Fréttablaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 16
Í skugga hárra fjalla í Suður-Asíu liggur Kasmír. Fjalllent land-svæði sem telur nærri tuttugu
milljónir íbúa. Héraðið þykir mikil-
vægt vegna orku og menningar og er
það einnig hernaðarlega mikilvægt.
En samkvæmt greiningu The Diplo-
mat er helsta mikilvægi Kasmír
það að úr jöklum svæðisins rennur
ferskt vatn, lífsnauðsyn fyrir íbúa
á þurrum svæðum í Pakistan og á
Indlandi.
Þess vegna hafa ríkin tvö tekist á
um Kasmír allt frá því Indlandi var
skipt upp, gróf lega á milli hindúa
og múslima, þegar breska heims-
veldið lét landið af hendi. Fram að
þeim tíma réð prins yfir ríkinu, sem
kallaðist Jammu og Kasmír, og fékk
hann að taka ákvörðun um hvort
sameinast ætti öðru hvoru nýja
ríkinu eða að lýsa yfir sjálfstæði.
Áratugagömul átök
Hari Singh, þá prins, var hindúi.
Flestir íbúanna voru hins vegar
múslimar. Þar af leiðandi ákvað
hann að sameinast hvorugu ríkinu.
Sú ákvörðun hélt ekki lengi en Pak-
istanar réðust inn í héraðið í októ-
ber 1947. Singh bað Indverja um
hjálp, f lúði til Indlands og undir-
ritaði samning um að ríkið skyldi
verða hluti af Indlandi.
Við tók fyrsta stríð Pakistana og
Indverja um svæðið sem lauk árið
1949 en Pakistönum hafði þá tekist
að vinna hluta Kasmír. Næsta stríð
braust svo út árið 1965 og stóð yfir í
um mánuð. Þúsundir létu lífið áður
en Sameinuðu þjóðirnar komu á
vopnahléi. Engin varanleg tilfærsla
varð á hinum eiginlegu landa-
mærum. Landamærin eru eiginleg
en ekki opinber þar sem bæði ríki
gera tilkall til svæðisins alls.
Indland og Pakistan eiga sum sé
ekki gott samband og er Kasmír
eitt helsta deiluefnið. Á áttunda
áratugnum, þegar margur óttaðist
kjarnorkustríð á milli Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna, hófu ríkin
Áratugalöng átök um Kasmírsvæðið
Indverjar og Pakistanar hafa tekist á í Kasmír undanfarna viku. Forsætisráðherra Pakistans leysti Indverja úr haldi í gær. Átök um
Kasmír eiga sér langa sögu, stríð hefur brotist út áður. Heimsbyggðin stendur á öndinni enda búa ríkin yfir kjarnorkuvopnum.
350 kr.kg
Folaldahakk
Verð áður 699 kr. kg
- 50%
Verð áður 3599 kr. kg
- 35%Folaldakjötaf nýslátruðu
2079 kr.kg
Folaldagúllas
- 20% 2339 kr.kg
Folalda Piparsteik innralæri
Verð áður 2599 kr. kg
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Átökin á milli Pakistans og Indlands eru einna helst til komin vegna Kasmír, enda ásælast bæði ríkin svæðið.
Tugir þúsunda hafa
fallið í átökum Indlands og
Pakistans um Kasmír á
undanförnum áratugum.
tvö kjarnorkukapphlaup. Indverjar
sprengdu sína fyrstu kjarnorku-
sprengju í tilraunaskyni árið 1974
og Pakistanar stuttu síðar.
Mannskæð stríð
En vopnuðum átökum var hvergi
nærri lokið. Árið 1984 brutust út
átök um Siachen-jökulinn sem
stóðu yfir þangað til 2003. Þúsund
létust í orrustum áður en vopnahléi
var komið á. Það vopnahlé er enn í
gildi í dag þótt gegn því hafi margoft
verið brotið undanfarin fimmtán ár.
Á sama tíma og átök geisuðu um
Siachen fóru aðskilnaðarhreyfingar
og hryðjuverkasamtök, meðal ann-
ars al-Kaída, að gera vart við sig í
indverska Kasmír. Þau átök hófust
1989 og standa yfir enn í dag. Á
þriðja tug þúsunda hafa dáið.
Árið 1999 ákváðu Pakistanar, í
skugga átaka Indverja við skæru-
liða, að innlima Kargil í indverska
Kasmír. Indverjar náðu svæðinu
aftur eftir tveggja mánaða stríð sem
kostaði nærri 2.000 manns lífið.
Stympingar og óeirðir
Indverjar og Pakistanar hafa sömu-
leiðis háð orrustur um Kasmír á
síðustu árum. Árin 2014 og 2015
voru ítrekaðar stympingar við
hin eiginlegu landamæri og féllu
á annað hundrað. Óeirðir brutust
svo út í indverska Kasmír í júlí 2016
og stóðu yfir fram í febrúar vegna
hernaðarvæðingar og andláts Muja-
hideen-liðans Burhan Wani í skot-
bardaga við indverska hermenn.
Fimm her- og lögreglumenn féllu
og að minnsta kosti 120 almennir
borgarar.
Eins og staðan er í dag halda Ind-
verjar 45 prósentum svæðisins og
kalla ríki sitt þar Jammu og Kasmír.
Pakistanar halda 35 prósentum
sem þeir kalla Azad Kasmír, Gilgit
og Baltistan. Kínverjar eiga líka hlut
að máli og halda tuttugu prósentum
í héraði sem þeir kalla Aksai Chin.
Togstreitan magnast
Undanfarnar tvær vikur hefur tog-
streitan á milli kjarnorkuveldanna
tveggja aukist gríðarlega, eða allt frá
því að liðsmaður hryðjuverkasam-
takanna Jaish-e-Mohammed (JeM),
drap fjörutíu indverska hermenn í
Pulwama í indverska Kasmír.
Indverjar kenna Pakistönum að
hluta um árásina. Segja að þeir ættu
að hafa upprætt starfsemi JeM, sem
eru starfrækt í Pakistan, fyrir löngu.
Síðan þá hafa Indverjar sagst hafa
gert loftárás á þjálfunarbúðir JeM,
hermenn hafa skotið hvorir á aðra
á hinum eiginlegu landamærum í
Kasmír og Pakistanar sagst hafa gert
loftárásir á indverska hluta Kasmír
auk þess að þeir hafi grandað
tveimur indverskum herflugvélum
og handtekið flugmann.
Ákveðinn rauður þráður í þessu
orðaskaki er að annað ríkið full-
yrðir eitthvað um árás sem hitt
ríkið segir svo að séu ósannindi.
Pakistanar sögðu Indverja ekki
hafa fellt neina í þjálfunarbúða-
árásinni, Indverjar segja Pakistana
hafa verið hrakta á brott áður en
þeir náðu að gera loftárás og segja
þá hafa skotið niður eina flugvél en
ekki tvær.
Óljós framtíð
En þrátt fyrir að Imran Khan, for-
sætisráðherra Pakistans, hafi leyst
f lugmanninn úr haldi í gær segjast
herforingjar beggja ríkja enn í við-
bragðsstöðu og staðan er enn svört.
Pakistanar halda því fram að
Narendra Modi, forsætisráðherra
Indlands, sé að reyna að stofna
til átaka svo hann haldi sæti sínu
eftir kosningar í vor. Þá ríkir einnig
óánægja með Modi og f lokk hans,
BJP, í heimalandinu. Að minnsta
kosti á meðal stjórnarandstöðunn-
ar, sem sakar Modi um að „stjórn-
málavæða fórnir hermanna“.
Abhinandan Varthaman, her-
f lugmaðurinn sem Pakistanar
handtóku, kom til Indlands í gær og
sagðist himinlifandi með þá góðu
meðferð sem hann fékk í Pakistan.
Narendra Modi nýtti tækifærið og
sagði að atburðir undanfarinna
daga hefðu þjappað þjóðinni
saman. Mikil óvissa er um næstu
skref en Bretar, Bandaríkjamenn,
Kínverjar, ESB og f leiri hafa hvatt
til friðar og viðræðna í stað átaka.
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Pakistan
Pakistanska Kasmír
Kína
Indverska Kasmír
Indland Narendra Modi,
forsætisráðherra Indlands.
Siachen-jökull
Kínverska Kasmír
Balakot
Pulwama
Imran Khan, forsætis-
ráðherra Pakistans.
2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
7
-E
1
A
8
2
2
7
7
-E
0
6
C
2
2
7
7
-D
F
3
0
2
2
7
7
-D
D
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K