Fréttablaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 2
Veður
Dregur úr úrkomu. Norðaustan
5-13 síðdegis með éljum fyrir
norðan og austan, en léttir til
sunnan heiða. Kólnandi veður.
SJÁ SÍÐU 52
Allt á floti alls staðar
Fyrir þrjátíu árum opnuðust nýjar f lóðgáttir í næturlífi Reykvíkinga með af léttingu banns á sölu áfengs bjórs. Haldið var upp á tímamótin víða í
miðborginni í gærkvöld og ölið kneyfað á knæpum. Úti fyrir buldi úrhellisrigning sem skolaðist niður í ræsi sem við gátu tekið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
What is the basis for happiness?
On Saturday, March 23, David Hanna, member of the Family Federation for
World Peace and Unification from the United Kingdom, and well-known
speaker to religious and political leaders will be in Reykjavik at the Hotel Örkin,
introducing some key ideas that will inspire us to re-evaluate marriage and
family. He will ask the question: What is the basis for happiness and how can
we build successful and loving relationships and make the most of our life? We
will look at what religious and cultural traditions have been contributing toward
life’s journey and how in appreciating this we can achieve what’s most precious
in life through realizing our true humanity. David's hope is that we can explore
these things together... and all emerge richer and wiser.
This will lead naturally into the high point of the day—an opportunity to
participate in a beautiful universal ceremony that is reviving hope for couples,
individuals and families around the world - the Interreligious and Intercultural
Peace Blessing.
A simple lunch will be served. There is no charge for the program or the meal. If
you have a special diet, please bring your own food.
Please let us know that you are coming by Friday,
March 8th. Room for 100 people. Email address:
goodhealth@simnet.is Phone (6 pm - 9 pm Mon-
day-Friday, anytime on Saturday) 692-0777.
We look forward to seeing you,
Paul and Sayu
SKIPULAGSMÁL Það er ekki hægt að
byggja eingöngu hótel á Geirsgötu
11, hótel þarf að vera hluti af stærri
uppbyggingu til að tryggja að það
skerði ekki gæði miðborgarinnar.
Þetta segir Sigurborg Ósk Haralds-
dóttir, formaður skipulags- og sam-
gönguráðs Reykjavíkurborgar.
Líkt og Fréttablaðið greindi
frá fyrr í vikunni er Berjaya Land
Berhad, dótturfélag malasísku
fyrirtækjasamsteypunnar Berjaya
Corp oration, að ganga frá kaupum á
fasteigninni að Geirsgötu 11 á Mið-
bakka við Gömlu höfnina í Reykja-
vík. Kaupverðið nemur tæplega
1.670 milljónum króna.
Berjaya Land Berhad tók það fram
í tilkynningu að kaupin á Geirsgötu
11 gæfu félaginu tækifæri til þess að
hefja fjárfestingar í hótelstarfsemi
og fasteignaþróun hér á landi.
Borgaryfirvöld hafa sett kvóta
á hótel í miðborginni. Gistirými
mega ekki fara yfir 23 prósent af
starfsemi í Kvosinni. Það deiliskipu-
lag nær ekki yfir Geirsgötu og er því
enginn kvóti á því svæði.
„Það er ekkert deiliskipulag
þarna, það þýðir að engar heimildir
eru fyrir uppbyggingu á Geirsgötu
11. Þeir þyrftu þá að koma með til-
lögu sem sýnir fyrirhugaða upp-
byggingu,“ segir Sigurborg.
„Það er í rauninni ekki sett algjört
bann, en það er mjög takmarkað
hvað er hægt að gera. Það er aldrei
hægt að reisa bara hótel . Ef það á að
fara að byggja hótel þá má það ekki
skerða gæði byggðarinnar í kring og
miðborgarinnar. Það þarf þá að vera
hluti af einhverri uppbyggingu.“
Útgerðarfélag Reykjavíkur, áður
Brim, átti eignina og hefur á undan-
förnum árum leitað eftir því að rífa
húsið og byggja á lóðinni en ekki
haft erindi sem erfiði. Í fyrra var
lögð fram tillaga að deiliskipulagi
sem átti að tengja svæðið við Kvos-
ina ásamt því að halda hafnarstarf-
seminni gangandi. Alls var gert ráð
fyrir 27 þúsund fermetra húsnæði.
Skipulagsfulltrúi tók neikvætt í til-
löguna þar sem um of mikið bygg-
ingarmagn væri að ræða.
Rætt hefur verið um að of mikið
framboð sé á dýrum íbúðum í
borginni, Sigurborg vildi ekki tjá
sig um möguleikann á slíku. „Það
er spurning hvað menn sjá fyrir sér,
það hefur engin tillaga komið til
okkar um þetta,“ segir Sigurborg.
„Við leggjum mikla áherslu á að
viðhalda fjölbreytileika og mann-
lífi í miðborginni. Það hefur tekist
að snúa við þeirri óheillaþróun
að íbúum í miðborginni var að
fækka. Það er bein af leiðing af
þeim aðgerðum sem gripið var til
árið 2017, til þess að stemma stigu
við uppbyggingu hótela og gistihús-
næðis í miðborginni.“
arib@frettabladid.is
Útiloka stórt hótel eitt
og sér á Geirsgötu 11
Malasískt risafyrirtæki hyggst kaupa lóð við Geirsgötu við gömlu höfnina í
Reykjavík. Félagið ætlar að fjárfesta í hótelstarfsemi og fasteignaþróun hér á
landi. Formaður skipulagsráðs segir ekki hægt að byggja stórt hótel á lóðinni.
Húsið á Geirsgötu 11 hefur staðið nær ónotað síðustu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er í rauninni
ekki sett algjört
bann, en það er mjög tak-
markað hvað er hægt að gera.
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir, for-
maður skipulags-
ráðs Reykjavíkur-
borgar
DÓMSMÁL Íslenska ríkið var í
Landsrétti í gær dæmt til að greiða
kennara fjórar og hálfa milljón
króna í bætur og miskabætur
vegna fjártjóns sem hann varð fyrir
vegna ólögmætrar uppsagnar sem
aðstoðarskólastjóri Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi.
Héraðsdómur hafði áður dæmt
manninum 6,5 milljónir króna.
Hann vildi bætur sem námu laun-
um og launatengdum greiðslum
aðstoðarskólameistara út fimm
ára ráðningartíma, skaðabætur
vegna uppsagnar úr kennarastarfi
og miskabætur. – smj
Uppsögn kostar
ríkið milljónir
SJÁVARÚTVEGUR Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja hefur falið fjármála-
stjóra bæjarins að meta hvort loðnu-
brestur yrði forsendubrestur fyrir
tekjuáætlun fjárhagsáætlunar.
„Loðnuveiðar og vinnsla skipta
samfélagið í Vestmannaeyjum miklu
máli, þriðjungur loðnukvótans er á
höndum fyrirtækja í Vestmanna-
eyjum. Það er alvarlegt mál ef enginn
kvóti er gefinn út og ljóst að það mun
hafa áhrif á fjárhag sveitarfélagsins,“
segir bæjarstjórnin. – gar
Meta áhrifin af
loðnubresti
K J A R A M Á L St jór na r for maðu r
Íslandsbanka, Friðrik Sophus-
son, ætlar að svo stöddu ekki að tjá
sig um harðort bréf Bjarna Bene-
diktssonar fjármálaráðherra til
Bankasýslu ríkisins á fimmtudag.
Fréttablaðið fékk ekki viðbrögð
frá bankaráði Landsbankans í gær..
Bankaráð Landsbankans og
stjórn Íslandsbanka voru bæði
tekin á beinið af ráðherra í bréfinu
sem sagt var frá í Fréttablaðinu
í gær. Bjarni telur að fyrirmæli
ráðuneytisins um hófsemi í launa-
hækkunum bankastjóranna hafi
verið hunsuð, laun bankastjóra
ríkisbankanna tveggja hafi verið
ákveðin úr hófi og þau séu leiðandi
og við það verði ekki unað.
Vill ráðherra að brugðist verði við
með tafarlausri endurskoðun launa
og undirbúningi að breytingum á
starfskjarastefnu bankanna fyrir
komandi aðalfundi þeirra. – smj
Tjá sig ekki um
bréf ráðherrans
Á loðnu. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Friðrik Sophus-
son, stjórnarfor-
maður Íslands-
banka.
52
°C
91
°C
42
°C
2-1
°C8-1°C
2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
7
-E
6
9
8
2
2
7
7
-E
5
5
C
2
2
7
7
-E
4
2
0
2
2
7
7
-E
2
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K