Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 80
Söngkonan Edda Borg kemur fram í
tónleikaröðinni Freyjujazz í Lista-
safni Íslands í dag kl. 17.15, syngur
þekkt djasslög og rifjar upp gamla
takta með tríói sínu sem skipað er
Birni Thoroddsen á gítar og Bjarna
Sveinbjörnssyni á bassa.
Tónleikarnir fara fram á efstu
hæð safnsins og lýkur um kl. 18.
Edda Borg og tríó í
Listasafni Íslands
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 312. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Axel Stefánsson hefur valið 16
kvenna landsliðshóp sinn sem leik-
ur í forkeppni HM í handbolta í
Skopje í Makedóníu um næstu mán-
aðamót. Fyrirliðinn Karen Knúts-
dóttir fer ekki með liðinu en nú er
orðið ljóst að hún er ristarbrotin.
„Tímasetningin á fyrsta broti mínu
á ferlinum er mjög slæm. Þetta er
ömurlegt,“ segir Karen. »1
Karen brotin og fer
ekki með til Skopje
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarmaðurinn Friðrik Karls-
son, bæjarlistamaður Seltjarnar-
ness 2018, verður gestur Tónstafa
í dag kl. 17:30. Tónstafir eru sam-
starfsverkefni Tónlistarskóla og
Bókasafns Seltjarnarness og mun
Friðrik skapa einstaka
og notalega stemn-
ingu og leiða gesti
inn í vellíðan, slök-
un og hugarró
með tónlist sinni,
eins og því er
lýst í til-
kynningu.
Viðburð-
urinn fer
fram í
bókasafni
bæjarins á
Eiðistorgi.
Vellíðan, slökun og
hugarró í Tónstöfum
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Matti kom með hugmyndina að setja
upp leikritið Gosa eftir Karl Ágúst
Úlfsson, sem byggði leikritið á sögu
Carlo Collodi. Verkið var sýnt á Stóra
sviðinu í Borgarleikhúsinu og það var
ekkert mál að fá leyfi hjá Karli Ágústi
til að nota verkið hans,“ segir Arn-
aldur og Matthías Davíð skýtur inn í
samtalið að þeir vinirnir séu hálf-
gerðir Gosar.
Arnaldur Halldórsson, er 12 ára og
Matthías Davíð Matthíasson, er 14
ára. Þeir kynntust þegar þeir tóku
þátt í Jólagestum Björgvins í fyrra en
Arnaldur var þá Jólastjarnan og
Matthías Davíð í leikarahópnum.
„Okkur langaði að gera eitthvað
saman og ákváðum að setja upp Gosa
án nokkurrar aðstoðar frá full-
orðnum. Við byrjuðum strax að skrifa
niður handritið og söngtextana og
redda öllum lögunum og undirspilinu
úr sýningunni. Við fengum strax leyfi
frá Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni til
þess að nota tónlistina hans sem var
notuð í leikrit Karls Ágústs í Borg-
arleikhúsinu,“ segir Matthías Davíð
og bætir við að í uppfærslu Borgar-
leikhússins hafi níu fullorðnir og fimm
börn leikið í sýningunni.
Tveir í öllum hlutverkum
„Af því að við erum bara tveir
þurftum við að breyta sýningunni. Ég
leik Gosa,“ segir Arnaldur. „Og ég
leik restina, þrjú hlutverk,“ bætir
Matthías Davíð við. Hann segir að
tónlistin í leikritinu sé ekki lifandi
heldur tekin upp og verði spiluð á
sýningunni. Auk Arnalds og Matt-
híasar Davíðs koma sýningar-
stjórarnir Aron Ísak Jakobson og
Ómar Óli Ómarsson að verkinu auk
sviðsstjórans Elísabetar Þórdísar
Hauksdóttur.
„Undirbúningurinn hefur verið á
fullu frá því í sumar. Hópurinn hefur
búið til alla búninga og útbúið tré sem
bætist við leikmyndina sem Leikhóp-
urinn Lotta lánaði okkur. Við fengum
líka lánaðan múrsteinsvegg hjá
Lindakirkju,“ segir Matthías Davíð
sem tekur skýrt fram að ekki sé um
alvöru múrsteinsvegg að ræða.
Gosi verður frumsýndur í Mýrar-
húsaskóla á Seltjarnarnesi kl. 16 á
laugardag. Sýningin tekur rúma
klukkustund og að sögn Arnaldar og
Matthíasar Davíðs er uppselt á frum-
sýninguna. Ákveðið hefur verið að
setja upp aukasýningu sem auglýst
verður á facebooksíðu sem heitir:
Leiksýningin Gosi 10. Nov.
Arnaldur og Matthías Davíð sitja
saman á námskeiði í Leiklistarskól-
anum og hafa báðir leikið í atvinnu-
leikhúsum. Þeir eru harðákveðnir í að
læra leiklist og leggja hana fyrir sig í
framtíðinni.
Morgunblaðið/Eggert
Fjölhæfir Arnaldur Halldórsson og Matthías Davíð Matthíasson, láta verkin tala og sýna leikritið Gosa á laugardag.
Framtakssamir vinir
með leiklistarbakteríu
Hálfgerðir „Gosar“ setja upp barnaleikritið um Gosa
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
WAVE jólakúla. Gengur fyrir rafhlöðum.
Ø13 cm. 5.995 kr. Ø8 cm. 3.995 kr.
JÓLIN ERU
KOMIN Í ILVA