Fréttablaðið - 02.03.2019, Qupperneq 10
DÓMSMÁL Úrskurðum um farbann
og gæsluvarðhald fjölgar mikið milli
ára án þess að innkomnum ákæru-
málum eða sakamálum í rannsókn
hafi fjölgað.
Kveðnir voru upp 489 gæsluvarð-
haldsúrskurðir hjá héraðsdóm-
stólum í fyrra. Það er metfjöldi á
tíu ára tímabili. Árið 2017 voru 449
úrskurðir kveðnir upp sem einnig
var met, sé horft yfir tíu ára tímabil.
Þegar skýringa var leitað á þessari
fjölgun hjá lögreglu og ákæruvaldi
komu ýmsar mögulegar skýringar
fram en í öllum tilvikum var um get-
gátur að ræða.
Þeim sem Fréttablaðið ræddi við
bar saman um að óvenjumörg þung
mál hefðu verið til rannsóknar á
liðnu ári sem skýrt gæti fjölgun
gæsluvarðhaldsúrskurða að ein-
hverju leyti. Vísað var meðal annars
til manndrápsmála, alvarlegra lík-
amsárása og einnig umfangsmikilla
rannsókna sem lúti meðal annars að
skipulagðri brotastarfsemi.
Þá var vísað til fjölgunar útlendra
burðardýra samanborið við Íslend-
inga en Fréttablaðið greindi fyrir
skömmu frá þeirri þróun. Þrátt fyrir
að í flestum tilvikum sé um svoköll-
uð játningarmál að ræða, hvort sem
Íslendingar eða útlendingar eiga í
hlut, er sá munur á meðferð þeirra
að Íslendingar sem játa greiðlega
eru, á grundvelli dómafordæma,
yfirleitt úrskurðaðir í farbann en
útlendingar sem eins er komið fyrir
eru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á
þeim grundvelli að þeir hafi lítil eða
engin tengsl við landið og því talin
hætta á að þeir reyni að koma sér úr
250
200
150
100
50
✿ Farbannsúrskurðum fjölgar gríðarlega milli ára
Flestir farbannsúrskurðir stafa frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og
á Suðurnesjum. Fréttablaðið aflaði upplýsingana hjá dómstólasýslunni.
2015 2016 2017 2018
69
137
85
214
500
400
300
200
✿ Gæsluvarðhaldsúrskurðir ekki fleiri í áratug
Upplýsingarnar eru fengnar af vef héraðsdómstólanna og sýna fjölda
gæsluvarðhaldsúrskurða á tíu ára tímabili, frá 2009 til 2018.
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
257
489
423
Mun fleiri sæta farbanni og varðhaldi
Úrskurðum um farbann og gæsluvarðhald fjölgar gríðarlega milli ára. Embættismenn gefa ýmsar skýringar. Hvorki er unnt að afla
upplýsinga um grundvöll úrskurðanna, þjóðerni þeirra sem sviptir eru frelsi né tegund brots sem til rannsóknar er.
SKILYRÐI:
• Vörulýsing á ensku
• Upprunaland komi skýrt fram
• Varan merkt samkvæmt íslenskri reglugerð
Er varan þín góð gjöf?
Pure Food Hall er verslun sem staðsett er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem sérhæfir sig í íslenskum sælkeravörum.
Verslunin er vinsæll viðkomustaður ferðamanna sem vilja taka með sér íslenskt ljúfmeti út fyrir landsteinana.
VIÐ ÓSKUM EFTIR ÍSLENSKRI SÆLKERAVÖRU
Nánari upplýsingar veitir Ágúst Guðbjartsson,
Vöru- og innkaupastjóri í gegnum tölvupóst:
a.gudbjartsson@lagardere-tr.is
Móttaka tillagna er til 31. mars 2019
landi og undan refsingu meðan mál
þeirra eru í rannsókn.
Margföldun farbannsúrskurða
Á sama tíma margfölduðust einnig
uppkveðnir farbannsúrskurðir og
fóru úr 85 árið 2017 í 214 úrskurði
2018. Langflestir voru kveðnir upp
í héraðsdómstólum Reykjavíkur og
Reykjaness. Athygli vekur, þegar
skýringa er leitað á aukningunni,
að einnig er vísað til fíkniefnabrota
útlendinga líkt og í svörum við fyrir-
spurnum um fjölgun gæsluvarð-
haldsúrskurða.
Ólafur Þór Hauksson héraðssak-
sóknari segir skýringu á fjölgun
farbannsúrskurða ekki einhlíta
heldur líklegast að um nokkra sam-
verkandi þætti sé að ræða.
Ein skýringin sé aukin áhersla
á beitingu meðalhófs og frekar sé
farið fram á farbann sem er vægara
úrræði en gæsluvarðhald. Einnig
kunni aukningin að skýrast af aukn-
um fjölda útlendinga sem koma til
landsins. Stærsti hópurinn sem sæti
farbanni sé eflaust útlendingar með
litla eða enga tengingu við landið
og hætta er talin á að hverfi úr landi
meðan mál þeirra eru til meðferðar,
gangi þeir lausir. Þá sé gripið til far-
banns til að tryggja viðveru þeirra.
Í f lestum tilvikum sé þarna um
að ræða fíkniefnabrot og komu til
landsins á fölsuðum skilríkjum.
Þá hafi farbanni einnig verið beitt
til að tryggja viðverðu ferðamanna
sem lent hafi í mjög alvarlegum
slysum í umferðinni og kunni mögu-
lega koma til með að verða sakaðir
um gáleysisbrot í umferðinni.
Einnig hefur verið bent á stór mál
þar sem margir sakborningar sem
ítrekað sæta endurnýjuðu farbanni
meðan mál þeirra eru til meðferðar.
Dæmi um þetta er Bitcoinmálið.
Skortur á gegnsæi
Umræddir úrskurðir eru aldrei
birtir á vef héraðsdómstólanna.
Þeir birtast þó á vef Landsréttar hafi
úrskurður verið kærður þangað. Það
gerist hins vegar ekki í öllum tilvik-
um og síður ef um er að ræða útlend-
inga sem koma hingað á fölsuðum
skilríkjum eða sem burðardýr.
Þrátt fyrir ítrekaðar upplýsinga-
beiðnir til embætta refsivörslu-
kerfisins hefur Fréttablaðið ekki
fengið upplýsingar um þjóðerni
þeirra sem sætt hafa gæsluvarðhaldi
og farbanni; um tegundir brota
sem grunur beinist að, eða sundur-
liðun eftir þeim grundvelli sem
úrskurðirnir byggja á, það er hvort
gæslan grundvallast á rannsóknar-
hagsmunum lögreglu, hættu á að
viðkomandi hverfi af landi brott,
hættu á áframhaldandi af brotum
eða á grundvelli almannahagsmuna.
Samskipti Fréttablaðsins við emb-
ætti refsivörslukerfisins eru rakin á
vef Fréttablaðsins, frettabladid.is.
adalheidur@frettabladid.is
Ólafur Þór
Hauksson
héraðs
saksóknari.
2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
8
-1
C
E
8
2
2
7
8
-1
B
A
C
2
2
7
8
-1
A
7
0
2
2
7
8
-1
9
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K