Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 ✝ Ragnar Þor-steinsson fædd- ist 4. nóvember 1934 á Akranesi. Hann lést á Land- spítala við Hring- braut 31. október 2018. Foreldrar hans voru Þorsteinn Kristján Sigurðs- son, f. 2. ágúst 1904, d. 1. mars 1987, og Guðmundína Kristjáns- dóttir, f. 14. september 1907, d. 8. maí 1995. Ragnar var þriðji í röð fjögurra bræðra. Elstur er Sigurður, f. 1931, annar í röð- inni var Kristján, f. 1932, d. 2017, og yngstur er Hallgrímur, f. 1941. Ragnar kvæntist eftirlif- andi eiginkonu sinni, Steinvöru Bjarnadóttur, þann 28. mars 1959. Börn þeirra voru fimm. 1) Bjarni, f. 27. nóv. 1950, d. 25. þeirra eru a) Ragnar, f. 1977, faðir hans er Þórður Einarsson, b) Bragi, f. 1981, c) Rakel Dögg, f. 1986. 4) Ragnheiður, f. 10. jan. 1967. Dóttir hennar er Giovanna Steinvör, f. 1996. Faðir hennar er Arcangelo Mario Cuda. 5) Þorsteinn Kristján, f. 19. júní 1971. Kona hans er Paula A. Sánches. Börn þeirra eru a) Snæfríður Adda, f. 1992, móðir hennar er Kristín Gunnars- dóttir, b) Angéles Steinvör. Barnabarnabörnin eru 19 tals- ins og að auki er eitt barna- barnabarnabarn. Ragnar og Steinvör hófu bú- skap í Reykjavík en fluttu til Hafnarfjarðar árið 1970 þar sem þau bjuggu æ síðan og lengst af á Miðvangi 89. Síðustu æviár hans bjuggu þau á Berja- völlum 2. Ragnar tók meistarapróf í vélvirkjun og starfaði alla tíð við iðn sína. Lengst af hjá Íslenska álfélaginu eða frá 1969 og þar til hann fór á eftirlaun 2001. Útför Ragnars fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, 8. nóvember 2018, klukkan 11. nóv. 2010. Kona hans er Sigurveig Helga Hafsteins- dóttir og eiga þau tvö börn a) Maríu, f. 1975, b) Steinar, f. 1980. Fyrir átti Bjarni Anettu Rós, f. 1971, móðir henn- ar er Hulda Björg Sædal Lúðvíks- dóttir. 2) Guðmund- ína, f. 28. okt. 1958. Maður hennar er Viggó Valde- mar Sigurðsson. Börn Guð- mundínu eru a) Margrét Elín, f. 1977, faðir hennar er Sigurður Grettir Erlendsson, b) Þórður Eric, f. 1984, c) Bjarni Aron, f. 1988, faðir þeirra er Þórður Er- ic Hilmarsson, d) Uni Marinó, f. 1999, faðir hans er Karl Marinósson. 3) Guðbjörg Elín, f. 6. júní 1960. Maður hennar er Bragi Þorsteinn Bragason. Börn Fallegi, yndislegi pabbi minn er dáinn. Ég er orðin harðfull- orðin en mér líður eins og litlu stelpunni hans pabba nú þegar minningarnar streyma fram í hugann, hver á eftir annarri. Ég er skælandi lítil stelpa af því að pabbi er að fara út á sjó eftir allt of stutt stopp í landi. Ég er 11 ára að keppa í hlaupi og pabbi er á hliðarlínunni að hvetja mig áfram. Ég er ung móðir og ekk- ert nafn kom til greina á dreng- inn nema nafnið hans pabba. Ég er ung kona að ganga inn kirkju- gólfið í Garðakirkju og pabbi leiðir mig svo styrkur, svo stolt- ur. Ég er ferðafélagi, söngsystir, vinur, dóttir. Ég átti yndislegan föður. Pabbi ólst upp í hópi fjögurra bræðra og ástríkra foreldra á Langholtsvegi 31. Í litlu húsi sem þó gat rúmað alla stórfjöl- skylduna á jóladag. Garðurinn yndislegur, gróðursæll og falleg- ur. Pabbi var strax mikill orku- bolti sem barn. Stór og sterkur og fjallmyndarlegur. Brún, stór augun svo mild og við fjölskyld- an stríddum honum á „rúllu- gardínunum“ – stóru augnlok- unum sem sigu þegar þreytan sagði til sín. Pabbi hafði alla tíð mikinn áhuga á íþróttum og æfði handbolta með Val sem strákur og unglingur. Hann munaði ekki um að hlaupa með þunga kola- poka á öxlunum langar vega- lengdir áður en hann skokkaði á æfingu. Hann fylgdist með íþróttaferli afkomenda sinna af miklum áhuga. Pabbi kunni allt og gat allt. Þannig var það bara. Alltaf fyrstur á vettvang þegar við börnin hans þurftum aðstoð. Pabbi var mikið hreystimenni og þegar ég var nokkurra ára stelpuskott og Ómar Ragnars- son söng um „pabba sinn sem var sterkari en pabbi þinn“ fannst mér hann vera að syngja um pabba minn. Pabbi bauð í „krók“ og notaði litla fingur á móti báðum höndum keppi- nautarins og auðvitað vann hann samt. Þegar pabbi var unglingur greindist hann með berkla og tóku þeir sinn toll og sinn tíma. Hann var fjarri ástvinum í nokk- ur ár á þessu viðkvæma aldurs- skeiði, fyrst á Vífilsstaðahæli og svo á Kristneshæli í Eyjafirði þar sem hann var hogginn til þess að vinna á meininu og það tókst. Skömmu eftir veikindin kynntist pabbi mömmu, Stein- vöru Bjarnadóttur, og til þess að tryggja að hún yrði hans bætti hann nokkrum árum við aldur sinn. Hún var nefnilega fjórum árum eldri og það var nú þó nokkuð á þessum tíma. Hann var með fallega söngrödd og söng hann til mömmu þegar hann bað hennar. Hversu róm- antískt er það? Pabbi var hvers manns hug- ljúfi. Hann var orðvar, ljúfur og þægilegur en alls ekki skaplaus. Hann var mikill dugnaðarforkur rétt eins og mamma. Þau byggðu sér fallegan bústað í gróðursnauðri hlíð og þau voru ófá handtökin sem þau lögðu til við að gera staðinn að dásam- legum lystigarði með skjólgóð- um lundum. Það er af mörgu að taka þegar minningar síðustu rúmlega hálfrar aldar leita á hugann. Lokaorð til ástvina verða eitthvað svo tómleg í samanburðinum. Minningarnar lifa áfram og munu ylja mér um hjartarætur um ókomna tíð. Takk elsku pabbi fyrir að vera stoðin og styrkurinn í lífi okkar allra. Hvíl í friði. Þín dóttir, Guðbjörg Elín. Í dag er dagurinn sem ég mun kveðja hann pabba minn. Hann skipaði stóran sess í hjarta mínu og minningin hans mun lifa áfram með mér og mín- um. Pabbi minn var hin týpíska hvunndagshetja, þó það hafi far- ið lítið fyrir honum. Hann var einstakur maður, traustur, tryggur og hlýr og ég er ein- staklega lánsöm að hafa átt hann að. Pabbi minn, þú varst hetjan mín. Fyrsta minningin mín um þig er hlýi faðmurinn þinn sem var alltaf opinn og ég sat í öllum stundum sem lítil stúlka. Ég man hvernig ég hljóp á móti þér þegar þú komst úr vinnunni og hoppaði beint upp í hann og þú greipst mig. Ég man hvernig mér fannst þú langbesti pabbinn af öllum. Þú varst hávaxinn og óvenju myndarlegur maður, með svarta hárið þitt og dökkbrúnu augun. Þú varst sterkastur af öllum í heiminum og mér fannst þú geta allt. Við sátum og spil- uðum, þú stríddir mér og þóttist fara í krók og ég fékk stundum að hjálpa til þegar þú varst að dudda í bílskúrnum. Alltaf var pláss fyrir litlu stelpuna þína, elsku pabbi. Bernskuminningarnar víkja svo fyrir unglingaminningunum sem er eina tímabil lífs míns sem ég hef deilt við þig. Ég man þeg- ar ég særði þig fyrst, þú sast uppi í sjónvarpsherbergi og opn- aðir faðminn sem ég hafði setið í á hverju einasta kvöldi fram að þessari stund en ég ákvað að ég væri orðin of stór fyrir faðminn og settist í stól við hliðina. Ég man enn hvað mér leið illa því ég sá að ég hafði sært þig, því ég sá það í augunum þínum. En sem betur fer varst þú nú yf- irleitt sáttur við mig þó röddin hafi hækkað þegar ég kom ekki á réttum tíma heim eða litaði á mér hárið. Á fullorðinsárunum höfum við átt einstaka vináttu. Við gátum spjallað um daginn og veginn, um allt og ekkert. Við gátum líka þagað saman og látið nær- veruna duga, eða bara hlegið eins og bjánar að einhverri vit- leysunni. Þú varst alltaf reiðubú- inn að hjálpa, það var alveg sama hvað ég tók mér fyrir hendur, alltaf varstu mættur á staðinn og gerðir allt sem þú gast, hvort sem það var að mála, bera, græja eitthvað, gera við bíla eða bara hvað sem er. Þú varst enn að hjálpa mér þegar ég flutti í Eskihlíðina fyrir fjór- um árum, alltaf mættur fyrstur á staðinn og alltaf að gæta að því að hlutirnir gengju rétt fyrir sig fyrir litlu stúlkuna þína. Pabbi minn, þú gladdist með mér þegar vel gekk, hlustaðir á mig þegar mér leið illa, ráðlagðir mér þegar ég vissi ekki hvað ég ætti að gera og huggaðir mig þegar ég þurfti á stuðningi að halda. Ég á alltaf eftir sakna þín. Ég elska þig, pabbi minn. Litli unginn þinn, Ragnheiður. Elsku pabbi minn. Ferðalagi þínu á þessari jörð er nú lokið, lífsbókin þín fullskrifuð. Þótt liggi fyrir öllum að yfirgefa þessa jörð, þá kemur dauðinn alltaf á óvart þegar hann hrifsar ástvini í burtu. Enginn fær unn- ið dauðastríðið en ég hélt þó í vonina um að þú gætir það, al- veg eins og þegar ég var lítil og trúði því að pabbi gæti allt í heiminum. Ég er harmi slegin eins og allir sem elskuðu þig og nutu þeirrar gæfu að þekkja þig og að vera samferða þér í lífinu. Það er sárt að horfa á eftir þér en ég er þakklát fyrir að þú ert laus við kvalir sem lagðar voru á þig síðustu vikurnar. Þú sagðir okkur systkinum skemmtilegar sögur úr uppvexti þínu, sveip- aðir þær ævintýrablæ. Snemma fórstu að vinna, og hljópst með níðþunga kolapoka á heimilin í hverfinu, sundreiðst bikkjum yf- ir Elliðaárnar, hljópst svo á handboltaæfingar hjá Val. Þú varst gæfusamur að eiga þrjá samheldna bræður og yndislega foreldra. Ungur fékkstu berkla og varst fjarri fjölskyldunni í einangrun, á Vífilsstöðum og í Kristnesi fyrir norðan. Þú jafn- aðir þig af berklunum og fljót- lega þar á eftir kynntist þú mömmu og börnin komu eitt af öðru. Samhliða vélstjóranámi, fasteignakaupum og síðar hús- byggingum lögðuð þið bæði mikið á ykkur fyrir heimilið. Þú sigldir um heimsins höf, vannst í Svíþjóð þegar atvinnuleysi var hér. Ég man eftir öllu namminu sem þú komst með frá útlönd- um, T-bone steikum og TV-mat á bökkum. Þú hafðir með ein- dæmum ljúfa lund, hógvær og þolinmóður. Þú lést okkur börn- unum líða eins og við værum hvert og eitt þitt uppáhalds- barn. En lífið var ekki bara vinna. Ótal minningar ylja. Úti- legur, fyrst í litlu tjaldi, síðan kom stærra og loks tjaldvagn. Svaðilfarir í bílum yfir lækjar- sprænur og ár sem þú hafðir svo gaman af. Bústaðurinn í Grafningnum, þar sem fjöl- skyldan átti ótal gæðastundir saman. Þú varst ákaflega söng- elskur, með sterka og fagra tenórrödd og sungum við saman uppáhaldslögin þín og mömmu. Þú gerðir aldrei mannamun og komst fram við alla eins og jafn- ingja. Yfirvegaður, umhyggju- samur og ákaflega hjálpsamur okkur börnunum sem og öðrum. Þú varst „alt mulig mand“ með mikið verksvit. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að hafa getað verið hjá þér síðustu dagana, þar sem þú varst umvafinn ást og um- hyggju fjölskyldunnar. Eftir andlát þitt rakst ég á eftirfar- andi orð, sem rituð voru fyrir af- mælisdaginn þinn: „Þið eigið að gleðjast yfir lífinu á hverjum degi, ekki slá því á frest, þar til hann er orðinn að fortíð, að upp- götva að þetta voru yndislegar stund- ir! Treystið ekki á hamingju ókominna daga. Því eldri sem maður verður þeim mun betur finnur maður að það að njóta andartaksins er náð, gjöf gulli betri.“ (Gullkorn: María Curie) Þetta er svo satt, pabbi minn. Þú lifir að eilífu í hjarta mínu. Við hittumst á ný og syngjum saman Hrísluna og Denna Martin. Þangað til get ég glaðst yfir öllum minningunum um þig. Ég bið góðan guð að vaka yfir og gefa mömmu og fjölskyld- unni styrk á þessum erfiðu tímum. Þín dóttir, Guðmundína (Dína). Hvernig minnist maður gulls af manni sem var alltaf til stað- ar? Ekki hitta oftar, ekki finna, ekki heyra? Ágúst 1980. Stelpuskottið sem ég var að kynnast þurfti að komast úr Þjórsárdalnum í Grafninginn og mæta í afmæli mömmu. Ég og félagar buðumst til að skutla. Sólríkur dagur, skemmtilegt ferðalag og um miðjan dag mættum við í sumarbústaðinn í Grafningi, hvar ég síðar átti eftir að upplifa afskaplega skemmtilega tíma í faðmi alltumlykjandi væntum- þykju tengdaforeldra. Fjölda fólks dreif að, Steinka á fullu upp í bústað að taka á móti og bjóða veitingar. Ragnar stóð niður við veg og tók á móti ferðalöngum og vísaði til bíla- stæða og gistingar. Við galvösk og glöð og svo augljóst á öllu hjá Ragnari að hann var mjög glað- ur að sjá einn af gimsteinunum sínum mæta. Tók þétt utan um dóttur sína og kyssti, brosti og klappaði henni á kollinn og benti henni upp slóðann til veislu. Ég hélt að hann væri glaður að sjá okkur strákana en næst sneri hann sér að mér, hallaði sér að bílnum, horfði hvössum augum inn með brosi á vör, hallaði und- ir flatt eins og töffarar gera og tenórröddin sagði: Jæja strákar mínir. Það er akkúrat hérna sem þið snúið við, hægt og hljótt svo lítið beri á og látið ykkur hverfa. Á eftir kom glottið með ákveðnum svip og hann meinti þetta fullkomlega. Við hlýddum án þess að mögla. En ég sneri aftur, ágengur og bað um hönd dótturinnar. Vann mér sess í hjarta tengdó og átti einstakt og fallegt samband við þau það sem eftir lifði. En svona var Ragnar. Gleðin yfir lífinu, gleðskapur í faðmi fjölskyldu, kurteisi við alla, hlýja í sam- skiptum, aldrei orði hallað á ókunna eða nánustu, stoltið og elskan með börnin, væntum- þykja og faðmurinn til að passa og halda utan um sína. Þegar systkinin síðar dæla inn barna- börnum stækkaði hjartað og faðmurinn og alltaf hægt að taka á móti og hjálpa afkomendum. Ragnar var af gamla skólan- um. Hann gat allt, hann hjálpaði okkur öllum með að smíða, múra, pípuleggja, mála, gera við bíla, já bara allt sem maður bað um. Bóngóður með eindæmum og ég held að hann hafi aldrei sagt nei. Ég held að hann hafi aldrei sagt nei við nokkurn þann sem leitaði eftir aðstoð hans. Kannski hlustaði hann ekki á allt sem Steinka sagði en hann gerði allt sem hún bað um. Síð- ustu árin hélt hann utan um Steinvöru sína af æðruleysi manns sem veit það að í blíðu og stríðu gerir maður allt fyrir ást- ina sína. Eitt kláraði Ragnar ekki við mig. Tveimur dögum áður en ég kvæntist dóttur hans stóðu samningaviðræður yfir um heimanmund. Söngvatn var brúkað og Ragnar bauð fimm kíló af kartöflum, sem mér fannst slakt boð, en hann vissi sem var að fjársjóðurinn sem ég fékk þurfti ekki heimanmund. Mér tókst að semja um 10 kíló af skræluðum og skornum. Á lífsgöngunni með Ragnari þáði ég hlýju og traust og þetta óútskýranlega í nánu sambandi sem kannski er vellíðan og ham- ingja. Kartöflurnar fékk ég aldrei. Í dag kveð ég besta tengda- pabbann sem ég þekki. Það eru forréttindi og lærdómur að ganga lífsleiðina með manni eins og Ragnari. Hvíl í friði. Bragi Bragason. Mig langar til að minnast Ragnars Þorsteinssonar, góðs vinar og ferðafélaga gegnum árin. Ragga og Steinku, konunni hans, kynntist ég gegnum mann- inn minn, en þeir Raggi unnu á sama vinnustað. Við áttum sam- eiginlegt áhugamál sem var að ferðast og ásamt fernum öðrum hjónum stofnuðum við ferða- klúbb og ferðuðumst víða, bæði innanlands og utan. Ég á marg- ar góðar minningar úr þessum ferðum. Raggi var góður félagi og hrókur alls fagnaðar. Þannig hittist á að við urðum nágrannar þegar við fluttum á Vellina í Hafnarfirði. Þá varð samgangurinn meiri og reyndust Raggi og Steinka mér vel eftir að ég missti manninn minn. Síðustu árin hefur félögum í ferðaklúbbnum fækkað og ferða- lögin lagst af. Eftir að ég flutti í Hveragerði höfum við aðallega haldið sambandi í síma til að fylgjast hvert með öðru. Ég vil að lokum þakka Ragga fyrir samfylgdina og senda Steinku og fjölskyldunni allri samúðarkveðjur. Sigrún Helga (Rúrý). Ragnar Þorsteinsson Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Ástkær faðir okkar og sambýlismaður, ÞORSTEINN SVEINSSON, fv. kaupfélagsstjóri, Hamrahlíð 1, Egilsstöðum, lést föstudaginn 2. nóvember á hjúkrunarheimilinu Dyngju, Egilsstöðum. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 10. nóvember klukkan 11. Hólmfríður, Sveinn, Guðríður, Þorbjörg, Magnús Guðlaug Guttormsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA S. SVEINSDÓTTIR, lést mánudaginn 29. október á Hrafnistu, Reykjavík, (Mánateigi). Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 9. nóvember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Alzheimersamtökin. Sveinn Heiðar Gunnarsson Sigríður Jakobsdóttir Pálmar Smári Gunnarsson Norisa Suana Gunnarsson Kristján Ragnar Gunnarsson Gréta Ebba Bjargmundsdóttir Heimir Örn Gunnarsson Helena Vignisdóttir barnabörn og barnabarnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.