Fréttablaðið - 02.03.2019, Síða 24

Fréttablaðið - 02.03.2019, Síða 24
Ég byrjaði að baka mjög ung og þegar kom að þv að ákveða hvað ég ætlaði að leggja fyrir mig þá var það einföld ákvörðun. „Ég lauk námi í bakara- iðn við Hótel- og matvælaskólann og lauk á sama tíma prófi sem iðn- stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi. Þaðan fór ég til náms í Le Cordon Bleu í London og fékk styrk úr Hvatningarsjóði iðnnema sem auðveldaði mér að láta drauminn rætast,“ segir Aðalheiður Dögg frá. „Skólinn reyndist mér vel, ég lærði mikið og það eru margir flottir kokkar sem kenna við skólann. Iðn- nám finnst mér stundum vanmetið á Íslandi. En iðn er hluti af lífi allra, ég var mjög þakklát fyrir það að hljóta þennan styrk og bendi ungu fólki á að það eru miklu fleiri leiðir í boði en það heldur,“ segir hún. Hún tók starfsnámið á Michelin- stjörnustaðnum, Pollen Street Soci- al. „Þetta er auðvitað allt öðruvísi en hér heima og erfitt að lýsa andanum á veitingastaðnum. Á hverjum degi gerðu allir sitt allra besta og dagarn- ir eru langir, sextán klukkustundir. Maður gefur ekkert eftir,“ segir Aðalheiður. „Þó að álagið hafi verið mikið þá lærði ég mikið og það var ýtt undir það,“ segir hún. Og ástríðan fyrir bakstri er hvergi á undanhaldi. „Ég get hugsað mér að gera þetta alla ævi, það eru svo margir möguleikar. Ég byrjaði í bakstri en það er alltaf eitthvað nýtt hægt að læra,“ segir Aðalheið- ur Dögg sem starfar um þessar mundir á veitingastaðnum Moss við Bláa lónið. „Það er frábært að vinna þar og í þessu fallega umhverfi og það er ágætt að vera í rólegri takti hér heima,“ segir hún. HESLIHNETUPRALINE- BOLLA MEÐ SÍTRÓNUKREMI Uppskrift fyrir um 12 bollur 150 g vatn 150 g mjólk 4g salt 5 g sykur 270 g smjör 240 g hveiti 360 g egg Hitið vatnið, mjólkina, saltið, sykurinn og smjörið upp að suðu. Bætið við hveitinu og hrærið vel. Í pottinum myndast deigmassi sem þarf að elda þar til myndast skán á botni pönnunnar. Færið í hrærivél eða skál og hrærið til að kæla deigið örlítið. Bætið við eggjum, einu í einu og hrærið vel á milli. Haldið áfram þangað til blandan er slétt og glans- andi og rennur af sleifinni þannig að það myndast eins konar fáni. Setjið blönduna í sprautupoka og sprautið á plötu. Bakið við 180 gráður í um 30 mín. Passið að opna ekki ofninn til að koma í veg fyrir að þær falli. SÍTRÓNUKREM 120 g sítrónusafi (um 3 sítrónur) Börkur af einni sítrónu 150 g sykur 180 g egg 40 g smjör Setjið sykurinn safann og börk í pott og hitið að suðu. Brjótið eggin í skál og hrærið saman. Hellið heitu sykurblöndunni yfir eggin og hrærið á meðan. Setjið skálina yfir vatnsbað og hrærið þar til blandan þykknar (um 68°C). Færið af hit- anum og sigtið. Takið smjörið og hrærið því vel saman við. Kælið. PRALINE 200 g heslihnetur 200 g sykur 6 msk. vatn Ristið heslihneturnar í 160°C ofni þar til þær eru gullnar. Takið hneturnar út og brjótið gróf lega. Setjið sykurinn og vatnið í pott. Sjóðið karamelluna þar til vatnið er allt gufað uppog sykurinn orð- inn karmelíseraður. Hellið heitri Bolludagsbolla úr smiðju listakokks Aðalheiður Dögg Reynisdóttir eftirréttakokkur útskrifaðist frá hinum virta matreiðsluskóla Le Cordon Bleu í London. Hún er að- eins 22 ára gömul og hefur haft bakstur að ástríðu frá barnsaldri. Aðalheiður Dögg Reynisdóttir eftirréttakokkur gefur lesendum krefjandi og skemmtilega uppskrift að girnilegum bollum sem má spreyta sig á fyrir bolludaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Aðalheiður gætir að öllum smáatriðum, sítrónubörkurinn og karamellan eru alveg ómissandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR blöndunni yfir hneturnar og leyfið karamellunni að kólna alveg. Takið karamelluhneturnar og brjótið niður í ́minni búta. Endilega geyma nokkra sem þið getið notað til að skreyta bollurnar ykkar. Setjið í ́ matvinnsluvél og vinnið þar til þið hafið myndað paste eða praline. PRALINE-RJÓMI 300 g praline 90 g rjómi 500 ml rjómi Hitið minni hlutann af rjómanum upp að suðu. Hellið í þrem hlutum saman við praline-ið á meðan þið hrærið vel. Blanda þar til blandan er orðin slétt og glansandi, það er líka gott að nota töfrasprota til að koma blöndunni saman. Leyfið blöndunni að kólna. Þeytið stærri hlutann af rjómanum. Takið smá af þeytta rjómanum og blandið varlega saman við praline-blönduna. Bætið svo við restinni af rjómanum og blandið vel. KARAMELLA 125 g sykur 3 msk. vatn 125 g rjómi 1/2 tsk. vanilludropar Klípa af sjávarsalti Setjið sykur og vatn í pott og sjóðið þar til blandan er gullinbrún. Takið af hellunni og bætið rjómanum við í pörtum. Passið ykkur á gufunni sem kemur. Bætið vanillunni og saltinu við og kælið. SÍTRÓNUBÖRKUR (TIL SKRAUTS) 1 sítróna 100 g sykur 100 g vatn Skerið börkinn af sítrónunni. Fjar- lægið allt það hvíta af berkinum. Skerið börkinn í þunna strimla. Blansið börkinn þrisvar sinnum (börkurinn settur í ́ vatn og hit- aður upp að suðu og færður svo yfir í kalt vatn). Sjóðið sykur og vatn saman. Setjið börkinn út í og leyfið að krauma við vægan hita í 15 til 20 mín. þar til hann er orðinn gegnsær. SAMSETNING Skerið bolluna í tvennt og dýfið toppnum í karamelluna. Fyllið botn- inn með sítrónukremi og sprautið rjómanum á. Skreytið með hnetum og sítrónuberki. 2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -2 B B 8 2 2 7 8 -2 A 7 C 2 2 7 8 -2 9 4 0 2 2 7 8 -2 8 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.