Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
hvítar konur í úthverfum, en met-
fjöldi kvenna situr í fulltrúadeild
þingsins eftir kosningarnar.
Demókrötum tókst að ná til kjós-
enda á þéttbýlum svæðum, þ.e.a.s. í
borgum og úthverfum og
náðu fulltrúadeildarþingsætum
repúblikana í mörgum kjördæmum
Kólóradó, Flórída, Kansas, Minne-
sóta, New Jersey, Pennsylvaníu,
Texas og Virginíu. Framan af nóttu
bar þó lítið á sókn demókrata, en
þeir þurftu að bæta við sig 23 þing-
mönnum til að ná meirihluta. Um
klukkan tvö að íslenskum tíma hófu
tíðindi að berast um að þeir hrifs-
uðu til sín sæti repúblikana, einkum
í Pennsylvaníu, og þegar þetta er
skrifað hafa demókratar náð til sín
27 sætum sem þeir höfðu ekki áður.
Brött brekka fyrir demókrata
Repúblikanar sóttu meira fylgi til
strjálbýlli svæða og fljótt varð ljóst
að vonir demókrata um meirihluta í
öldungadeildinni yrðu ekki að veru-
leika. Fyrir fram var ljóst að brekk-
an yrði brött fyrir demókrata, m.a.
vegna þess að Donald Trump vann
fyrir tveimur árum sigur í þeim
ríkjum sem kosið var um, en mörg
þeirra eru tiltölulega strjálbýl.
Einnig lá fyrir að repúblikanar
þyrftu aðeins níu sæti til að tryggja
meirihlutann, en demókratar 28
sæti.
SVIÐSLJÓS
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Óhætt er að segja að valdahlutföll í
bandarískum stjórnmálum hafi tek-
ið talsverðum breytingum í mið-
kjörtímabilskosningum vestanhafs í
gær. Kosið var um öll 435 sæti full-
trúadeildar Bandaríkjaþings, 35 af
100 sætum öldungadeildar og emb-
ætti 36 ríkisstjóra. Hvert ríki á tvo
öldungadeildarþingmenn, en fjöldi
fulltrúadeildarþingmanna fer eftir
íbúafjölda ríkjanna. Hvert ríki hef-
ur minnst einn fulltrúa í fulltrúa-
deild. Demókrötum tókst þó ekki að
ná meirihluta í báðum deildum
bandaríkjaþings með hinni „bláu
bylgju“ líkt og þeir vonuðust til fyr-
ir kosningar.
Repúblikanar bættu við sig
Um 100 milljónir Bandaríkja-
manna tóku þátt í kosningunum
sem höfðu verið taldar þjóðarat-
kvæðagreiðsla um embættisverk
Donald Trump, Bandaríkjaforseta.
Kjörsóknin var því um 50% sem er
hæsta kjörsókn í mið-kjörtímabils-
kosningum í áratugi. Milli 60 og
65% sögðu í aðdraganda kosning-
anna að þeir greiddu atkvæði
Trump til stuðnings eða til að mót-
mæla honum.
Demókratar náðu meirihluta í
fulltrúadeildinni í fyrsta sinn í átta
ár og repúblikönum tókst að bæta
við sig þremur sætum í öldunga-
deildinni og tryggja meirihluta
sinn. Þegar Morgunblaðið fór í
prentun höfðu demókratar 222
þingsæti og repúblikanar 199 í full-
trúadeildinni, en í öldungadeildinni
höfðu repúblikanar 51 sæti og
demókratar 46, að sögn CNN.
Kannanir höfðu bent til niðurstöðu í
þessa átt, en sókn repúblikana í
öldungadeildinni var þó ívið meiri
en búist hafði verið við. Trump
sagði í færslu á Twitter að þetta
væri aðeins í þriðja sinn sem flokk-
ur forseta bætti við sig þremur
þingmönnum í kosningum í mið-
kjörtímabilskosningum.
Samkvæmt útgönguspám kusu
fleiri konur demókrata, einkum
Í Norður-Dakóta sigraði Kevin
Cramer repúblikani öldungadeild-
arþingmann demókrata, Heidi Heit-
kamp, og Mike Braun sigraði demó-
kratann Joe Donnelly í Indíana, en
talið var að Indíana væri kjörfylki
fyrir demókrata ættu þeir að ná
meirihluta í öldungadeildinni. Einn-
ig höfðu repúblikanar sigur í Mis-
souri, Kentucky og Flórída, en
Trump vann sigur í öllum þessum
fylkjum árið 2016. Spenna var einn-
ig um Tennessee-ríki, þar sem
Marsha Blackburn repúblikani
hafði sigur gegn Phil Bredesen,
demókrata.
Beto O’Rourke fataðist flugið
Í Texas höfðu demókratar gert
sér vonir um að Beto O’Rourke,
fulltrúadeildarþingmaður demó-
krata, næði að vinna sæti Texas í
Þingdeildum skipt
milli flokkanna
Demókratar unnu sigur í slagnum um fulltrúadeildina
Kosið Kosningar í Bandaríkjunum
fóru fram í gær, en m.a. kosið var
um sæti í fulltrúadeild, öldungadeild
og um ríkisstjórastöður.
Þingkosningar
» Demókratar tryggðu sér
meirihluta í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings.
» Repúblikanar bættu við sig
þremur í öldungadeild þingsins.
» Trump lýsir yfir stórsigri
repúblikana.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Söguleg tíðindi urðu þegar fram-
bjóðendur úr fjölbreyttum hópum
samfélagsins náðu kjöri í Banda-
ríkjunum í gær, þ. á m. úr hópi
ungs fólks, innflytjenda, hinsegin
fólks og frumbyggja. Hlutur kvenna
jókst einnig, en þær eru þó í minni-
hluta í báðum deildum þingsins. 100
konur sitja í fulltrúadeild á næsta
ári, en þær hafa aldrei verið fleiri.
Demókratinn Alexandria Ocasio-
Cortez, 29 ára, varð í gær yngsta
kona til að hljóta kjör í full-
trúadeild.
Sharice Davids í Kansas og Deb
Haaland í Nýju-Mexíkó urðu fyrstu
konurnar af frumbyggjaættum til
að hljóta kjör í fulltrúadeildinni. Í
Miðvesturríkjunum fengu kjör Il-
han Omar, fyrrum sómalskur hæl-
isleitandi, og Rashida Tlaib, dóttir
palestínskra innflytjenda, en þær
eru fyrstu konur sem eru músl-
imatrúar til að hljóta kjör í full-
trúadeildinni. Þá varð Ayanna
Pressley fyrsta svarta konan til að
hljóta kjör sem fulltrúadeild-
arþingmaður Massachusetts.
Jared Polis, frambjóðandi demó-
krata í Colorado, varð fyrsti sam-
kynhneigði ríkisstjóri Bandaríkj-
anna, en fyrrnefnd Sharice Davids
er einnig samkynhneigð.
Fjölbreyttari hópur þingmanna
AFP
Sigur Sharice Davids fagnaði sigri í Kansas í mið-tímabilskosningum í gær.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
sagðist á blaðamannafundi í Hvíta
húsinu í gær vonast til þess að
repúblikanar og demókratar gætu
unnið saman eftir þingkosning-
arnar í landinu í gær, en demó-
kratar náðu meirihluta í full-
trúadeild þingsins.
Trump hrósaði Nancy Pelosi,
leiðtoga demókrata, og sagði hana
eiga skilið að verða forseti full-
trúadeildarinnar. Í twitterfærslu
forsetans kom fram að ef Pelosi
hlyti ekki stuðning demókrata
gæti verið að repúblikanar legðu
henni til atkvæði.
„Vonandi getum við öll unnið
saman á næsta ári og haldið áfram
að vinna fyrir bandarísku þjóðina,
eflt hagvöxt, innviði, viðskipti og
lækkað lyfjakostnað,“ sagði hann.
Trump sagði kjördaginn hafa
verið „stóran“ fyrir repúblikana
enda hefðu þeir aukið við sig í öld-
ungadeild þingsins.
„Repúblikanaflokkurinn vann
sögulegt afrek með því að auka við
meirihlutann í öldungadeildinni og
niðurstaðan í fulltrúadeildinni var
framar vonum,“ sagði hann.
Trump sagði Repúblikanaflokk-
inn hafa verið í verri stöðu fyrir
kosningar, m.a. vegna mikilla fjár-
veitinga til demókrata og hags-
munasamtaka. „Fjölmiðlar hafa
líka verið Repúblikanaflokknum
mjög óhliðhollir, svo ekki sé meira
sagt,“ sagði Trump.
„Fjöldi fulltrúadeildarþing-
manna hætti hjá okkur núna. Þetta
eru sæti sem við hefðum auðveld-
lega getað haldið. Þeir sem komu
nýir inn lögðu hart að sér, en það
er erfitt þegar margir ljúka störf-
um í einu,“ sagði hann.
Spurður hvort hann óttaðist
rannsókn þingmanna demókrata
vegna meintra tengsla Rússa við
forsetaframboð hans árið 2016
kvað Trump nei við og sagði að
engin tengsl væru þar á milli.
„Stór dagur“ fyrir repúblikana
AFP
Sigurreifur Donald Trump á blaða-
mannafundi í Hvíta húsinu í gær.
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10,1 kg
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
AIR OPTIX® COLORS
Linsur í lit