Morgunblaðið - 10.11.2018, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2018
10. nóvember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 120.62 121.2 120.91
Sterlingspund 158.16 158.92 158.54
Kanadadalur 92.07 92.61 92.34
Dönsk króna 18.458 18.566 18.512
Norsk króna 14.457 14.543 14.5
Sænsk króna 13.419 13.497 13.458
Svissn. franki 120.26 120.94 120.6
Japanskt jen 1.0602 1.0664 1.0633
SDR 167.36 168.36 167.86
Evra 137.71 138.49 138.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.873
Hrávöruverð
Gull 1223.45 ($/únsa)
Ál 1950.5 ($/tonn) LME
Hráolía 72.1 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Velta með bréf félaga sem skráð eru á
aðallista Kauphallar Íslands reyndist
tæpir 16,4 milljarðar króna í liðinni viku.
Mest var veltan með bréf á mánudag eða
5.400 milljónir króna en þann dag voru
kaup Icelandair Group á WOW air til-
kynnt. Í gær, föstudag, nam veltan 2.650
milljónum króna. Þar af námu viðskipti
með bréf Icelandair 1.239 milljónum
króna. Voru viðskiptin gerð í kjölfar þess
að upplýst var að félagið hygðist sækja
sér tæpa sjö milljarða króna í aukið fjár-
magn í formi hlutafjáraukningar. Í vikunni
stóðu viðskipti með bréf félagsins undir
26% veltunnar á hlutabréfamarkaði.
Mestu viðskiptin urðu með félagið í gær.
Á þriðjudag skiptu bréf um hendur fyrir
1.046 milljónir króna og á mánudag var
veltan með bréf Icelandair 948 milljónir.
Langminnst var veltan á fimmtudag, 247
milljónir. Í viðskiptum gærdagsins hækk-
uðu bréf Icelandair um 4,68%. Þannig
höfðu bréf félagsins hækkað um
44,3% frá því að Kauphöllin opnaði fyrir
viðskipti á mánudagsmorgun og fram að
lokun markaða í gær.
Áfram voru mikil við-
skipti í Kauphöll Íslands
STUTT
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fjórðungur þeirra fyrirtækjastjórn-
enda sem tóku þátt í könnun SA telja
að uppsagnir starfsfólks séu mun fleiri
um þessar mundir en í fyrra. Tíundi
hluti þeirra greinir færri uppsagnir en
65% hópsins telur að staðan sé svipuð
og hún var fyrir ári.
Í könnun sem Maskína vann fyrir
SA kemur fram að þau 600 fyrirtæki
sem tóku þátt í
könnuninni hafi
sagt upp 900
manns síðustu 30
daga og 1.100
manns síðustu 90
daga. Sömu fyrir-
tæki gera ráð fyrir
að segja upp 360
starfsmönnum
næsta mánuðinn
og um 1.000
manns á næstu
þremur mánuðum. Séu tölurnar yfir-
færðar á öll aðildarfyrirtæki SA má
gera ráð fyrir að uppsagnir síðustu 3
mánaða hafi kostað 3.100 manns vinn-
una og að enn muni 2.800 manns missa
starf sitt á komandi 90 dögum.
Könnunin, sem send var á ríflega
1.700 forsvarsmenn fyrirtækja innan
vébanda SA var gerð til að kanna
hvort uppsagnir starfsmanna fari vax-
andi um þessar mundir og hvort
breyting hafi orðið þar á frá síðasta
ári.
Niðurstöður hennar eru settar fram
með fyrirvara um að ekki er spurt um
nýráðningar síðustu mánuði né áform
fyrirtækja um ráðningar næstu mán-
uði. Því gefur hún ekki yfirsýn yfir það
hversu mikil fækkun starfa standi fyr-
ir dyrum á vinnumarkaði, horft þrjá
mánuði fram í tímann og þrjá mánuði
aftur.
Útflutningurinn í vörn
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, segir að niður-
stöður könnunarinnar sýni að fyrir-
tæki sem flokkist í hóp útflutningsfyr-
irtækja, þ.e. fyrirtæki sem flytja vörur
og þjónustu til útlanda og fyrirtæki í
ferðaþjónustu, séu mun líklegri til að
fækka starfsfólki á næstu 30 dögum en
þau fyrirtæki sem starfa einvörðungu
á heimamarkaði. Hins vegar eru
áformin svipuð í báðum flokkum fyr-
irtækja þegar litið er lengra yfir sviðið
eða til næstu 90 daga.
Fylgjast náið með þróuninni
Halldór segir mikilvægt að allir
hagsmunaaðilar vandi sig í um-
ræðunni um stöðuna á vinnumarkaði
um þessar mundir.
„Það er enn gert ráð fyrir hóflegum
hagvexti á næstunni þó að hann sé
nokkuð minni en síðustu ár. Ef við
drögum of miklar ályktanir of
snemma þá gæti það jafnvel skapað
ákveðna hræðslu og ýkt viðbrögð
markaðarins. Það er enn útlit fyrir
mjúka lendingu að mati greiningar-
aðila.“ Hann segir hins vegar að Ís-
lendingar séu þeirrar gerðar að þeir
vilji að allir sem vilji vinna eigi að geta
unnið. Atvinnuleysi sé eitur í beinum
þjóðarinnar.
„Ég tel af þeim sökum að við þurf-
um að fylgjast afar náið með þessari
þróun. Ef uppsögnum heldur áfram að
fjölga á næstu vikum og mánuðum þá
er hugsanlegt að aðilar vinnumarkað-
arins vilji bregðast við með einhverj-
um hætti. Þá myndum við væntanlega
setjast niður með ASÍ og fleirum og
ræða hvað skuli gera.“
Mun fleiri uppsagnir um
þessar mundir en í fyrra
Morgunblaðið/Hari
Atvinna Svo virðist sem fyrirtækjastjórnendur í útflutningsgreinum, m.a.
flutningafyrirtæki, séu svartsýnni á framhaldið en aðrir stjórnendur.
Útflutningsfyrirtæki líklegri til að fækka fólki en fyrirtæki á heimamarkaði
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Uppsagnir starfsfólks meðal aðildarfyrirtækja SA
3
2
1
0
.000
Síðustu 30 daga Síðustu 90 daga Áform næstu 30 daga Áform næstu 90 daga
2.800
1.000
3.100
2.600
Heimild: Könnun Maskínu fyrir SA í lok október 2018
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Félagsmenn í Félagi íslenskra at-
vinnuflugmanna (FÍA) sem starfa
hjá Icelandair Group hafa forgang í
flugi á flugvélum í eigu félagsins og
dótturfélaga. Kveðið er á um þennan
forgangsrétt í kjarasamningum.
Ákvæðið nær til félaga þar sem Ice-
landair Group á meirihluta.
Þetta hefur Morgunblaðið eftir
heimildum úr fluggeiranum.
Bogi Nils Bogason, starfandi for-
stjóri Icelandair Group, kveðst að-
spurður ekki geta tjáð sig um kjara-
mál.
Flugmenn hjá WOW air eru nú
með eigið stéttarfélag.
Ákvæðið gildi ekki
Samkvæmt heimildum blaðsins
hafa fulltrúar Icelandair sett fram
það sjónarmið að forgangsákvæðið
eigi ekki að gilda hjá WOW air.
Fram kom í Morgunblaðinu á
fimmtudaginn var að launakostnað-
ur flugmanna er hærri hjá Icelanda-
ir Group en hjá WOW air. Það er
einkum vegna þess að nýtingin á
flugmönnum er betri hjá WOW air.
Sérfræðingur í rekstri Icelandair
sagði ljóst að félagið væri ekki að
fara að taka yfir WOW air ef flug-
menn þess færu í Félag íslenskra at-
vinnuflugmanna. Nýja dótturfélagið
myndi ekki bera þann kostnað miðað
við núverandi tekjuöflun.
Kjarasamningur hjá FÍA gildir til
31. desember 2019. Skrifað var undir
samninginn í febrúar sl. Samningar
hjá flugfreyjum verða hins vegar
lausir frá og með áramótum.
Bogi Nils segir aðspurður að Sam-
keppniseftirlitið sé enn að leggja
mat á samruna félaganna. Greint var
frá samrunanum sl. mánudag.
„Við erum að vinna með Sam-
keppniseftirlitinu og veita því upp-
lýsingar,“ segir Bogi Nils.
Fram kom í tilkynningu Iceland-
air til Kauphallar Íslands að kaupin
væru m.a. gerð með fyrirvara um
samþykki hluthafafundar Icelandair
Group, samþykki Samkeppniseftir-
litsins og niðurstöðu áreiðanleika-
könnunar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Boeing 767 Félagsmenn í FÍA hafa forgang á flugvélar Icelandair Group.
Félagar í FÍA eiga forgang
á vélar Icelandair Group
Forgangurinn
gæti náð til flugs á
vélum WOW air
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA