Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 49

Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 49
Landspítali er fjölmennasti vinnustaður landsins með hátt í 6000 starfsmenn. Spítalinn hefur víðtæku hlutverki að gegna sem aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús, og veitir bæði almenna og sérhæfða þjónustu, auk þess að vera miðstöð menntunar og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Gildandi skipurit spítalans byggist á sjö klínískum sviðum og fjórum stoðsviðum. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, þjónusta, mannauður og stöðugar umbætur. LANDSPÍTALI FRAMTÍÐARINNAR Landspítali auglýsir eftir fimm framkvæmdastjórum klínískra sviða til að leiða öfluga uppbyggingu og sókn næstu ára Framkvæmdastjórarnir heyra beint undir forstjóra og mynda, ásamt stjórnendum annarra klínískra sviða og stoðsviða, framkvæmdastjórn spítalans. Leitað er að kraftmiklum og reyndum stjórnendum sem hafa brennandi áhuga á að vinna með forstjóra að því að byggja upp sterka liðsheild og að framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn spítalans. Leitast er við að mynda samhentan hóp með fjölbreytta reynslu og bakgrunn. Framkvæmdastjórastöður eftirfarandi fimm sviða eru lausar til umsóknar 1. Flæðisvið: Á flæðisviði eru rekin móttaka bráðveikra og slasaðra, endurhæfing, þjónusta við aldraða sjúklinga, sjúkrahótel og flæðisdeild. Velta sviðsins er 9,3 milljarður og stöðugildi eru 634. 2. Geðsvið: Á geðsviði er miðstöð sér hæfðrar geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi, allt frá bráðaþjónustu og yfir í endurhæfingu, göngudeildir og samfélags geð­ þjónustu. Velta sviðsins er 5,5 milljarðar og stöðugildi eru 450. 3. Lyflækningasvið: Á lyflækningasviði er veitt almenn og sérhæfð læknis­ og hjúkrunarþjónusta á sviði lyf lækninga, á legu­ dag­, og göngudeildum, auk heimaþjónustu. Velta sviðsins er 13,5 milljarðar og stöðugildi eru 778. 4. Rannsóknarsvið: Rannsóknarsvið sinnir almennum og sérhæfðum þjónusturannsóknum fyrir Landspítala, aðrar heilbrigðisstofnanir og læknastofur, auk þess að reka Blóðbankann og heilbrigðis­ og upplýsinga tækni­ deild. Velta sviðsins er 8,5 milljarðar og stöðugildi eru 454. 5. Skurðlækningasvið: Á skurðlækningasviði er veitt almenn og sérhæfð meðferð á legu,­ dag­ og göngudeildum, auk þess að reka miðstöð um sjúkraskrárritun og næringarstofu. Velta sviðsins er 6,8 milljarðar og stöðugildi eru 445. Almennt starfssvið framkvæmdastjóra • Fagleg forysta um þjónustu við sjúklinga. • Forysta um uppbyggingu öryggismenningar og umbótastarfs. • Stefnumótun, markmiðasetning og áætlanagerð. • Uppbygging mannauðs og liðsheildar ásamt ábyrgð á starfsmannamálum. • Ábyrgð á fjármálum, fjárhagsáætlun og rekstri. • Efling kennslu og vísindastarfs á spítalanum. • Samhæfing á starfsemi sviðs við önnur svið og stoðeiningar. Mögulegt er að sinna klínískri eða akademískri vinnu (10%) meðfram framkvæmdastjórastarfi. Almennar menntunar- og hæfniskröfur • Brennandi áhugi á uppbyggingu Landspítala og inn leið­ ingu stefnu spítalans. • Reynsla af umbótastarfi, teymisvinnu og breytinga stjórn­ un í heilbrigðisþjónustu. • Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi leiðtoga­ og sam skipta hæfileikar. • Mikil hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku. • Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun. • Háskólapróf á heilbrigðissviði auk viðbótarmenntunar sem nýtist í starfinu er skilyrði. • Farsæl stjórnunar­ og rekstrarreynsla. Gert er ráð fyrir að ráðningatímabil framkvæmdastjóra hefjist 1. september 2019 og er ráðning til fimm ára, í samræmi við stefnu Landspítala um ráðningar stjórnenda. Mat á umsóknum verður í höndum valnefnda þar sem forstjóri Landspítala tekur virkan þátt, en forstjóri tekur ákvörðun um ráðningar í störfin. Áætlað er að fyrstu viðtöl vegna ofangreindra starfa verði haldin á tímabilinu 29. apríl ­ 17. maí og lokaviðtöl ásamt kynningum á framtíðarsýn fari fram 20.­24. maí. Frekari upplýsingar um störfin og ráðningarferlið veita Páll Matthíasson (pallmatt@landspitali.is) og Ásta Bjarnadóttir (astabj@landspitali.is). Nánari upplýsingar ásamt leiðbeiningum til umsækjenda um hvert starf er að finna á starfasíðu Landspítala, www.landspitali.is/mannaudur. Umsóknafrestur er til og með 1. april 2019. 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 8 -4 E 4 8 2 2 7 8 -4 D 0 C 2 2 7 8 -4 B D 0 2 2 7 8 -4 A 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.