Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 36

Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 36
manni stóran slíkan blett á hand- leggnum. Svaf ekki vegna verkja Ástæðan fyrir því að Gunnar Karl svaf illa sem ungbarn voru sárir verkir. Einkennum sjúkdómsins átti eftir að fjölga. Af tólf einkennum sjúkdómsins hefur Gunnar Karl átta. Vinstri fótur hans fór að vaxa hraðar en sá hægri. Þegar Gunnar Karl var að byrja í grunnskóla var hann um 8 sentimetrum lengri og hann gekk með spelku. Hann fór í fjölda aðgerða til að hamla vext- inum. Hann var í stöðugum skoð- unum og tók sterk tauga- og verkja- lyf. Heilbrigði fóturinn tók svo fram úr þeim vinstri. Eftir því sem árin liðu kom í ljós að bæði mjöðm og hryggur urðu fyrir skakkaföllum. Þá varð mikill ofvöxtur í vinstra fæti. Það þurfti að taka af fætinum í skurðaðgerðum og vefja fótinn inn í teygjubindi til að halda bjúg í skefjum. Fóturinn var töluvert afmyndaður vegna bjúgsins. Fóturinn afmyndaður „Löppin var tekin af 16. janúar 2012, fyrir sjö árum. Þá hafði sú ákvörðun verið á borðinu í rúmlega tvö ár. Mér var sagt að það gæti gerst, að það þyrfti að taka hana af. Ég fékk góðan tíma til að melta þetta og var alveg tilbúinn þegar svo kom að því. Og maður þarf að vera tilbúinn til þess andlega. Þetta var bara orðið tíma- bært. Ég man eftir læknisskoðun- inni þegar þetta var ákveðið. Ég tók teygjubindið af og læknirinn sagði lítið. Tók upp símann, hringdi. Lagði á og tilkynnti mér hvenær aðgerðin færi fram. Hann tók bara af skarið,“ segir Gunnar Karl sem segist aldrei hafa séð eftir ákvörðuninni. „Sjúkdómurinn lagðist þungt á mig. Ég er samt sem áður þakklátur fyrir hvernig hann leggst á mig, eins fáránlega og það hljómar. Hann gæti alveg hafa lagst betur á mig en líka verr svo það verður að hugsa jákvætt. Ýmsir fylgikvillar hafa truflað mig en samt er ég heppinn. Þetta truflaði mig lítið þegar ég var barn. Ég æfði fótbolta á sumrin og skildi reyndar ekkert í því af hverju ég var svona lélegur. Ég hljóp auð- vitað svolítið hægar og dröslaði löppinni á eftir mér. Geggjað að búa í Eyjum Það var ekki fyrr en ég var kominn upp í 5. bekk að ég gat minna tekið þátt. Ég gat ekki verið með í ýmsum leikjum. En ég skil það samt alveg í dag, krakkar leika sér og eru ekk- ert að of hugsa hlutina. Þeir eru ekki vondir. Ég hafði það gott, fyrir það fyrsta er geggjað að búa í Vest- mannaeyjum og hafa náttúruna í kring. Amma og afi bjuggu rétt hjá okkur og ef mér leið eitthvað illa þá gat ég látið afa vita og hann fór með mig á bryggjurúnt. Það var svo gott fólk í kringum mig. Ég lét mér heldur ekki leiðast. Ég fann mér allt- af eitthvað að gera. Ætli ég hafi ekki prófað sjö mismunandi hljóðfæri. Og var ekki góður í að spila á neitt þeirra,“ segir hann og skellir upp úr. „Ég er forvitinn að eðlisfari og finnst gaman að prófa nýja hluti. Ég held að það hafi hjálpað. Ég er líka jákvæður að eðlisfari, það er alltaf eitthvað gott í sjónmáli.“ Með skel og húmor Gunnar Karl segist lítið spá í því í dag að hann sé með þennan sjúk- dóm. „Ég er í núinu, ég fæddist með þennan sjúkdóm og er því líklega meira brynjaður. Með meiri skel. Ég hef líka húmor fyrir sjálfum mér og mínum aðstæðum. Ég er líka hepp- inn með fólkið í kringum mig, ég veit ekki hvar ég væri án þess. For- eldrar mínir og systur mínar hafa reynst mér einstaklega vel í gegnum tíðina. Líka vinirnir, eins og ég fann vel þegar ég glímdi við veikindin í desember síðastliðnum. Það voru einstaklingar sem komu til mín á hverjum einasta degi sem ég lá inni svo lengi sem þau voru ekki í vinnu. Þótt þau gætu aðeins komið við í hálftíma var litið inn og spjallað. Svona hlutir eru dýrmætir og gefa manni ótrúlegan styrk í baráttunni áfram. Svo ef þau komust ekki var bara tekið gott spjall á Messenger í staðinn. Er bara venjuleg manneskja Stundum er mér sýnd vorkunn, það finnst mér einna helst leiðinlegt,“ segir hann og segist einna helst verða var við það á djamminu. „Ég er bara venjuleg manneskja. Mér finnst gaman að fara út að skemmta mér, fá mér bjór og svona. Er reyndar frekar rólegur í tíðinni. En það gerist helst á skemmtistöðum að fólk fer að atast í mér. Það er að hrósa mér, segja mér að ég sé algjör hetja, svo duglegur og svona. Og vill klessa hann,“ segir Gunnar og setur hnef- ann fram. „Þetta getur verið niður- lægjandi þótt ég viti vel að fólk vill vel. Þegar svona áreiti er stanslaust verður það erfitt.“ Hann hefur einnig fundið fyrir því að stundum sé komið fram við hann eins og hann sé ósjálfbjarga. „Ég var einu sinni úti að borða með mömmu og pabba. Þegar þjónninn hafði tekið niður pöntun þeirra sneri hann sér ekki að mér. Heldur spurði þau: Hvað má svo bjóða honum? Þá tók ég mjög ákveðinn orðið og sagði: Ég ætla að fá lambasteik og bjór með! Ég reyni að vera ekki dónalegur en set samt mörk,“ segir Gunnar Karl. Gunnar Karl býr á jarðhæð og er með gott aðgengi sem reyndi á þegar hann veiktist lífshættulega. Áður bjó hann á annarri hæð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI SJÚKDÓMURINN LAGÐIST ÞUNGT Á MIG. ÉG ER SAMT SEM ÁÐUR ÞAKK- LÁTUR FYRIR HVERNIG HANN LEGGST Á MIG, EINS FÁRÁNLEGA OG ÞAÐ HLJÓMAR. HANN GÆTI ALVEG HAFA LAGST BETUR Á MIG EN LÍKA VERR SVO ÞAÐ VERÐUR AÐ HUGSA JÁKVÆTT. ÝMSIR FYLGI- KVILLAR HAFA TRUFLAÐ MIG EN SAMT ER ÉG HEPPINN. Neurofibromatosis, taugatrefjaæxlager Neurofibromatosis 1 (NF1) er erfðasjúkdómur sem einkenn- ist af mislitum blettum á húð og góðkynja bandvefsæxlum eða hnútum sem vaxa út frá taugaslíðrum. Einkenni sjúk- dómsins geta verið marg- vísleg og fara eftir því hvar bandvefsæxlin myndast. Þau koma helst fram í húð, tauga- kerfi og stoðkerfi. Einn af hverjum fimm með NF1 er með alvarlegri ein- kenni. En um helmingur þeirra sem eru með NF1 hefur lítil sem engin ein- kenni. 1–2 er fjöldi barna sem bú- ast má við að greinist með sjúkdóminn á hverju ári. En að meðaltali greinist eitt barn af hverjum 3-4.000 með NF1 á hverju ári. Fyrstu einkenni sjúkdómsins eru ljós- brúnir blettir á húðinni, Café-au-lait blettir, en litnum hefur verið líkt við kaffi með mjólk. Meðferð Ekki er til lækning við NF1 og miðar meðferðin því að því að draga úr ein- kennum. Í þróun eru lyf sem eiga að hafa áhrif á myndun NF1-hnútanna. 2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -4 9 5 8 2 2 7 8 -4 8 1 C 2 2 7 8 -4 6 E 0 2 2 7 8 -4 5 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.