hverju
ári, að því er segir í tilkynningu.
Gróska stendur einnig fyrir opnum
fyrirlestrum um myndlist og menn-
ingu og námskeið eru einnig haldin
fyrir félagsmenn.
Landslag Hluti verks eftir Birgi Rafn á haustsýningu Grósku.
Haustsýning Grósku opnuð
Holtagörðum-Lóuhólum-Akureyri-Selfossi-
Bolungarvík-Vestmannaeyjum
ÞÚ FÆRÐ
HJÁ OKKUR!
S; 537-5000 dyrarikid@dyrarikid.is
ICQC 2018-20