Morgunblaðið - 08.11.2018, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þá er umtöl-uðum kosn-ingum lokið í
Bandaríkjunum.
Flestir öflugustu
fjölmiðlar landsins
hafa hamast gegn
Trump forseta af miskunn-
arleysi og furðulega hömlulaust
frá því að eigendur þeirra og
ritstjórnir vöknuðu upp við
þann vonda draum að þeirra
frambjóðandi, Hillary Clinton,
tapaði fyrir honum þvert á spár.
Hefðin hefur verið sú að nýr
forseti fái fáeina hveitibrauðs-
daga eftir sigur sinn til að velta
sér dálítið um í því mikla sviðs-
ljósi sem beinist að þessum
„valdamesta manni heims“ og
öllu því sem að honum snýr.
Ekkert slíkt var í boði fyrir
Trump. Eiginkona hans og börn
hafa verið elt á röndum og sætt
harðri gagnrýni fyrir hvað eina
og er fróðlegt að bera það sam-
an við dekur fjölmiðlanna við
sambærilegar fjölskyldur úr
þóknanlegum áttum. Þessi fjöl-
miðlun hefur smitast víða og var
með nokkrum ólíkindum að
hlusta á talsmáta sérfræðings
frá H.Í. í aðalfréttatíma „RÚV“,
hins fræga „öryggisventils“
þjóðarinnar, um kosningaúr-
slitin. Var það hvergi nærri því
að vera boðlegt.
Trump forseti hefur þegar
lýst yfir „glæsilegum sigri“ í
þessum kosningum. Fleiri en
gárungarnir kynnu að segja að
það myndi hann hafa gert hver
svo sem úrslitin hefðu verið. Og
slíkt væri jú stjórnmálamanna
háttur og væri Trump fremstur
meðal jafningja hvað það snerti.
Þegar úrslitin eru skoðuð er
fyrst til að taka að demókratar
unnu á nýjan leik meirihluta í
Fulltrúadeild þingsins. Þegar
þetta er skrifað er talið að þeir
hafi unnið þar 26 sæti af and-
stæðingunum.
Þetta er mjög mikilvægur ár-
angur fyrir flokkinn. En dugar
hann til að slá burt tal Trumps
um „glæsilegan“ sigur hans og
flokksins? Ekki endilega.
Sagan sýnir að flokkur forset-
ans tapar nær undantekning-
arlaust fylgi í Fulltrúadeildinni
í kosningunum sem haldnar eru
tveimur árum eftir hans eigið
kjör.
Flokkurinn sem er í andstöðu
við forsetann hefur að jafnaði
unnið í þessum kosningum um
30 sæti frá stjórnarflokknum í
deildinni.
Árið 2010 fóru sambærilegar
kosningar fram þegar Obama
hafði setið á forsetastóli í tæp
tvö ár. Flokkur forsetans tapaði
þá 63 sætum í Fulltrúadeildinni
til repúblikana. Obama tapaði
þannig meira en helmingi fleiri
þingsætum þar en Trump eftir
jafnlanga veru á forsetastóli.
Ekki nóg með það, því að demó-
kratar Obama töpuðu í sömu
kosningum 6 sætum í Öld-
ungadeildinni til viðbótar. For-
setinn hélt þó
áfram naumum
meirihluta þar, eða
51 þingmanni af
100.
Þegar að sagan
er skoðuð kemur í
ljós að fara þarf 48 ár aftur í
tímann til að sjá forseta sem
vinnur á í öldungadeildinni í
þessum fyrstu millikosningum
eftir kjör, með einni undantekn-
ingu þó. Rúmu ári eftir hryðju-
verkin í september 2001 vann
flokkur Bush forseta eitt sæti
þar og var almennt talið að
þjóðin hefði þá verið í sáttahug
eftir ósköpin. Með þeirri und-
antekningu þarf að fara aftur til
ársins 1970 þegar flokkur Rich-
ard M. Nixons bætti við sig í
Öldungadeildinni í slíkum kosn-
ingum.
Trump getur einnig bent á að
kjörsókn var óvenju góð nú mið-
að við kosningar af þessu tagi
og þar sem hann hafði sig mest í
frammi stóð flokkurinn sig vel.
Og þetta hafi gerst þótt demó-
kratar hafi eytt ógrynni fjár í
baráttuna eða tveimur dollurum
fyrir hvern einn sem repúblik-
anar eyddu. Þannig var eytt
sem svaraði 9 milljörðum (!) ís-
lenskra króna í baráttu fyrir
O’Rourke demókrata í Texas og
dugði ekki til þótt ekki munaði
mjög miklu. Þvert á allar spár
þá virðast repúblikanar bæði
hafa unnið ríkisstjóraembættið
og öldungardeildarþingmann í
Flórída. (Hafa verður þann fyr-
irvara að gerð er krafa um end-
urtalningu.)
Demókratar töldu lengi fram
eftir ári raunhæft að ætla að
það stefndi í bláa bylgju (litur
þeirra vestra) í kosningunum 6.
nóvember og kannanir ýttu und-
ir það mat.
Yfirgengilegar árásir þeirra á
vammlaust dómaraefni til
hæstaréttar Bandaríkjanna
sneru blaðinu við. Sú aðferð
þeirra að fallast með hávaða á
hvaða ásökun um vemmilega
glæpi sem birt var þótti mörg-
um handan við öll mörk. Nú er
komið í ljós að um hreinan upp-
spuna var að ræða í öllum til-
vikum nema hugsanlega einu.
Og sætir athæfið nú rannsókn
lögregluyfirvalda.
Eina ásökunin sem hugs-
anlega stendur eftir byggist á
minningu sem sálfræðingur náði
djúpt úr dulminni ásakandans
áratugum eftir að atvikið átti að
hafa orðið.
Enginn vitnisburður frá þeim
fjórum sem ásakandinn sagði að
gætu staðfest sögu sína gerði
það. Þvert á móti.
Það athæfi að heill stjórn-
málaflokkur af stærri gerðinni
taki þá afstöðu að sérhver
„ásökun væri mjög trúverðug“
(!) og því væri það dómaraefn-
isins að sanna sakleysi sitt fyrir
umheiminum flæmdi kjósendur
frá demókrötum.
Og hvernig gat annað verið?
Margt af því sem
sagt var fyrir kosn-
ingarnar vestra
stendur valt eftir}
Áhugaverð úrslit
Þ
egar fólk fær pakka eignast það yf-
irleitt eitthvað nýtt. Pakkar inni-
halda oftast gjafir eða hluti sem
viðtakandinn hefur keypt sér. En
þegar Evrópusambandið afhendir
pakka snýst það gjarnan um að taka eitthvað af
viðtakendunum, setja þeim nýjar takmarkanir
og skerða ákvörðunarrétt þeirra, jafnvel sjálf-
stæði heilla þjóða.
Þetta á ekki bara við um svo kallaða björg-
unarpakka sambandsins. Áhrif 3. orkupakka
ESB hafa skýrst talsvert í opinberri umræðu
að undanförnu, m.a. með fréttaskýringum í
þessu blaði og nú síðast með ítarlegri umfjöllun
í Bændablaðinu. Meðal þess sem fram kemur í
blaðinu er að Gunnar Þorgeirsson, formaður
Sambands garðyrkjubænda, telur að með inn-
leiðingu pakkans muni atvinnugrein sín svo
gott sem leggjast af og staða matvælafram-
leiðslu í landinu veikjast til muna.
Norski lagaprófessorinn Peter T. Örebech segir að með
pakkanum sé verið að stefna íslenskum hagsmunum í
orkumálum og fullveldisrétti þjóðarinnar í stórhættu.
Fleiri lögfræðingar taka undir það sem og Bjarni Jónsson
rafmagnsverkfræðingur.
Viðbrögð stjórnvalda vekja furðu. Þau virðast að mestu
leyti ganga út á að gera sem minnst úr málinu. Því er hald-
ið fram að þetta sé ekki það stórt mál og það mikil eftirgjöf
fullveldis að það taki því að vera með eitthvert vesen út af
því.
Þetta er hin svo kallaða salamitaktík sem oft
var nefnd á kaldastríðsárunum. Það var Má-
tyás Rákosi, leiðtogi ungverskra kommúnista,
sem gaf aðferðinni nafn til að lýsa því hvernig
hann fór að því að tryggja kommúnistum (og
þar með Sovétríkjunum) fullt vald yfir Ung-
verjalandi. Aðferðin var að taka aldrei það
stórt skref í senn (sneið af salamipylsunni) að
andstæðingarnir hertu sig upp í að veita veru-
lega mótspyrnu. Fyrr en varði væri svo pylsan
öll farin og of seint að bregðast við.
Það að koma í veg fyrir að erlendar stofn-
anir öðlist yfirþjóðlegt vald á Íslandi og aðrir
hagsmunir samfélagsins verði veiktir ætti ekki
að vera pólitískt þrætuepli innanlands. Ekki
frekar en önnur mál sem snúa að því að verja
hagsmuni landsins út á við eða sjálft fullveldið.
Það er grátlegt að stjórnvöld telji það ekk-
ert tiltökumál að framselja sneið af sjálfstæði
landsins á sama tíma og haldið er upp á að 100 ár séu liðin
frá því að Ísland endurheimti fullveldi sitt. Um leið fara
svo fram umræður um hvort eigi að afnema svo kallað full-
veldisákvæði stjórnarskrárinnar til að auðvelda slíkt
framsal í framtíðinni.
Ég skora á ríkisstjórnina að fara nú þegar fram á að Ís-
land fái undanþágu frá orkupakkanum og skila honum svo
til sendanda. Í því efni getur ríkisstjórnin reitt sig á stuðn-
ing Miðflokksins.
Sigmundur
Davíð Gunn-
laugsson
Pistill
Suma pakka er betra að afþakka
Höfundur er formaður Miðflokksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Stórir matvælaframleiðendureru í startholunum vegnaaðgerðaáætlunar stjórn-valda í plastmálefnum, en
drög að henni voru nýlega kynnt.
Samkvæmt drögunum verða plast-
hnífapör, plastdiskar, plaströr og
annað einnota plast bannað frá og
með 1. janúar 2020.
„Ölgerðin hefur um nokkurra
ára skeið unnið markvisst að því að
verða umhverfisvænni á öllum svið-
um. Endurvinnsla hefur margfald-
ast, umbúðanotkun minnkað, flokk-
un stóraukist og svo mætti áfram
telja. Umhverfisvænar lausnir í ein-
nota umbúðum frá Ölgerðinni hafa
verið á markaði í ríflega eitt ár. Má
þar t.d. nefna að bústglös fást nú úr
PLA, eða lífbrjótanlegu efni, og geta
komið í stað hefðbundinna plast-
glasa og jafnframt má benda á að
box úr sykurreyr hafa hjá mörgum
viðskiptavinum Ölgerðarinnar leyst
frauðplastsbakka af hólmi,“ segir
Ingibjörg Ólafsdóttir, framkvæmda-
stjóri samskiptasviðs Ölgerðarinnar.
Allt skili sér til endurvinnslu
„Við erum með stefnu í þessum
málum þar sem við erum með tíma-
sett og mælanleg markmið um um-
búðirnar hjá okkur. Við leggjum
mikla áherslu á að allar umbúðir
verði endurvinnanlegar eða endur-
notanlegar en allar okkar drykkjar-
vörur í gleri, plasti og dósum eru í
skilakerfi og enda flestar umbúðir
hjá Endurvinnslunni. Markmið okk-
ar í samvinnu við Endurvinnsluna er
að vinna að því að reyna að auka
endurvinnsluhlutfall þannig að allt
skili sér í endurvinnslu,“ segir Stef-
án Magnússon, markaðsstjóri hjá
Coca-Cola European Partners á Ís-
landi.
Hann segir að þegar sé byrjað
að nota endurunnið plast í smærri
umbúðir hjá fyrirtækinu og hlutfall
þeirra fari sífellt hækkandi. „Nú
þegar eru í gangi aðgerðir til að
minnka plast og má í því samhengi
nefna að með fjárfestingum og
breytingum á umbúðum höfum við
náð að létta umbúðirnar og þannig
minnka plast um 6-14%. Nýjar
vörur, til dæmis sex dósir í pakka,
eru í pappaumbúðum í stað plasts og
hafa neytendur tekið þeirri nýjung
mjög vel,“ segir hann.
Ari Edwald, forstjóri MS, segir
í samtali við Morgunblaðið að dregið
hafi verið úr notkun plasts hjá fyrir-
tækinu síðustu ár. Nýverið voru
mjólkurfernur gerðar hundrað pró-
sent endurvinnanlegar og þær jafn-
framt búnar til úr endurnýjanlegu
hráefni úr plönturíkinu. Þá hafi ver-
ið unnið að því að minnka ytri um-
búðir. Athygli vakti þegar hætt var
að selja G-mjólkurfernur með plast-
rörum fyrir skemmstu.
„Við erum mjög vakandi fyrir
þessu og það er alveg klárt að við
munum uppfylla allar kröfur sem
eru gerðar á hverjum tíma. Það er
nauðsynlegt að taka á þessum plast-
vanda varðandi umhverfið. Við-
fangsefnið er snúið að því leyti að
plast getur verið til mikilla þæginda
og það ætti að vera auðvelt að safna
því og nýta á ný. Vandamálið er
kannski líka ábyrgðarleysi okkar
allra í umgengni við plast. Við þurf-
um að umgangast þetta efni af meiri
ábyrgð,“ segir Ari.
Hann segir að umbúðabirgir
MS, Tetra Pak, vinni nú að framtíð-
arlausnum á umbúðum. „Þeir mæta
sömu kröfum annars staðar í heim-
inum og eru leiðandi í umhverfis-
vænum lausnum.“
Tréskeiðar í
stað plasts?
Enginn viðmælenda Morgun-
blaðsins fæst til að fullyrða hvaða
breytingar verði gerðar á umbúðum
með plaströrum eða plastskeiðum,
eins og á skyrdósum, enda sé verið
að vinna að lausnum.
„Ég gæti séð fyrir mér að þótt
það verði ekki plastskeið í hverju
loki geti fólk tekið með sér litlar tré-
skeiðar á kassanum ef það kýs,“ seg-
ir Ari.
„Við erum búin að senda fyrir-
spurnir á okkar birgja um lausnir
sem kæmu í stað núverandi röra
sem verið er að skoða. Við þurfum
einnig að skipta út lokum á glös auk
þess að skoða allar okkar ytri
pakkningar. Það munu örugglega
koma rör úr annars konar efnum en
plasti eða þá að varan verður boðin í
framtíðinni í annars konar umbúð-
um þar sem ekki þarf rör,“ segir
Stefán hjá Coca-Cola á Íslandi.
Framleiðendur leita
lausna í stað plasts
Morgunblaðið/Golli
Umbúðir Frá og með 1. janúar 2020 verður lagt bann við notkun plast-
röra, -hnífapara og -diska auk annars. Unnið er að nýjum lausnum.
Plastið á útleið
» Samráðsvettvangur í
plastmálefnum leggur til 18
aðgerðir. M.a. að 1. jan 2021
verði óheimilt að selja eða af-
henda plastpoka í verslunum.
» 1. janúar 2020 verði inn-
leitt bann við ýmsu einnota
plasti, svo sem plaströrum.