Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 16

Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 16
Í skugga hárra fjalla í Suður-Asíu liggur Kasmír. Fjalllent land-svæði sem telur nærri tuttugu milljónir íbúa. Héraðið þykir mikil- vægt vegna orku og menningar og er það einnig hernaðarlega mikilvægt. En samkvæmt greiningu The Diplo- mat er helsta mikilvægi Kasmír það að úr jöklum svæðisins rennur ferskt vatn, lífsnauðsyn fyrir íbúa á þurrum svæðum í Pakistan og á Indlandi. Þess vegna hafa ríkin tvö tekist á um Kasmír allt frá því Indlandi var skipt upp, gróf lega á milli hindúa og múslima, þegar breska heims- veldið lét landið af hendi. Fram að þeim tíma réð prins yfir ríkinu, sem kallaðist Jammu og Kasmír, og fékk hann að taka ákvörðun um hvort sameinast ætti öðru hvoru nýja ríkinu eða að lýsa yfir sjálfstæði. Áratugagömul átök Hari Singh, þá prins, var hindúi. Flestir íbúanna voru hins vegar múslimar. Þar af leiðandi ákvað hann að sameinast hvorugu ríkinu. Sú ákvörðun hélt ekki lengi en Pak- istanar réðust inn í héraðið í októ- ber 1947. Singh bað Indverja um hjálp, f lúði til Indlands og undir- ritaði samning um að ríkið skyldi verða hluti af Indlandi. Við tók fyrsta stríð Pakistana og Indverja um svæðið sem lauk árið 1949 en Pakistönum hafði þá tekist að vinna hluta Kasmír. Næsta stríð braust svo út árið 1965 og stóð yfir í um mánuð. Þúsundir létu lífið áður en Sameinuðu þjóðirnar komu á vopnahléi. Engin varanleg tilfærsla varð á hinum eiginlegu landa- mærum. Landamærin eru eiginleg en ekki opinber þar sem bæði ríki gera tilkall til svæðisins alls. Indland og Pakistan eiga sum sé ekki gott samband og er Kasmír eitt helsta deiluefnið. Á áttunda áratugnum, þegar margur óttaðist kjarnorkustríð á milli Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna, hófu ríkin Áratugalöng átök um Kasmírsvæðið Indverjar og Pakistanar hafa tekist á í Kasmír undanfarna viku. Forsætisráðherra Pakistans leysti Indverja úr haldi í gær. Átök um Kasmír eiga sér langa sögu, stríð hefur brotist út áður. Heimsbyggðin stendur á öndinni enda búa ríkin yfir kjarnorkuvopnum. 350 kr.kg Folaldahakk Verð áður 699 kr. kg - 50% Verð áður 3599 kr. kg - 35%Folaldakjötaf nýslátruðu 2079 kr.kg Folaldagúllas - 20% 2339 kr.kg Folalda Piparsteik innralæri Verð áður 2599 kr. kg Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Átökin á milli Pakistans og Indlands eru einna helst til komin vegna Kasmír, enda ásælast bæði ríkin svæðið. Tugir þúsunda hafa fallið í átökum Indlands og Pakistans um Kasmír á undanförnum áratugum. tvö kjarnorkukapphlaup. Indverjar sprengdu sína fyrstu kjarnorku- sprengju í tilraunaskyni árið 1974 og Pakistanar stuttu síðar. Mannskæð stríð En vopnuðum átökum var hvergi nærri lokið. Árið 1984 brutust út átök um Siachen-jökulinn sem stóðu yfir þangað til 2003. Þúsund létust í orrustum áður en vopnahléi var komið á. Það vopnahlé er enn í gildi í dag þótt gegn því hafi margoft verið brotið undanfarin fimmtán ár. Á sama tíma og átök geisuðu um Siachen fóru aðskilnaðarhreyfingar og hryðjuverkasamtök, meðal ann- ars al-Kaída, að gera vart við sig í indverska Kasmír. Þau átök hófust 1989 og standa yfir enn í dag. Á þriðja tug þúsunda hafa dáið. Árið 1999 ákváðu Pakistanar, í skugga átaka Indverja við skæru- liða, að innlima Kargil í indverska Kasmír. Indverjar náðu svæðinu aftur eftir tveggja mánaða stríð sem kostaði nærri 2.000 manns lífið. Stympingar og óeirðir Indverjar og Pakistanar hafa sömu- leiðis háð orrustur um Kasmír á síðustu árum. Árin 2014 og 2015 voru ítrekaðar stympingar við hin eiginlegu landamæri og féllu á annað hundrað. Óeirðir brutust svo út í indverska Kasmír í júlí 2016 og stóðu yfir fram í febrúar vegna hernaðarvæðingar og andláts Muja- hideen-liðans Burhan Wani í skot- bardaga við indverska hermenn. Fimm her- og lögreglumenn féllu og að minnsta kosti 120 almennir borgarar. Eins og staðan er í dag halda Ind- verjar 45 prósentum svæðisins og kalla ríki sitt þar Jammu og Kasmír. Pakistanar halda 35 prósentum sem þeir kalla Azad Kasmír, Gilgit og Baltistan. Kínverjar eiga líka hlut að máli og halda tuttugu prósentum í héraði sem þeir kalla Aksai Chin. Togstreitan magnast Undanfarnar tvær vikur hefur tog- streitan á milli kjarnorkuveldanna tveggja aukist gríðarlega, eða allt frá því að liðsmaður hryðjuverkasam- takanna Jaish-e-Mohammed (JeM), drap fjörutíu indverska hermenn í Pulwama í indverska Kasmír. Indverjar kenna Pakistönum að hluta um árásina. Segja að þeir ættu að hafa upprætt starfsemi JeM, sem eru starfrækt í Pakistan, fyrir löngu. Síðan þá hafa Indverjar sagst hafa gert loftárás á þjálfunarbúðir JeM, hermenn hafa skotið hvorir á aðra á hinum eiginlegu landamærum í Kasmír og Pakistanar sagst hafa gert loftárásir á indverska hluta Kasmír auk þess að þeir hafi grandað tveimur indverskum herflugvélum og handtekið flugmann. Ákveðinn rauður þráður í þessu orðaskaki er að annað ríkið full- yrðir eitthvað um árás sem hitt ríkið segir svo að séu ósannindi. Pakistanar sögðu Indverja ekki hafa fellt neina í þjálfunarbúða- árásinni, Indverjar segja Pakistana hafa verið hrakta á brott áður en þeir náðu að gera loftárás og segja þá hafa skotið niður eina flugvél en ekki tvær. Óljós framtíð En þrátt fyrir að Imran Khan, for- sætisráðherra Pakistans, hafi leyst f lugmanninn úr haldi í gær segjast herforingjar beggja ríkja enn í við- bragðsstöðu og staðan er enn svört. Pakistanar halda því fram að Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, sé að reyna að stofna til átaka svo hann haldi sæti sínu eftir kosningar í vor. Þá ríkir einnig óánægja með Modi og f lokk hans, BJP, í heimalandinu. Að minnsta kosti á meðal stjórnarandstöðunn- ar, sem sakar Modi um að „stjórn- málavæða fórnir hermanna“. Abhinandan Varthaman, her- f lugmaðurinn sem Pakistanar handtóku, kom til Indlands í gær og sagðist himinlifandi með þá góðu meðferð sem hann fékk í Pakistan. Narendra Modi nýtti tækifærið og sagði að atburðir undanfarinna daga hefðu þjappað þjóðinni saman. Mikil óvissa er um næstu skref en Bretar, Bandaríkjamenn, Kínverjar, ESB og f leiri hafa hvatt til friðar og viðræðna í stað átaka. Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is Pakistan Pakistanska Kasmír Kína Indverska Kasmír Indland Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands. Siachen-jökull Kínverska Kasmír Balakot Pulwama Imran Khan, forsætis- ráðherra Pakistans. 2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 1 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 7 -E 1 A 8 2 2 7 7 -E 0 6 C 2 2 7 7 -D F 3 0 2 2 7 7 -D D F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.