Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 20

Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 20
Selfoss - FH 26-23 Selfoss: Atli Ævar Ingólfsson 8, Hergeir Grímsson 4, Elvar Örn Jónsson 4, Haukur Þrastarson 3, Árni Steinn Steinþórsson 2, Nökkvi Dan Elliðason 2, Alexander Már Egan 2, Guðni Ingvarsson 1. FH: Jóhann Birgir Ingvarsson 6, Ásbjörn Friðriksson 5, Jakob Martin Ásgeirsson 3, Bjarni Ófeigur Valdimrasson 3, Ágúst Birgis- son 2, Eyþór Örn Ólafsson 2, Leonharð Harðarson 1, Davíð Stefán Reynisson 1. Afturelding - Valur 26-26 Afturelding: Árni Bragi Eyjólfsson 10, Tumi Steinn Rúnarsson 4, Elvar Ásgeirsson 4, Finnur Ingi Stefánsson 3, Einar Ingi Hrafns- son 3, Gunnar Malmqvist Þórsson 1, Emils Kurzemenieks 1. Valur: Magnús Óli Magnússon 13, Ýmir Örn Gíslason 5, Stiven Tobar Valencia 2, Ásgeir Snær Vignisson 2, Anton Rúnarsson 2, Sveinn Aron Sveinsson 1, Daníel Freyr Andrésson 1. Efri Haukar 27 Selfoss 26 Valur 25 FH 24 Afturelding 18 ÍBV 15 Nýjast Olís-deild karla FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson hefur sett mark sitt á ensku úrvalsdeildina síðan hann lék sinn fyrsta leik í henni fyrir Swansea City árið 2012. Eins og oft hefur komið fram er hann orðinn markahæsti Íslendingurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en hann tók fram úr Eiði Smára Guð- johnsen með mörkunum tveimur sem hann skoraði í 0-3 sigri Everton á Cardiff City á þriðjudaginn. Gylfi hefur nú skorað 57 mörk í ensku úrvalsdeildinni; 15 fyrir Everton, átta fyrir Tottenham og 34 fyrir Swansea. Það gerir hann ekki bara að markahæsta Íslendingnum í sögu ensku úrvalsdeildarinnar heldur einnig að næstmarkahæsta Norðurlandabúanum. Sá eini sem hefur skorað meira en Gylfi er núverandi knattspyrnustjóri Manchester United, Ole Gunnar Solskjær. Norðmaðurinn skoraði 91 mark fyrir United á árunum 1996- 2007. Eiður Smári er í 3. sætinu yfir markahæstu Norðurlandabúana í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 55 mörk, Svíinn Fredrik Ljungberg í því fjórða (48 mörk) og Daninn Christian Eriksen í 5. sæti (46 mörk). Gylfi er kominn með ellefu mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur og er þegar búinn að jafna sinn besta árangur í markaskorun á einu tíma- bili. Everton, sem er í 9. sæti, á tíu deildarleiki eftir. Aðeins átta leik- menn hafa skorað meira en Gylfi í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og þeir leika allir með efstu sex lið- unum. Þetta eru Sergio Agüero (18), Mohamed Salah (17), Pierre-Emerick Aubameyang (16), Harry Kane (15), Sadio Mané (14), Eden Hazard (12), Alexandre Lacazette (12) og Raheem Sterling (12). Gylfi hefur gefið þrjár stoðsend- ingar á tímabilinu og 39 alls síðan hann byrjaði að leika í ensku úrvals- deildinni, jafn margar og norski kantmaðurinn Morten Gamst Pedersen, sem lék með Blackburn Rovers í hartnær áratug, gaf. Eriksen er efstur á stoðsendingalista Norð- urlandabúa í ensku úrvalsdeildinni með 57 slíkar. Solskjær er með 37 í 4. sæti og landi hans, John Arne Riise, í því fimmta með 30. Þegar litið er á þá Norðurlanda- búa sem hafa leikið f lesta leiki í ensku úrvalsdeildinni er Gylfi í 13. sæti með 237 leiki og efstur af þeim sem eru enn að spila í deildinni. Tveir aðrir Íslendingar hafa leikið 200 leiki eða meira í ensku úrvals- deildinni. Eiður Smári lék 211 leiki fyrir Chelsea, Tottenham, Stoke City og Fulham. Hermann Hreiðars- son lék svo 332 leiki fyrir Crystal Palace, Wimbledon, Ipswich Town, Charlton Athletic og Portsmouth. Eyjamaðurinn er þriðji leikjahæsti Norðurlandabúinn í sögu ensku Gylfi með næstflest mörk og stoðsendingar úrvalsdeildarinnar og enginn úti- spilari hefur leikið f leiri leiki en hann. Finnski markvörðurinn Jussi Jääskeläinen er leikjahæsti Norður- landabúinn með 436 leiki. Danski markvörðurinn Thomas Sörensen kemur næstur með 364 leiki. ingvithor@frettabladid.is 96 mörkum hefur Gylfi komið að með beinum hætti í ensku úrvalsdeildinni. Markahæstu Norðurlandabúarnir 1. Ole Gunnar Solskjær 91 MARK Manchester United 2. Gylfi Þór Sigurðsson 57 MÖRK Swansea, Tottenham, Everton 3. Eiður Smári Guðjohnsen 55 MÖRK Chelsea, Tottenham, Stoke, Fulham 4. Fredrik Ljungberg 48 MÖRK Arsenal, West Ham 5. Christian Eriksen 46 MÖRK Tottenham Stoðsendingahæstu Norðurlandabúarnir 1. Christian Eriksen Tottenham 57 2.-3. Gylfi Þór Sigurðsson 39 Swansea, Tottenham, Everton 2.-3. Morten Gamst Pedersen 39 Blackburn 4. Ole Gunnar Solskjær Manchester United 37 5. John Arne Riise Liverpool 30 7. Eiður Smári Guðjohnsen 28 Chelsea, Tottenham, Stoke, Fulham Ole Gunnar Solskjær Morten Gamst Pedersen John Arne Riise Christian Eriksen Thomas Sörensen Fredrik Ljungberg Jussi Jääskeläinen Sami Hyypiä Eiður Smári Guðjohnsen Gylfi Þór Sigurðsson Hermann Hreiðarsson Eftir mörkin tvö gegn Cardiff City er Gylfi Þór Sigurðsson orðinn næst- markahæsti Norðurlandabúinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 57 mörk. Hann er líka sá næststoðsendingahæsti í deildinni af Norðurlandabúum. Leikjahæstu Norðurlandabúarnir 1. Jussi Jääskeläinen 436 LEIKIR Bolton, West Ham 2. Thomas Sörensen 364 LEIKIR Sunderland, Aston Villa, Stoke 3. Hermann Hreiðarsson 332 LEIKIR Crystal Palace, Wimbledon, Ipswich, Charlton, Portsmouth 4. John Arne Riise 321 LEIKIR Liverpool, Fulham 5. Sami Hyypiä 318 LEIKIR Liverpool 13. Gylfi Þór Sigurðsson 237 LEIKIR Swansea, Tottenham, Everton FÓTBOLTI Norska félagið Ála- sund hefur þegar neitað tilboðum í íslenska framherjann Hólmbert Friðjónsson en þetta  staðfesti Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Hólmberts, í samtali við Fotbolti. net í gær.   Hólmbert sló í gegn með liði Ála- sunds í norsku B-deildinni þar sem hann skoraði tuttugu mörk í þrjátíu leikjum en Álasundi tókst ekki að komast upp. Þetta var fyrsta tíma- bil hins 26 ára gamla Hólmberts með Álasundi eftir að hafa áður leikið með Stjörnunni, KR og Fram á Íslandi og BrØndby í Danmörku. Ólafur staðfesti í samtali við Fot- bolti.net að Álasund hefði þegar neitað nokkrum tilboðum, þar á meðal frá liði í Suður-Kóreu. Þá sagði Ólafur að það væri mikill áhugi á Hólmberti, meðal annars frá Hollandi og þykir honum líklegt að skjólstæðingur sinn sé á förum frá Álasundi. – kpt Mikill áhugi á Hólmberti Neðri ÍR 17 Stjarnan 13 KA 13 Fram 11 Akureyri 8 Grótta 8 2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -0 4 3 8 2 2 7 8 -0 2 F C 2 2 7 8 -0 1 C 0 2 2 7 8 -0 0 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.