Morgunblaðið - 10.11.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Nú eru öll smáatriðin varðandi
sameiningu eftir, en þau eru reyndar
engin smá atriði,“ segir Garðar
Hilmarsson, formaður Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar, STRV.
Félagsmenn Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og SFR stéttar-
félags samþykktu sameiningu félag-
anna í allsherjaratkvæðagreiðslu
sem lauk í gær. 57% þeirra sem
greiddu atvæði hjá SFR sögðu já en
37% sögðu nei. Hjá STRV féllu at-
kvæði þannig að 77% sögðu já en
18% nei. Mun betri þátttaka var í at-
kvæðagreiðslunni hjá SFR, um 41%
félagsmanna, en aðeins um 27% hjá
STRV.
Árni Stefán Jónsson, formaður
SFR, kveðst í samtali við Morgun-
blaðið vera sáttur við útkomuna.
„Við vorum hrædd við það hve marg-
ir myndu taka þátt í atkvæðagreiðsl-
unni og hjá okkur gekk nú betur en
við áttum von á. Útkoman var bara
ansi góð, um 60-40,“ segir hann.
Spurður um næstu skref við sam-
eininguna segir Árni að spár og von-
ir geri ráð fyrir því að það klárist í
byrjun janúar. „Það er ekkert víst að
okkur takist það. En við horfum til
þess að nýtt félag verði klárt inn í
kjaraviðræðurnar. Samningar
flestra félagsmanna eru lausir í mars
og við ætlum að vera tilbúin þá,“ seg-
ir Árni Stefán.
Hvorugur vill segja mikið um það
hvernig sameinaðri skútu verði stýrt
eða af hverjum. „Stjórnir félaganna
bera ábyrgð á því að renna þeim
saman, þær sigla þessu áfram.
Hvernig menn skipta með sér verk-
um er ekki stóra atriðið,“ segir Garð-
ar Hilmarsson.
Sameinað félag
klárt í kjaravetur
Tvö stéttarfélög renna saman í eitt
Helgi Bjarnason
Erla María Markúsdóttir
Formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis segir að dómur
Héraðsdóms Reykjavíkur í máli
Samherja gegn bankanum og stað-
festing Hæstaréttar sé mjög alvar-
legur áfellisdómur yfir stjórnsýslu
Seðlabankans. Formaður bankaráðs
Seðlabankans segir að bankinn hljóti
að draga lærdóm af dómnum.
Óli Björn Kárason, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar Alþingis,
segir að þótt hann telji dóminn mjög
alvarlegan áfellisdóm yfir stjórn-
sýslu Seðlabankans sé rétt og skyn-
samlegt að gefa stjórnendum bank-
ans tækifæri til að bregðast við
niðurstöðunni og skýra sína hlið
málsins, áður en lengra er haldið, og
gefa bankaráðinu kost á að fjalla um
málið.
Bankaráðið ræðir niðurstöðuna
Gylfi Magnússon, formaður
bankaráðs Seðlabanka Íslands, segir
að full ástæða sé til að fara yfir nið-
urstöðu Hæstaréttar. Bankaráðið
kemur næst saman 21. nóvember og
gerir Gylfi fastlega ráð fyrir því að
þá verði farið yfir niðurstöðu dóms-
ins. „[É]g get ekki sagt neitt um það
hver lærdómurinn kann að verða þar
sem ekki er búið að ræða þetta á
fundi bankaráðs,“ segir Gylfi.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, krafðist þess í gær
þegar dómur Hæstaréttar lá fyrir að
nú yrði að láta bankaráðið axla
ábyrgð sína og láta Má Guðmunds-
son fara úr stóli seðlabankastjóra
enda væri framferði hans gagnvart
Samherja og mörgum öðrum glæp-
samlegt.
Óli Björn og Gylfi vildu ekkert
segja um það, á þessari stundu,
hvort til greina kæmi að endurskoða
stöðu seðlabankastjóra í ljósi niður-
stöðu dómsins.
Málarekstur Seðlabankans gegn
Samherja og stjórnendum fyrirtæk-
isins stóð í hátt í sjö ár. Þegar sak-
sóknari ákvað að höfða ekki sakamál
á hendur stjórnendum fyrirtækisins
lagði Seðlabankinn 15 milljóna króna
stjórnvaldssekt á fyrirtækið. Það
dæmdi héraðsdómur óheimilt og
Hæstiréttur staðfesti þann dóm í
fyrradag.
Alvarlegur áfellisdómur
Formaður efnahags- og viðskiptanefndar gagnrýnir stjórnsýslu Seðlabankans
Söfnunin Jól í skókassa gengur vel að vanda. Í gær voru um 3.500 pakk-
ar komnir og búist var við mörgum í dag. Stefnan er að geta glatt fátæk
og veik börn í borginni Kirovograd og nágrenni í Úkraínu með 5.000
jólapökkum um jólin. Tekið er á móti pökkum í dag, kl. 11 til 16, í hús-
næði KFUM og KFUK við Holtaveg. Þar var Fanney Bára Ingadóttir að
koma með pakka frá börnunum í frístundaheimilunum Brosbæ og Kast-
ala í Grafarvogi. Skólahópar, fjölskyldur og ýmsir hópar taka sig saman,
ná sér í skókassa og pakka litlum gjöfum af ýmsu tagi. Mælst er til þess
að 500-1.000 krónur séu látnar fylgja í peningum til þess að greiða
kostnað.
Morgunblaðið/Eggert
Gleðja fátæk og veik börn með gjöf í skókassa
Karlmaður, sem situr í gæslu-
varðhaldi vegna eldsvoðans á Sel-
fossi í lok síðasta mánaðar, er sagður
hafa kveikt eldinn með því að bera
eld að pizzakössum og gluggatjöld-
um í húsinu. Kemur þetta fram í
dómi Héraðsdóms Suðurlands þar
sem kona, sem einnig var í húsinu,
var úrskurðuð í gæsluvarðhald en
Landsréttur felldi þann úrskurð úr
gildi síðastliðinn þriðjudag. Úrskurð-
ur Landsréttar var birtur í gær.
Karl og kona sem einnig voru í
húsinu létust í brunanum. Lögreglan
vinnur að rannsókn málsins.
Fram kemur í dómi héraðsdóms
að karlmaðurinn, sem er húsráðandi,
53 ára að aldri, og konan sem er 45
ára gömul hafi verið handtekin á
vettvangi eftir að þau hafi bæði haft á
orði við lögreglumenn að maðurinn
hefði kveikt í húsinu. Voru þau bæði í
annarlegu ástandi. Fólkið var í kjöl-
farið fært á lögreglustöð og vistað í
fangaklefa vegna ástands þess þar til
hægt yrði að taka af því skýrslu.
Karlinn og konan hafi síðan í fram-
haldinu verið yfirheyrð vegna máls-
ins.
Fram kemur að konan hafi við yf-
irheyrslur greint frá því að maðurinn
hafi verið að kveikja í pizzakössum á
stofugólfi á neðri hæð einbýlishúss-
ins við Kirkjuveg, þegar hún kom í
húsið. Hún hafi skammað hann og
hellt bjór yfir eldinn til þess að
slökkva. Þá hafi annað þeirra sem
lést í eldsvoðanum komið niður af
efri hæðinni og átt í einhverjum orða-
skiptum eða rifrildi við manninn en
farið síðan aftur upp.
Man óljóst eftir atvikum
Maðurinn hefði í framhaldinu bor-
ið eld með kveikjara að gluggatjöld-
um aftan við sófa í stofunni. Konan
sagðist hafa farið í svokallað „black-
out“ í kjölfarið og ekki munað eftir
því sem gerðist fyrr en hún hafi verið
komin út úr húsinu með manninum.
Við yfirheyrslur sagðist maðurinn
muna eftir því að hafa kveikt í pappa-
kassa í stofunni. Hann myndi óljóst
eftir því sem gerðist en skyndilega
hafi verið kominn eldur um allt.
Húsráðandi
sagður vera
valdur að
brunanum
Á að hafa borið
eld að pizzakössum
Dráttarbátar drógu sementsflutn-
ingaskipið Fjordvik af strandstað í
Helguvík í gærkvöldi og til hafnar í
Keflavík. Þar stendur til að gera við
skipið til bráðabirgða og draga það
síðan til Hafnarfjarðar þar sem það
verður sett upp í þurrkví til viðgerð-
ar.
Fjordvik sigldi upp í brimvarnar-
garðinn við Helguvíkukurhöfn um
helgina. Áhöfninni og hafnsögu-
manni var bjargað upp í þyrlu Land-
helgisgæslunnar. Skipið hefur verið
þar síðan. Búið var að dæla mestallri
olíu úr skipinu til að draga úr hættu
á mengun.
Á flot á háflóðinu
Björgunarfélagið sem stjórnar að-
gerðum fyrir hönd útgerðarinnar,
SMT Shipping, notaði háflóðið í gær-
kvöldi til að ná skipinu á flot. Byrjað
var á því að létta skipið, meðal ann-
ars með því að dæla sjó úr því með
öflugum dælum, og síðan tóku tveir
dráttarbátar Faxaflóahafna við og
drógu skipið og inn í Keflavíkurhöfn.
Gekk það eins og í sögu, að sögn
Kjartans Más Kjartanssonar, bæjar-
stjóra Reykjanesbæjar, sem fylgdist
með aðgerðinni. Ekki er vitað hve-
nær skipið verður dregið til Hafn-
arfjarðar. hjortur@mbl.is
Sementsflutningaskipið
komið í Keflavíkurhöfn
Fer síðar til viðgerðar í þurrkví í Hafnarfirði
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Keflavík Fjordvik komin að bryggju í Keflavíkurhöfn í gærkvöldi.