Morgunblaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Laugardagur 10.11. kl. 14. Prjónahefð í íslenskum búningaarfi
og endurgerð á kvenpeysum frá 18. og 19. öld
Sunnudagur 11.11. kl. 14. Frú Eliza Reid, forsetafrú: Fullveldisleiðsögn
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Alfreð D. Jónsson – Hver er á myndinni? Greiningarsýning í Myndasal
Hjálmar R. Bárðarson – Aldarminning á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sunnudagur 11.11. kl. 14. Sjónarhorn í skjölum.
Leiðsögn Njarðar Sigurðssonar, Þjóðskjalasafni Íslands
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
Ókeypis aðgangur á greiningarsýningu í Myndasal
Sunnudagsleiðsögn safnstjóra um sýninguna
Lífsblómið – fullveldi Íslands í 100 ár, 11. nóvember kl. 14.
VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON
LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign
BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON
OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS
Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
- HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17.
Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is
Heilög Sunnefa og Þula frá Týli er
yfirskrift tónleika í Breiðholts-
kirkju í dag kl. 17 þar sem þess er
minnst að 20 ár eru liðin frá vígslu
orgelsins sem Björgvin Tómasson
orgelsmiður hannaði og smíðaði.
Það er Kór Breiðholtskirkju sem
stendur fyrir tónleikunum en þar
verða frumflutt tvö ný tónverk sem
samin voru sérstaklega af þessu til-
efni fyrir orgelið og kórinn auk ein-
söngvara og annarra hljóðfæraleik-
ara sem koma úr röðum kórfélaga.
Verkin tvö eru eftir tónskáldin
Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur
og Birgit Djupedal.
Verkið Sunnefa - migrant eftir
Birgit er skrifað fyrir kór, orgel,
einsöngvara, sögumann og átta les-
ara auk klukkuspils Breiðholts-
kirkju. Einsöngvarar eru Júlía
Traustadóttir og Marta Guðrún
Halldórsdóttir.
Í verkinu Þula frá Týli eftir Ingi-
björgu Ýri koma fram tveir lesarar
af erlendum uppruna sem lesa bibl-
íutexta á sínu móðurmáli. Verkið er
samið fyrir átta radda kór og orgel,
þrjá einsöngvara, tvo lesara, orgel-
harmóníum og píanó og að auki
klukkuspil kirkjunnar. Einsöng-
varar eru Júlía Traustadóttir, Sæ-
rún Harðardóttir og Þór Heiðar Ás-
geirsson. Tónskáldið leikur sjálft á
harmóníum og píanó og Guðný Ein-
arsdóttir leikur á orgel og klukku-
spil í báðum verkum. Stjórnandi er
Örn Magnússon. Miðar eru seldir
við innganginn, en enginn posi er á
staðnum.
Morgunblaðið/Eggert
Skapandi Örn Magnússon, stjórnandi Kórs Breiðholtskirkju, ásamt tónskáldunum Ingi-
björgu Ýri Skarphéðinsdóttur og Birgit Djupedal sem sömdu verkin sem flutt eru í dag.
Ný verk flutt til að minnast orgelvígslu
AF AIRWAVES
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Airwaves-hátíðin er tvítug ogmun úrvalið aldrei hafa ver-ið meira. Hátíðin er haldin á
fjölda tónleikastaða í miðborg
Reykjavíkur og þeir eru æði mis-
jafnir að gæðum og eiginleikum.
Allt frá Húrra og Gauknum með
sínu þunga lofti og þrengslum yfir í
hið glæsilega Gamla bíó. Einn stað-
ur er þó á mörkum hins boðlega,
Silfursalir, teppalagt kjallararými
við Hallveigarstíg sem hentar
ágætlega árshátíðum mennta-
skólanema en verður seint talinn
gott tónleikarými.
Flakkið í fyrradag, á öðrum
hátíðardegi, hófst í Hafnarhúsinu
með hinni spriklandi hressu og
bleikklæddu Tierru Whack, 23 ára
hipphopp-tónlistarkonu frá Norð-
ur-Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Mun
hún hafa heillað menn á borð við
A$AP Rocky og Meek Mill og skal
engan undra. Whack skoppaði um
sviðið og vafði gestum um fingur
sér, lét þá hrópa eitt og annað mis-
gáfulegt og ítrekað eftirnafn henn-
ar sem er reyndar mjög hentugt til
upphrópana. Var Whack dyggilega
studd af taktmeistara sínum, Zack
og tengdu þau glettilega saman
lögin með léttu spjalli og spaugi.
Lögin voru fjölbreytt, byljandi
dansvænn bassi í sumum en önnur á
ljúfari nótum.
Á Húrra tróð upp Tawiah
nokkur frá Lundúnum og hélt gest-
um föngnum með undurfögrum
söng sínum og vönduðum raf-
magnsgítarleik. Tawiah er mikil
hæfileikakona, hlóð upp röddum og
gítarlínum af mikilli list sem hún
svo söng og lék yfir. Tónlistarkona
sem vert er að kynna sér betur.
Furðugjörningur
Tónleikar hins eistneska
Tommy Cash í Hafnarhúsi voru
næst á dagskrá. Ekki hafði ég heyrt
á manninn minnst áður en hátíðar-
dagskráin var birt en tónleikar
hans verða lengi í minnum hafðir.
Kæmi mér ekki á óvart að gestum
hafi annað hvort þótt þeir ömurleg-
ir eða frábærir. Cash er skrítinn
náungi á skemmtilegan hátt. Eftir
góða upphitun aðstoðarmanns
mætti hann á svið með sjal á höfði í
stuttermabol með engu baki.
„Pussy, money, weed“ söng hann af
mikilli innlifun í fyrsta lagi sem fyr-
ir mér virkaði sem grín á kostnað
ungra karlrappara sem margir
hverjir virðast vera með þessa
þrenningu á heilanum.
Þetta var furðuleg uppákoma í
Hafnarhúsi og bráðskemmtileg. Á
tjaldi fyrir ofan sviðið voru íburðar-
Frábærar Gróu-konur eiga framtíðina fyrir sér og var þeim ákaft fagnað á smekkfullum Gauknum.
Spriklandi furða
Smekkleysa? Cash á tónleikum sínum í Hafnarhúsi. Fyrir ofan má sjá ljós-
mynd af bandarískum hermanni sem afmyndaðist í sprengingu í Írak árið
2004 og brúði hans. Hver tenging hennar er við tónlistina er á huldu.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það er vel hægt að deila umfyrirkomulagið á IcelandAirwaves og rífa hár sitt yfir
hinu og þessu. Það hefur verið gert
frá upphafi vega reyndar, burtséð
frá því hvernig henni er stillt upp frá
ári til árs. Því verður þó seint hægt
að neita að hátíðin er efalaust gjöf-
ulasti tími ársins fyrir okkur tónlist-
arunnendur. Og virkar hún að því
leytinu til á mörgum stigum. Ís-
lenskar sveitir fara unnvörpum í
„spariklæðin“ og spila út um hvipp-
inn og hvappinn, erlendar sveitir
Bagdad Brothers
sigra heiminn
koma og bera oft með sér nýja
strauma og hugmyndir. Þetta er þá
uppskeruhátíð „bransans“ í víðum
skilningi þess orðs, frábært tækifæri
til að hittast, spjalla, treysta bönd og
koma á tengingum.
Eðlilega er hægur vandi að
lenda í valkvíða gagnvart öllu fram-
boðinu og ég hef undanfarin ár látið
kylfu ráða kasti, bæði til að halda
geðheilsunni og auk þess ber hið
óvænta oft með sér safaríka ávexti.
Á miðvikudaginn fór ég einmitt
í slíka för. Tilkynning um tónleika
með Bagdad Brothers á KEX hostel
flaug í gegnum Fésbókarveituna
mína, ég greip hana, tíminn hentaði
og ég var mættur eftir erilsaman
dag á skrifstofunni. Klukkan var sjö,
ætli ég hafi ekki verið kominn svona
tíu mínútur yfir en kofinn var alger-
lega smekkfullur.
Útvarpsstöðin KEXP, sem hef-
ur gert ótrúlega hluti fyrir íslenskt
tónlistarlíf, var að vanda á staðnum,
tók upp tónleikana og sendi út. Þeir
eru nú á YouTube, yður til handar-
og heyrnargagns.
Sveitin hefur að stofni til verið
þeir Bjarni Daníel Þorvaldsson
(gítar, söngur) og Sigurpáll Viggó
Snorrason (gítar) en í hópinn hafa
nú bæst þau Þóra Birgit Bernódus-
dóttir (bassi, söngur), Steinunn Sig-
þrúðardóttir Jónsdóttir (hljómborð,
tölva) og Ægir Sindri Bjarnason
(trommur). Ægir trommar einnig
með „grindcore“ og öfgarokkssveit-
Iceland Airwaves-hátíðin, sem nú er í fullum gangi, fór vel af stað síðasta
miðvikudag en hljómsveitin Bagdad Brothers hélt þá vel heppnaða tónleika.