Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 4

Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 4
Þrjú í fréttum Bankalaun, verkföll og aflandskrónur Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sendi Bankasýslu ríkisins bréf þar sem hann lýsti yfir megnri óánægju með launahækk- anir bankastjóra ríkisbankanna og boðar tafar- lausar aðgerðir. Hækkanirnar séu óásættanleg skilaboð inn í yfir- standandi kjaraviðræður. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Ef lingar hefur staðið í ströngu en félags- menn samþykktu verkfallsboðun hjá hótelþernum með miklum meirihluta greiddra atkvæða. Næstu skref ráðast hjá Félagsdómi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Mið- f lokksins fór mikinn í umræðum um frumvarp um losun aflandskróna. Hann steig rúmlega 80 sinnum í ræðustól í málinu. Hann var afar ósáttur við að frum- varpið hefði verið samþykkt. Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið 4 er fjöldi seðlabanka- stjóra sem gert er ráð fyrir í drögum að frumvarpi um breytingar á lögum um Seðlabankann sem nú liggja fyrir. 89% félagsmanna Eflingar samþykktu verkfallsboðun hreingern- ingarfólks á hótelum. Verkfallið á að hefjast 8. mars. 30 ár eru liðin frá því að bjórbanninu var aflétt. 4,1 milljarður var hagn- aður HB Granda á síðasta ári. Afkoman var að mati forstjórans óásættanleg. TÖLUR VIKUNNAR 24.02.2019 TIL 2.03.2019 UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 jeep.isJEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF FÁANLEGIR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU BÍLASÝNING Í DAG Á MILLI KL. 12 - 16 SAMKEPPNI Póst- og fjarskipta- stofnun (PFS) víkur sér undan því að taka afstöðu til mögulegra brota Íslandspósts (ÍSP) á póstþjónustu- lögum að sögn framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda (FA). PFS samþykkti í vikunni gjald- skrárhækkun ÍSP innan einkarétt- ar um 8-11 prósent en hafði hafnað minni hækkun fyrir jól. Undanfarin ár hefur ÍSP tapað háum fjárhæðum vegna sendinga hingað til lands frá Kína en áætla má að Pósturinn hafi niðurgreitt sendingar hingað til lands fyrir á fjórða milljarð á árunum 2013-18. Samhliða því hefur fyrirtækið fjár- fest talsvert í samkeppnisrekstri. Stærstur hluti tapsins hefur verið á samkeppnishliðinni. Samkvæmt lögum um póstþjón- ustu er óheimilt að nýta tekjur af einkarétti til að niðurgreiða sam- keppnisrekstur. ÍSP telur að sér hafi verið óheimilt í núverandi lagaumhverfi að velta kostnaði af erlendum sendingum yfir á neyt- endur. Í frumvarpi til nýrra póstþjón- ustulaga er gert ráð fyrir að það sé skylt en umrætt ákvæði er að öðru leyti efnislega samhljóða núgildandi ákvæði. Fréttablaðið beindi fyrir mánuði fyrirspurn til sam- göngu- og sveitar- stjórnarráðuneytis- ins um hvort ÍSP hafi verið heimilt sam- kvæmt lögum að láta neytendur greiða fyrir sendingarn- ar. Svar við henni hefur ekki borist þrátt fyrir ítrekanir. Fyrir jól fór fyrirtækið fram á neyðarlán frá ríkinu til að bregð- ast við lausafjárþurrð ella blasi gjaldþrot við. Ætla má að þessi staða hefði komið fyrr upp ef ekki hefði komið til óvænts hagnaðar af einkaréttarbréfum árin 2016 og 2017 en þau ár skilaði einka- rétturinn tæpum milljarði í afgang. Þær tekjur voru nýttar til að mæta tapi af samkeppnis- hliðinni. „Það verður ekki annað séð af þessari gjaldskrár- breytingu en að PFS sé að koma sér undan því að svara hvernig skuli mæta því vandamáli að síðustu ár oftók ÍSP gjöld í gegnum einkaréttinn. Það liggur fyrir að þeir fjármunir fóru beint í samkeppnisrekst- urinn. PFS hefur enn ekki svarað hvernig taka eigi á því broti á póst- þjónustulögunum,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. Árið 2016 fækkaði ÍSP dreifingar- dögum og miðar nú við svokallað D+3 kerfi, það er að bréfum sé dreift innan þriggja daga frá móttöku. Í ákvörðun PFS er vikið að því hvort heppilegra gæti verið að miða við D+2 dreifingu og koma bréfum til skila degi fyrr og hvort draga megi úr fækkun bréfa með því móti. „Þegar þú dregur stórlega úr þjónustu samhliða því að hækka verð þá ætti ekki að koma á óvart að samdráttur verði meiri en gert var ráð fyrir,“ segir Ólafur. Aðalfundi ÍSP, sem áætlaður var í liðinni viku, var skyndilega frest- að að beiðni eiganda. Heimildir Fréttablaðsins herma að til umfjöll- unar sé hvort rétt sé að leggja ÍSP til aukið hlutafé úr ríkissjóði. joli@frettabladid.is Póst- og fjarskiptastofnun víki sér undan meintum brotum PFS samþykkir nú gjaldskrárhækkun Íslandspósts en hafnað minni hækkun fyrir jól. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þegar þú dregur stórlega úr þjónustu samhliða því að hækka verð þá ætti ekki að koma á óvart að samdráttur verði meiri en gert var ráð fyrir. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Fé- lags atvinnurekenda Ólafur Stehensen, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, telur Póst- og fjarskiptastofn- un sýna af sér linkind gagnvart Íslandspósti. Magnminnkun einka- réttar megi að hluta rekja til samdráttar í þjónustu. PSF víki sér undan að svara hvernig taki eiga á vanda sem stafi af því að Íslands- póstur hafi oftekið gjöld. 2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 7 -F A 5 8 2 2 7 7 -F 9 1 C 2 2 7 7 -F 7 E 0 2 2 7 7 -F 6 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.