Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 27

Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 27
ORKUSTEFNA Í MÓTUN OPINN ÁRSFUNDUR - 6. MARS - 15:00 - GRAND HÓTEL ÁVARP Helgi Jóhannesson, formaður stjórnar Samorku FUNDARSTJÓRI Guðrún Erla Jónsdóttir, stefnustjóri Orkuveitu Reykjavíkur ÁVARP Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra MÓTUN ORKUSTEFNU ÍSLANDS Guðrún Sævarsdóttir, formaður starfshóps stjórnvalda um gerð orkustefnu MIKILVÆGI ORKUSTEFNU Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku CREATING ENERGY POLICY: EXPERIENCE FROM NORWAY Toril Johanne Svaan, deildarstjóri í orkumálaráðuneyti Noregs HVERJAR VERÐA ÁHERSLUR ÍSLANDS TIL FRAMTÍÐAR? LÉTTAR VEITINGAR Í FUNDARLOK Lóa hefur stofnað fyrirtæki um þáttagerð sína, Lóa Productions og er full tilhlökkunar yfir sjálfstæðinu. W sem eru svolítið að þreyja þorrann þangað til þau fá að gera það sem þau langar til. Ef þau finna þá til þeirrar löngunar,“ segir Lóa. „Yngri sonur minn hefur mjög gaman af því að semja tónlist. Hann var þrettán ára þegar hann sagði mér að hann ætlaði sér að fara í fram- haldsskóla í útlöndum því það væri ekkert hér. Ég krossaði mig bara, að senda ungan son minn einan út í nám. En svo frétti ég af því fyrir til- viljun að það væri reyndar búið að stofna framhaldsskóla í tónlist, MÍT. Það birti yfir syni mínum og það var magnað að sjá tilganginn kvikna innra með honum. Allt í einu fannst honum rík ástæða fyrir því að sitja yfir stærðfræðinni. Það eru nefnilega inntökuskilyrði í skólann,“ segir Lóa og segist velta því reglulega fyrir sér af hverju í ósköpunum það sé ekki starfandi stór listaframhaldsskóli á Íslandi. Í dag sé listnámi dreift á marga framhaldsskóla. „Já, af hverju er ekki stór listaframhaldsskóli hér á landi. Þar sem fólk þarf ekki fyrst að klifra yfir hindranir af dönsku og stærðfræði áður en það lærir það sem það dreymir um og hefur hæfi- leika til. En því miður er kerfið sniðið þannig að við fleytum sem flestum í gegn á sem hagkvæmastan hátt. Það er nefnilega ódýrast að kenna bók- nám,“ segir Lóa. En er það endilega ódýrast? „Einmitt, góð spurning. Því svo sannarlega er það ekki ódýrast eða hagkvæmast ef það kostar geðheilsu ungs fólks.“ Fólk tali saman Hvert var markmiðið með gerð þátt- anna? „Það sem ég vonast innilega til er að þeir verði til þess að fólk geti talað saman. Og að þeir ýti við þeim fjöl- mörgu sem hafa sjálfsvígshugsanir eða jafnvel gert sjálfsvígstilraun, að þeir átti sig á því hversu hyldjúpan sársauka fólk skilur eftir ef það tekur þessa skelfilegu ákvörðun. Eldri sonur minn missti einn besta vin sinn úr sjálfsvígi. hann var sjálfur tvístígandi í lífinu og ég var mjög hrædd um hann á því tímabili. Á hverju kvöldi í marga mánuði fór ég inn til hans og var hrædd um hann. En ég þorði ekki að spyrja hann. Ég var svo hrædd um að það myndi rugga bátnum, koma ein- hverjum hugmyndum í kollinn. En núna veit ég að hann var ekkert að hugsa um þetta og ég hefði getað létt af mér mikilli sálarangist með því að spyrja krakkann beint út,“ segir hún og hristir höfuðið með bros á vör. „Ef það er eitthvað sem ég vonast eftir þá er það að foreldrar ræði við börn sín um líðan þeirra,“ segir Lóa og segir mikilvægt að hafa það í huga að það komi ekki endilega í veg fyrir sjálfsvíg. „En það borgar sig að tala. Við verðum að geta rætt þessi mál því það eru svo margir sem eru lok- aðir inni með þessar hugsanir og við verðum að vita það til að geta tekist á við vandann. Hvort ástvinur okkar er kominn á þennan stað. Hvort hann sé með dagsetningu, aðferð, í huga. Því þá er það orðið alvarlegt. Þá getum við reynt að hjálpa en getum kannski ekki komið í veg fyrir allt,“ segir Lóa. Komumst yfir áföll „Oft eru þetta miklar tilfinningar, tengdar heilsu eða áföllum sem ganga samt í bylgjum. En það má komast yfir áföllin og lifa góðu og gefandi lífi. Ungt fólk verður að fá að vita það. En byrjunin er að opna sig um vandann. Við erum alltaf betur sett ef við tölum um hlutina,“ segir Lóa og segir geðheilbrigðiskerfið átta sig vel á því. „Ég finn að geðlæknar vilja að þetta sé rætt, en vilja hafa ákveðin bönd á því. Ég ber fulla virðingu fyrir því og reyni að hlýða því sem þeir segja. Eitt það allra mikilvæg- asta sem Þórgunnur Ársælsdóttir geðlæknir hefur að segja er að hún hefur aldrei rætt við manneskju sem sér eftir því að hafa verið bjargað eftir sjálfsvígstilraun eða -hugsanir. Þegar manneskjan er komin út úr vanlíðaninni, þá sér enginn eftir því að velja að lifa.“ OFT ERU ÞETTA MIKLAR TILFINNINGAR, TENGDAR HEILSU EÐA ÁFÖLLUM SEM GANGA SAMT Í BYLGJUM. H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27L A U G A R D A G U R 2 . M A R S 2 0 1 9 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 8 -1 7 F 8 2 2 7 8 -1 6 B C 2 2 7 8 -1 5 8 0 2 2 7 8 -1 4 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.