Fréttablaðið - 02.03.2019, Qupperneq 27
ORKUSTEFNA Í MÓTUN
OPINN ÁRSFUNDUR - 6. MARS - 15:00 - GRAND HÓTEL
ÁVARP
Helgi Jóhannesson, formaður stjórnar Samorku
FUNDARSTJÓRI
Guðrún Erla Jónsdóttir, stefnustjóri Orkuveitu Reykjavíkur
ÁVARP
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
MÓTUN ORKUSTEFNU ÍSLANDS
Guðrún Sævarsdóttir, formaður starfshóps
stjórnvalda um gerð orkustefnu
MIKILVÆGI ORKUSTEFNU
Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku
CREATING ENERGY POLICY:
EXPERIENCE FROM NORWAY
Toril Johanne Svaan, deildarstjóri í orkumálaráðuneyti Noregs
HVERJAR VERÐA ÁHERSLUR ÍSLANDS TIL FRAMTÍÐAR?
LÉTTAR VEITINGAR Í FUNDARLOK
Lóa hefur stofnað fyrirtæki um þáttagerð sína, Lóa Productions og er full tilhlökkunar yfir sjálfstæðinu. W
sem eru svolítið að þreyja þorrann
þangað til þau fá að gera það sem þau
langar til. Ef þau finna þá til þeirrar
löngunar,“ segir Lóa.
„Yngri sonur minn hefur mjög
gaman af því að semja tónlist. Hann
var þrettán ára þegar hann sagði mér
að hann ætlaði sér að fara í fram-
haldsskóla í útlöndum því það væri
ekkert hér. Ég krossaði mig bara, að
senda ungan son minn einan út í
nám. En svo frétti ég af því fyrir til-
viljun að það væri reyndar búið að
stofna framhaldsskóla í tónlist, MÍT.
Það birti yfir syni mínum og það var
magnað að sjá tilganginn kvikna
innra með honum. Allt í einu fannst
honum rík ástæða fyrir því að sitja
yfir stærðfræðinni. Það eru nefnilega
inntökuskilyrði í skólann,“ segir Lóa
og segist velta því reglulega fyrir sér
af hverju í ósköpunum það sé ekki
starfandi stór listaframhaldsskóli
á Íslandi. Í dag sé listnámi dreift á
marga framhaldsskóla. „Já, af hverju
er ekki stór listaframhaldsskóli hér
á landi. Þar sem fólk þarf ekki fyrst
að klifra yfir hindranir af dönsku
og stærðfræði áður en það lærir það
sem það dreymir um og hefur hæfi-
leika til. En því miður er kerfið sniðið
þannig að við fleytum sem flestum í
gegn á sem hagkvæmastan hátt. Það
er nefnilega ódýrast að kenna bók-
nám,“ segir Lóa.
En er það endilega ódýrast?
„Einmitt, góð spurning. Því svo
sannarlega er það ekki ódýrast eða
hagkvæmast ef það kostar geðheilsu
ungs fólks.“
Fólk tali saman
Hvert var markmiðið með gerð þátt-
anna?
„Það sem ég vonast innilega til er
að þeir verði til þess að fólk geti talað
saman. Og að þeir ýti við þeim fjöl-
mörgu sem hafa sjálfsvígshugsanir
eða jafnvel gert sjálfsvígstilraun, að
þeir átti sig á því hversu hyldjúpan
sársauka fólk skilur eftir ef það tekur
þessa skelfilegu ákvörðun.
Eldri sonur minn missti einn besta
vin sinn úr sjálfsvígi. hann var sjálfur
tvístígandi í lífinu og ég var mjög
hrædd um hann á því tímabili.
Á hverju kvöldi í marga mánuði
fór ég inn til hans og var hrædd um
hann. En ég þorði ekki að spyrja
hann. Ég var svo hrædd um að það
myndi rugga bátnum, koma ein-
hverjum hugmyndum í kollinn. En
núna veit ég að hann var ekkert að
hugsa um þetta og ég hefði getað létt
af mér mikilli sálarangist með því að
spyrja krakkann beint út,“ segir hún
og hristir höfuðið með bros á vör.
„Ef það er eitthvað sem ég vonast
eftir þá er það að foreldrar ræði við
börn sín um líðan þeirra,“ segir Lóa
og segir mikilvægt að hafa það í huga
að það komi ekki endilega í veg fyrir
sjálfsvíg. „En það borgar sig að tala.
Við verðum að geta rætt þessi mál
því það eru svo margir sem eru lok-
aðir inni með þessar hugsanir og við
verðum að vita það til að geta tekist
á við vandann. Hvort ástvinur okkar
er kominn á þennan stað. Hvort
hann sé með dagsetningu, aðferð, í
huga. Því þá er það orðið alvarlegt.
Þá getum við reynt að hjálpa en
getum kannski ekki komið í veg fyrir
allt,“ segir Lóa.
Komumst yfir áföll
„Oft eru þetta miklar tilfinningar,
tengdar heilsu eða áföllum sem
ganga samt í bylgjum. En það má
komast yfir áföllin og lifa góðu og
gefandi lífi. Ungt fólk verður að fá að
vita það. En byrjunin er að opna sig
um vandann. Við erum alltaf betur
sett ef við tölum um hlutina,“ segir
Lóa og segir geðheilbrigðiskerfið átta
sig vel á því.
„Ég finn að geðlæknar vilja að
þetta sé rætt, en vilja hafa ákveðin
bönd á því. Ég ber fulla virðingu
fyrir því og reyni að hlýða því sem
þeir segja. Eitt það allra mikilvæg-
asta sem Þórgunnur Ársælsdóttir
geðlæknir hefur að segja er að hún
hefur aldrei rætt við manneskju sem
sér eftir því að hafa verið bjargað
eftir sjálfsvígstilraun eða -hugsanir.
Þegar manneskjan er komin út úr
vanlíðaninni, þá sér enginn eftir því
að velja að lifa.“
OFT ERU ÞETTA MIKLAR
TILFINNINGAR, TENGDAR
HEILSU EÐA ÁFÖLLUM SEM
GANGA SAMT Í BYLGJUM.
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27L A U G A R D A G U R 2 . M A R S 2 0 1 9
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
8
-1
7
F
8
2
2
7
8
-1
6
B
C
2
2
7
8
-1
5
8
0
2
2
7
8
-1
4
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K