Morgunblaðið - 10.11.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2018
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé
hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og
sérfræðingar í heimilistækjum keppast
við að hanna hágæða eldhús sem
standast tímans tönn, með virkni, gæði
og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið
er fjárfesting til framtíðar - tryggðu þér
raunveruleg gæði á hagstæðu verði.
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir
hönd mennta- og menningar-
málaráðuneytis, hefur óskað eftir
tilboðum í verkið „Hús íslenskra
fræða – hús og lóð“, Arngrímsgötu
5, Reykjavík.
Hús íslenskra fræða mun hýsa
fjölbreytta starfsemi Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum og íslensku- og menningar-
deildar Háskóla Íslands.
Hið nýja hús verður á þremur
hæðum auk kjallara undir hluta
þess. Opinn bílakjallari verður
sunnan- og vestanmegin við húsið.
Byggingin er sporöskjulaga og er
formið brotið upp með útskotum og
inngörðum. Að utan er byggingin
klædd opnum málmhjúp. Bygging-
armagn ofanjarðar verður um
5.038 fermetrar og stærð bílakjall-
ara um 2.230 fermetrar.
Verkinu skal vera að fullu lokið í
febrúar 2022. Tilboðin verða opnuð
hjá Ríkiskaupum fimmtudaginn 24.
janúar 2019.
Skóflustunga að nýju húsi á Mel-
unum var tekin í mars 2013. Þá at-
höfn framkvæmdi þáverandi
menntamálaráðherra, Katrín Jak-
obsdóttir. Búið var að grafa grunn
hússins þegar framkvæmdum var
frestað og hefur hann staðið
óhreyfður í fimm ár. Bygging húss-
ins var boðin út árið 2013 og átti Já-
verk ehf. á Selfossi lægsta tilboðið,
3.167 milljónir. Þar sem ekkert
varð af framkvæmdum samþykkti
ríkið að borga verktakanum 120
milljónir í skaðabætur. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Nýtt hús Katrín Jakobsdóttir tekur fyrstu skóflustunguna í mars 2013.
Hús íslenskra
fræða boðið út
Húsið á að vera tilbúið árið 2022
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt leigu-
samning um húsnæði fyrir starf-
semi Hins hússins á Rafstöðvar-
vegi 7-9 við Elliðaár. Hitt húsið
hefur verið með starfsemi í mið-
borginni um 20 ára skeið, síðast í
Pósthússtræti 3-5, Pósthúsinu og
gömlu lögreglustöðinni, frá árinu
2002.
Eigandi húsanna við Rafstöðvar-
veg er fyrirtækið Rafklettur ehf.
Borgin gerir tvo leigusamninga.
Annars vegar um tvö hús, samtals
2.240 fermetrar á tveimur hæðum
með einnar hæðar tengibyggingar
milli húsanna. Rafstöðvarvegur 7
er nýlega uppgerður að innan og
er lítilla breytinga þörf svo hús-
næðið henti Hinu húsinu. Reykja-
víkurborg er nú þegar með stóran
hluta Rafstöðvarvegar 9 á leigu
fyrir starfsemi Hins hússins.
Leigugjald verður 5,7 milljónir á
mánuði.
Ánægja með staðsetninguna
Hins vegar er um að ræða leigu-
samning um 400 fermetra
geymsluhúsnæði í kjallara Raf-
stöðvarvegar 9. Leigugjald er 400
þúsund krónur á mánuði. Báðir
samningarnir eru til fimm ára með
möguleika á framlengingu í fimm
ár.
Fram kemur í greinargerð skrif-
stofu eignar og atvinnuþróunar hjá
Reykjavíkurborg að starfsemi
Hins hússins á Rafstöðvarvegi 9
hafi gengið vel. Mikil ánægja sé
með staðsetninguna því þarna ríki
mikil kyrrð, stutt sé í fallega nátt-
úru og húsnæðið sé tiltölulega mið-
svæðis á höfðborgarsvæðinu.
Þá kemur fram í greinargerðinni
að eigandi Pósthússtrætis 3-5,
fasteignafélagið Reitir, hafi boðið
stuttan áframhaldandi leigusamn-
ing sem forsvarsmenn Hins húss-
ins hafi talið óásættanlegt.
Í bókun borgarráðs, þegar leigu-
samningarnir voru samþykktir, er
lögð áhersla á að samráð verði haft
við notendur við útfærslu húsnæð-
isins. Einnig verði rætt við Strætó
um góðar almenningssamgöngur
sem geti líka nýst til útivistar í El-
liðaárdal og áhersla verði lögð á
gott aðgengi og algilda hönnun.
Hitt húsið er rekið af íþrótta- og
tómstundaráði Reykjavíkurborgar,
ÍTR. Þetta er eina ungmennahús
borgarinnar og starfsemi þess er
ætluð aldurshópnum 16-25 ára.
Hitt húsið er m.a. vettvangur fyrir
hugmyndir og menningu ungs
fólks og þar er einnig veitt marg-
vísleg ráðgjöf og aðstoð. Þá er þar
miðstöð fyrir ungt fólk í leit að
sumarstarfi.
Starfsmenn eru 65 talsins.
Hluti starfseminnar, eins og t.d.
Unglist, Músíktilraunir og Götu-
leikhúsið, hefur farið fram víða um
borgina.
Hitt húsið flytur úr mið-
bænum í Elliðaárdal
Borgin leigir Rafstöðvarveg 7-9 undir starfsemina
Morgunblaðið/Eggert
Rafstöðvarvegur 7-9 Hitt húsið mun fá þessi hús undir starfsemina til fram-
tíðar. Staðsetningin er talin heppileg, m.a. vegna nálægðar við náttúruna.