Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 38

Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 100 ár frá endalokum fyrri heimsstyrjaldarinnar Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Á sunnudaginn næsta verða hundrað ár liðin frá lokum fyrri heimsstyrj- aldarinnar, sem var á þeim tíma stærsta og mannskæðasta styrjöld mannkynssögunnar. Um tíu milljón- ir hermanna létust á vígvellinum og aðrar tuttugu til viðbótar særðust. Þá létust tæplega átta milljónir óbreyttra borgara og hafði mannfall meðal þeirra aldrei fyrr verið jafn- mikið í nokkurri styrjöld. Stríðið mikla hófst í lok júlí 1914 og atti miðveldunum, keisaradæm- unum Þýskalandi, Austurríki-Ung- verjalandi og Tyrkjaveldi gegn bandamönnum, Bretum, Frökkum og Rússum, auk nokkurra minni ríkja. Þó að ófriðurinn hafi að mestu leyti verið bundinn við Evrópu var einnig barist í nýlendum Evrópu í Afríku og áður en yfir lauk höfðu ríki í flestum heimsálfum dregist inn í stríðið. Haustið 1914 sóttu Þjóðverjar hart fram á vesturvígstöðvunum í gegnum Belgíu. Stefndi um tíma allt í að þýski herinn næði að brjóta sér leið allt til Parísar, höfuðborgar Frakklands, en herir Breta og Frakka náðu með herkjum að stöðva framrás hans við Marne-fljótið. Grófu fylkingarnar tvær sig niður í skotgrafir í kjölfarið, og hreyfðist víglínan lítið á árunum 1915 til 1917, þrátt fyrir ítrekaðar sóknir beggja aðila, sem enduðu jafnan með gríð- armiklu mannfalli. Bretar misstu til dæmis tæplega 20.000 manns á fyrsta degi orrustunnar við Somme í júlí 1916, þar sem fylkingar her- manna þrömmuðu nánast út í opinn dauðann gegn vel undirbúnum vörn- um Þjóðverja. Austurvígstöðvarnar lutu öðrum lögmálum en þær í vestri og skipt- ust Rússar og Þjóðverjar á að sækja fram. Rússneska keisaradæmið var hins vegar illa undirbúið fyrir átök- in, og samfélagslegar aðstæður í ríkinu urðu til þess að grafa undan stoðum þess. Ýtti hernaðurinn að lokum undir rússnesku byltinguna, sem hófst 7. nóvember 1917, og valdatöku bolsévika, sem voru mót- fallnir þátttöku Rússlands í styrj- öldinni. Rússar voru þar með úr leik, en á móti kom að í apríl sama ár höfðu Bandaríkjamenn lýst yfir stríði á hendur Þjóðverjum, þar sem þeir ákváðu að hefja ótakmarkaðan kaf- bátahernað á Atlantshafi. Vonuðust þýsk stjórnvöld til þess að þannig mætti lama skipaflutninga á hafinu og þannig neyða Breta til þess að draga sig í hlé. Ljóst var þá að inn- koma Bandaríkjamanna gæti haft úrslitaáhrif á vesturvígstöðvunum. Þjóðverjar hefja sókn Árið 1918 var í þessu ljósi svipt- ingasamt miðað við fyrri stríðsárin. Friðarsamningurinn við Brest-Li- tovsk í byrjun mars milli bolsévika- stjórnarinnar í Rússlandi og Þjóð- verja þýddi að hægt var að senda um eina milljón þýskra hermanna frá austurvígstöðvunum til vesturs. Vonaðist þýska herstjórnin til að það gæti riðið baggamuninn í vestri áður en herlið Bandaríkjamanna kæmist til Evrópu í stórum stíl. Stórsóknin hófst hinn 21. mars og vegnaði Þjóðverjum vel til að byrja með, þar sem þeir höfðu fleiri menn en Bretar og Frakkar og treystu að auki meira á svokallaðar „storm- sveitir“, litlar herdeildir sem áttu auðveldara með að brjótast í gegnum skotgrafirnar en stóru fylkingarnar sem höfðu einkennt orrustur fyrri ára. Í maí náðu Þjóðverjar að komast að Marne-fljótinu og var jafnvel tal- að um að París væri aftur innan seil- ingar, en stórskotalið Þjóðverja hafði gert daglegar árásir á borgina allt frá því að sóknin hófst. Aðgerðir Þjóðverja runnu hins vegar út í sandinn þar sem mannfall hvorra tveggja var áþekkt, en bandamenn áttu nú mun auðveldara með að bæta það upp, sér í lagi þar sem fyrstu herdeildir Bandaríkjahers voru að taka sér stöðu við víglínuna. Hinn 18. júlí hófu Frakkar sókn við Villers- Cotterets sem gróf undan stöðu Þjóðverja og stöðvaði framrás þeirra. Hundrað daga sóknin Bandamenn gripu tækifærið og hófu gagnsókn sína hinn 8. ágúst. Náðu þeir á einum degi að taka um 17.000 þýska hermenn til fanga og fella eða særa 30.000 til viðbótar. Á sama tíma misstu þeir einungis um 6.500 hermenn. Erich Ludendorff, yfirhershöfðingi Þjóðverja, kallaði 8. ágúst síðar meir hinn svartasta dag í sögu þýska hersins. Þjóðverjar urðu að hörfa undan árásum bandamanna og voru þeir í septemberbyrjun komnir aftur að Hindenburg-línunni, helstu skot- gröfum Þjóðverja. Tókst banda- mönnum í kjölfarið loks að brjóta sér leið í gegnum hana í byrjun október. Þýska yfirherstjórnin áttaði sig á því á þeirri stundu að stríðið væri tapað. Lagði Ludendorff yfirhers- höfðingi til að Þjóðverjar gæfust upp en skýlaus krafa bandamanna um að Vilhjálmur II. Þýskalandskeisari yrði að afsala sér öllum völdum varð til þess að honum snerist hugur. Vildi Ludendorff nú halda stríðinu áfram þrátt fyrir að það væri tapað en hann var rekinn, meðal annars í þeirri von að afsögn hans myndi nægja í stað afsagnar Vilhjálms. Stríðsgæfan var nú öll á bandi bandamanna og knúðu þeir miðveld- in eitt af öðru til þess að semja vopnahlé. Búlgarar urðu fyrstir til að leggja niður vopn og fylgdu herir Tyrkjaveldis og Austurríkis-Ung- verjalands fljótlega í kjölfarið. Þjóð- verjar stóðu því nú einir eftir af mið- veldunum. Vopnahléið samið Mikil stríðsþreyta ríkti nú meðal Þjóðverja, og hinn 29. október hófu sjóliðar í hafnarborginni Kiel upp- reisn sem breiddist fljótlega út um allt Þýskaland. Ákvað Vilhjálmur II. því að stíga til hliðar hinn 9. nóv- ember 1918 og flýja til Hollands. Deginum áður höfðu fulltrúar þýsku ríkisstjórnarinnar hafið vopnahlés- viðræður við bandamenn í Frakk- landi. Viðræðurnar stóðu þó vart undir nafni, enda var Þjóðverjum gert að samþykkja nær allar kröfur bandamanna, þrátt fyrir mótmæli þýsku sendinefndarinnar. Vopnahléssáttmálinn var undirrit- aður klukkan fimm að morgni 11. nóvember 1918 í Compiegne-skógi. Undirritunin átti sér stað um borð í lestarvagni Fochs hermarskálks, yf- irmanns allra herja bandamanna, og tók samkomulagið gildi á slaginu klukkan 11, „á elleftu stund hins ell- efta dags hins ellefta mánaðar“. Þrátt fyrir að samkomulagið væri í höfn héldu bandamenn áfram að sækja gegn Þjóðverjum þá sex klukkutíma sem liðu milli undirrit- unar og gildistöku samkomulagsins, með þeim afleiðingum að 2.738 her- menn létust, þrátt fyrir að friður væri á næsta leiti. Eftirmál styrjaldarinnar Þegar fyrri heimsstyrjöldinni lauk var heimurinn gjörbreyttur frá því sem áður var. Eftir því sem árunum fleygði fram og mannfallið jókst fór fólk að tala um að stríðið mikla væri „stríð til að binda enda á öll stríð“. Var það meðal annars til þess að réttlæta hinn gríðarlega fórnar- kostnað sem fólst í því að senda unga menn í blóma lífsins á vígvöll þaðan sem þeir áttu annaðhvort ekki aftur- kvæmt, eða komu til baka með ör á sál og/eða líkama sem aldrei greru að fullu. Vopnahléið, sem hófst kl. 11:00 hinn 11. nóvember 1918 leiddi hins vegar ekki af sér varanlegan frið. Styrjöldin hafði kveikt glæður víðs- vegar um Evrópu, sem reyndist erf- itt að slökkva. Byltingar og borgara- stríð geisuðu meðal annars í Rússlandi, Þýskalandi og Tyrklandi og róstusamt var víða í Evrópu fram eftir þriðja áratugnum. Versalasamningarnir, þar sem höfuðáherslan var lögð á að refsa Þjóðverjum fyrir framgang þeirra í styrjöldinni, náði einnig að sá fræj- um frekari ófriðar í álfunni. Orð Fochs marskálks þegar hann sá frið- arsamningana árið 1919 reyndust sannspá: „Þetta er ekki friður. Þetta er 20 ára vopnahlé.“ Á elleftu stundu hins ellefta dags  Hundrað ár verða liðin um helgina frá lokum fyrri heimsstyrjaldar  1918 var ár sviptinga á Vestur- vígstöðvunum  Rúmlega 2.700 manns létust síðasta stríðsdaginn áður en vopnahléið tók gildi Miðveldin eru sigruð 1918: Endalok fyrri heimsstyrjaldar 4Sept.-nóv 30. okt Vopnahlé samið milli Tyrkjaveldis og Bandamanna í Mudros á Grikklandi Spænska veikin nær hámarki. A.m.k. 20 milljón manns látnar í Evrópu 100 km Ypres Verdun Chalons-sur- Marne Peronne Stórskotahríð Þjóðverja París Þ ÝSKALAND LÚX. BELGÍA Frakkland Apríl 1918 Mars 1918 Maí 1918 Júlí 1918 París Lille Chateau- Thierry Peronne LÚX. FRAKKLAND Charleroi Charleville BELGÍA Verdun FRAKKLAND BRETLAND BELGÍA París ÍTALÍA ÞÝSKALAND AUSTURRÍKI- UNGVERJALAND BÚLGARÍA RÚMENÍA SERBÍA SVISS GRIKKLAND ALBANÍA TYRKJAVELDI 1 2 3 3 8 8 Konstantínópel 6 6 5 5 3 7 7 3. nóv 9. nóv 11. nóv Vopnahlé samið milli Austurríkis-Ungverjalands og Ítalíu í Padúa Fyrsta af fjórum stórsóknum þýska hersins hefst á vesturvígstöðvunum. Bandamenn eru hætt komnir en ná að veðra storminn Þjóðverjum er ýtt til baka yfir Marne-fljótið og hefja flótta á öllum vígstöðvum Vopnahlé tekur gildi kl. 11 milli Bandamanna og Þjóðverja við Rethondes nærri Compiègne-skógi í Frakklandi Vilhjálmur II Þýskalandskeisari afsalar sér völdum. Almennt verkfall í Berlín. 18. júlí Bandamenn hefja gagnsókn við Villers-Cotterets (Frakklandi). 21. mars Bandamenn sækja fram á Balkanskaga og á austurvígstöðvunum 1 1 1 1 2 Berlín Rethondes Brussel Brussel Villers-Cotterets Bandamenn Miðveldin Hlutlaus ríki Sókn Þjóðverja Sókn Bandamanna Víglínan Vopnahlé undirritað Tyrkjaveldi AFP Vopnahlésvagninn Hér sést inn í endurgerð lestarvagnsins, þar sem vopna- hléið var undirritað að morgni 11. nóvember 1918 í Compiegne-skógi. Þjóð- verjar létu sprengja upphaflega vagninn í loft upp í síðari heimsstyrjöld. Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.