Morgunblaðið - 08.11.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.11.2018, Qupperneq 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég hef alltaf fengið þó-nokkra athygli út áprjónaskapinn, það erhorft á mig þegar ég prjóna í lestum og strætó hér úti í Hollandi þar sem ég bý. Ég hef fengið bæði jákvæð og neikvæð við- brögð, eitt sinn sagði kona við mig að karlar ættu ekkert að vera að prjóna. Þess vegna datt mér í hug að fara í þessa litlu herferð, til að vekja athygli á því að það að karlar prjóni ætti í raun ekki að vera um- fjöllunarefni, það á að vera jafn eðli- legt og sjálfsagt og að konur prjóni. Ég minni á að karlar prjónuðu mik- ið hér áður fyrr. En því miður þora sumir strákar og karlar ekki að prjóna af ótta við almenningsálitið. Mörgum körlum finnst það ekkert spennandi og hafa engan áhuga á að prjóna og það er að sjálfsögðu í góðu lagi, en það er verra þegar þá sem langar að prjóna þora því ekki. Svo eru þeir sem prjóna en halda því að mestu leyndu því þeir eru hræddir við almenningsálitið, sem ég skil vel, því ég hef alveg fundið fyrir því líka,“ segir Pétur Odd- bergur Heimisson, ungur maður sem boðar til sérstaks prjónakvölds fyrir karlmenn í Reykjavík n.k mánudagskvöld. „Ég hef verið að vinna að hug- myndum um hvernig ég geti hvatt karlmenn til að prjóna. Það er hug- sjónamál hjá mér. Ég fer í grunn- skóla í dag í Njarðvík til að ræða þar við stráka um handprjón. Ég hef líka verið að vinna að útvarps- þætti um handprjón og karlmenn sem verður á Rás 1, tekið viðtöl við karla sem prjóna og skoðað ferlið frá ull og þar til hún verður að lopa- bandi, spjallað við bónda og skoðað ullarvinnslu.“ Prjónaði lopapeysu á pabba sinn í tilefni sextugsafmælis Pétur hefur prjónað mikið und- anfarinn tæpan áratug, eða frá því hann lærði að prjóna í Flatey á Breiðafirði þegar hann var þar sumarlangt 2010. Samstarfskonur hans á hótelinu þar kenndu honum. „Ég byrjaði á að prjóna ein- falda hluti en ég ákvað fljótt að prjóna peysu, af því því ég átti svo mikið afgangsgarn. Hún átti að vera á mig en varð undarleg í lag- inu, mjög víð, og fyrir vikið varð hún að einhverskonar sérhannaðri peysu sem systir mín féll fyrir og fékk að eiga. Þegar pabbi varð sex- tugur þá prjónaði ég lopapeysu á hann af því tilefni og ég hef líka prjónað peysu á mömmu, bróður minn og frændsystkini mín. Ég prjóna því mikið á mína nánustu og vini mína, enda er það mjög per- sónuleg gjöf að gefa flík sem maður hefur sjálfur búið til og eytt ótal stundum í að skapa,“ segir Pétur og bætir við að hann fái ævinlega góð- ar viðtökur hjá þeim sem hann fær- ir slíka gjöf. „Pabbi er ótrúlega stoltur af peysunni sem ég prjónaði á hann, hann segir alltaf frá því að sonur hans hafi prjónað hana þegar hann klæðist henni úti í Flatey, þar sem við eigum sumarhús.“ Pétur segir vera að prófa sig áfram í því að gera sín eigin munst- ur, enda er hann farinn að átta sig betur á hvernig hann geti látið munstrið ganga upp. „Þegar ég var byrjandi þurfti ég að fylgja prjónauppskriftum í þaula, en núna hanna ég mín eigin munstur. Ég gerði til dæmis Mottu- mars-peysu á þessu ári, hannaði yfirvaraskegg í hana í stað munsturbekksins, en hún var boðin upp til styrktar verkefninu,“ segir Pétur sem hefur lagt fleiri góðum málefnum lið með prjónaskap sín- um, hann prjónaði líka bleikan trefil fyrir Krabbameinsfélagið sem seld- ur var á uppboði. Fólk dáleiðist við að horfa á hreyfingar prjónanna Pétur hvetur karla til að koma á prjónakvöldið, þar verður hægt að kaupa allt sem til þarf á einum stað og þar geta óvanir lært að fytja upp á og prjóna einfalt. „En það er líka hægt að fara sjálfur í prjónabúð til að kaupa garn og prjóna og fá síðan hjálp hjá ein- hverjum, því það er alltaf einhver í hverri einustu fjölskyldu sem kann að prjóna, yfirleitt mömmur, ömm- ur, systur eða frænkur. Þetta er ekkert flókið og enginn þarf að ótt- ast að geta þetta ekki. Fólk er alltaf að gera eitthvað í höndunum, ráða krossgátur, vafra á facebook, smíða og fleira. Að prjóna er afskaplega þægileg iðja og ekki flókin. Það er hægt er að prjóna nánast hvar sem er og þetta róar hugann. Ég prjóna til að slaka á. Eftir því sem ég hef orðið æfðari þá er þetta meiri slök- un, en þegar ég var að byrja þá prjónaði ég aðeins of stíft, en það er alveg eðlilegt, æfingin skapar meistarann í þessu eins og öðru. Fólki finnst líka róandi að horfa á aðra prjóna, ég hef fengið þær athugasemdir frá fólki sem sér mig prjóna að það dáleiðist við að horfa á hreyfingu prjónanna.“ Pétur segist vera orðinn nokk- uð háður því að prjóna, hann reyni að grípa í prjónana á hverjum ein- asta degi. „Það er mjög gott að vera háð- ur þessu frekar en einhverju öðru skaðlegu. Vissulega fer tími í þetta en við lok hvers verkefnis hefur maður skapað flík, svo afraksturinn er góð verðlaun. Ég er að klára að prjóna peysu fyrir frænda minn sem á afmæli um næstu helgi og ég er með önnur þrjú prjónaverkefni framundan, þar sem fólk hefur beð- ið mig um að prjóna eitthvað ákveð- ið. Það er því nóg að gera.“ Ljósmynd/Simone Overkamp Kósí Kötturinn Habibi býr með Pétri og sambýlingum hans í Hollandi og vill liggja í kjöltu Péturs þegar hann prjónar. Ljósmynd/Sighvatur Ómar Kristinsson Fyrsta Sigríður Nanna Heimisdóttir, systir Péturs, í fyrstu peysunni sem hann prjónaði. Iðunn og Kristinn, börn hennar. Ljósmynd/Sebastian Ryborg Storgaard Beðið Pétur leggur sig fram við að prjóna á almanna færi. Hér er hann í röðinni við pulsuvagninn í miðbæ Reykjavíkur. Það er karlmannlegt að prjóna „Það er mjög gott að vera háður þessu frekar en einhverju öðru skaðlegu,“ segir Pétur sem grípur í prjónana á hverjum degi. Hann prjónar til að slaka á og ætlar að halda prjónakvöld fyrir karla í næstu viku. Ljósmynd/Sebastian Ryborg Storgaard Með hrútum Prjónalopi er jú unninn úr ull svo það er vel við hæfi að munda prjónana í návist sauðkinda. Mánudaginn 12. nóv. n.k heldur Pétur prjónakvöld fyrir karlmenn í samstarfi við Hildi Guðnadóttur sem er með handavinnuhúsið Ömmu mús á Grensásvegi 46 í Reykjavík. Þar fer prjónakvöldið fram frá kl. 19-22. Pétur hvetur karla sem ekki prjóna til að mæta á prjónakvöldið en reyndir prjónarar eru líka hjartanlega velkomnir. HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Q5 á sérkjörum Nokkrir einstaklega vel útbúnir Audi Q5 á sérkjörum. Audi Q5 Quattro Sport Comfort 2.0 190 hö Tilboðsverð frá 7.890.000 kr. Til afhend ingar strax
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.