Morgunblaðið - 10.11.2018, Qupperneq 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gerir jafnan þitt besta og það er
ekki hægt að fara fram á meira. Nú er ekki
rétti tíminn til þess að feta ótroðnar slóðir.
20. apríl - 20. maí
Naut Dagurinn í dag er kjörinn til að takast á
við gamalt vandamál sem þér hefur ekki tek-
ist að leysa. Það er kannski erfitt við fyrstu
sýn, en með áreynslu kemstu vel áleiðis.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér er vandi á höndum varðandi
viðkvæmt mál sem er komið upp í fjölskyld-
unni. Ekki láta reka á reiðanum, heldur taktu
þig saman í andlitinu og láttu verkin tala.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það kallar á heilmikið skipulag þegar
margt liggur fyrir bæði í starfi og utan þess.
Mundu að það er stundum í lagi að vera eig-
ingjarn og hugsa fyrst um eigið skinn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vinir bjóða þér alls kyns hlunnindi og
það eru litlu hlutirnir í lífinu sem veita þér
sjálfstraust til þess að mæta áskorunum. Þú
kemst ekkert áfram á frekjunni, hún spillir
bara fyrir þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú kemstu ekki lengur hjá því að setj-
ast niður og velta fyrir þér framtíð þinni. Vin-
ur segir eða gerir eitthvað sem kemur þér
verulega á óvart.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu ekkert að berja höfðinu við stein-
inn. Oft er það svo að lausn erfiðra mála er
sáraeinföld og eftir á finnst manni hún liggja í
augum uppi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að láta fjölskyldumál til
þín taka en þú þarft einnig að sinna þér. Ein-
hver sem er of háður þér lærir að redda sér
um leið og þú sleppir takinu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur einbeitt þér að andlegri
líðan þinni og um leið vanrækt líkama þinn.
Hugsaðu um það hvernig þú getur látið eitt-
hvað gott af þér leiða til þess að bæta heim-
inn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert að ljúka við verkefni sem
hefur átt hug þinn allan undanfarnar vikur.
Gefðu þér nú tíma til þess að hvílast eftir vel
unnið verk.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú vilt bregðast við því sem er að
gerast í heiminum þínum, en eitthvað skapar
óöryggi hjá þér. Þú ert í þeirri aðstöðu að
geta veitt öðrum huggun
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur sterka þörf fyrir að koma
skoðunum þínum á framfæri í dag. Þú ert
friðsæll og í góðu jafnvægi og hefur því góð
áhrif á alla í kringum þig.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Mikið bannsett bull er þetta.
Birtist þegar rakt er á.
Klessu sá frá kúnni detta.
Klæðnaður er blautur sá.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Að drekka full er della, já,
og della strýkur rakan maur,
sem kúadellu detta sá.
Úr dellu baslar votur gaur.
Sigmar Ingason svarar:
Endemis della eru þær gáturnar sumar
um þær þennan dóm ég verð að fella,
þar fullyrt er að hestar hafi tær
– ég held ég hafi lesið það í gær –.
En hér er lausnin held ég bara della.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Þetta sýnist vísast della vera,
vætu á grasi dellu köllum hér.
Áburð kýrnar víst á völlinn bera,
vosklæðnaður dellukenndur er.
Harpa á Hjarðarfelli leysir gát-
una þannig:
Dæmalaus er della.
Dellublautt er á.
Datt frá kúnni della.
Dellu forðast má.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una svona:
Della merkir dauðans blaður.
Della á grasi eftir skúr.
Við kúadellu kannast maður.
Klæðstu dellu þegar úr.
Þá er limra:
Með röddina háa og hvella
heyra má spóann vella
í mýri og mó,
en mörgum finnst þó
sá kveðskapur dæmalaus della.
Og síðan kemur ný gáta eftir
Guðmund:
Dagur ljómar austri í,
öll nú hverfa næturský,
sólin brosir björt og hlý,
birtist hérna gáta ný:
Þjóðskáldið bjó þarna lengi.
Þetta er ótiltekið mengi.
Öskufok, sem eyddi löndum.
Ótalmörg á sjávarströndum
Þorgerður postilla orti:
Hattinn Móra hef ég minn
hvar sem slóra nenni
hann er mjór og hávaxinn,
hylur bjór á enni.
Og að lokum „Undir ræðu Stein-
gríms J.“:
Fagurlega fuglinn kvað,
fáir höfðu í ‘ann roð.
Ég er næstum orðinn að
aðdáanda Steingríms J.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er mörg dellan
Í klípu
„HANN BER VIÐ DIPLÓMATÍSKRI
FRIÐHELG.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„LÁTTU MIG VITA EF ÞIG VANTAR
EINHVERN TÍMANN GÓÐAN VERJANDA.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að dreyma um hana
dagdrauma.
GETA KETTIR
LÖGLEGA GIFT SIG?
GRETTIR? ER ALLT Í
LAGI?
ÉG FINN EKKI
FYRIR HEILANUM!
KOMUM OKKUR
HÉÐAN, LÁRUS!
ÁÐUR EN ÞIÐ
FARIÐ …
GÆTUÐ ÞIÐ NOKKUÐ TEKIÐ KRUKKUNA
MEÐ ÓUNNU VERKUNUM LÍKA?
ÓUNNIÐ
IFAB nefnist apparat, sem semurfótboltareglur. Ætla mætti að
reglur í fótbolta væru í nokkuð föst-
um skorðum og ekki þyrfti mikið að
eiga við þær, en það er öðru nær. Nú
liggja fyrir IFAB 50 nýjar reglur,
sem farið verður yfir í samráði við
Alþjóðaknattspyrnusambandið
FIFA. Þær sem komast í gegnum
nálaraugað taka þá væntanlega gildi
í vor. Sindri Sverrisson hefur á síð-
um Morgunblaðsins fjallað um þá
hugmynd að skiptingar verði bann-
aðar í uppbótartíma og eins að leik-
menn yfirgefi völlinn við skiptingar
með því að fara stystu leið út af til að
draga úr töfum á leiknum. Í fótbolta
er klukkan ekki stoppuð þegar bolt-
inn er ekki í leik líkt og í körfubolta
og tafir geta verið yfirgengilegar.
x x x
Fleiri hugmyndir um breytingar áreglum vekja athygli. Ein er sú
að dæmt verði víti taki markmaður
boltann með höndum þegar sam-
herji gefur á hann. Rökin eru þau að
þá sé hann eins og hver annar leik-
maður og það eigi einfaldlega að
dæma hönd á hann. Einnig er lagt til
að einfaldlega verði undantekning-
arlaust dæmd hönd ef höndin er yfir
axlarhæð. Alltaf eigi að dæma hönd
ef um óeðlilega handarhreyfingu sé
að ræða og sú sé alltaf raunin þegar
leikmaður sé með höndina yfir axl-
arhæð.
x x x
Ekki verði lengur hægt að skora úrfrákasti þegar boltinn kemur
aftur inn á völlinn eftir misheppnað
víti. Þessi tillaga er til komin út af
þeim hvimleiða sið leikmanna að
hlaupa inn í vítateiginn þvert á regl-
ur þegar víti er tekið.
x x x
Þá vilja reglusmiðirnir koma á þvífyrirkomulagi í vítaspyrnu-
keppni, sem kennt er við ABBA. Það
felst í því að fyrsta víti taki leik-
maður liðs A, leikmenn liðs B næstu
tvö, svo leikmenn liðs A þarnæstu
tvö. Með þessu er ætlunin að sjá til
þess að lið eigi jafnari möguleika í
vítaspyrnukeppni. Eins og málum er
nú háttað sigrar liðið, sem tekur
fyrstu spyrnuna í 60% tilvika.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn,
af öllu hjarta og tigna nafn þitt að ei-
lífu.
(Sálmarnir 86.12)
AFSLATTARKOEll:
FRA MIDNJETTI TIL MIDNJETTIS!
J<ringlan 7 I Laugavegur 11 I Reykjavikurvegur 64 I S: 510 9505 I fjallakofinn.is IJ@