Fréttablaðið - 02.03.2019, Qupperneq 50
Höfðaskóli á Skagaströnd
Staða skólastjóra laus til umsóknar
Sveitarfélagið Skagaströnd óskar eftir að ráða skólastjóra við Höfðaskóla á Skagaströnd.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir þekkingu, hæfni og áhuga til að veita faglega forystu í skólastarfi. Mikið
og gott starf hefur verið unnið í skólanum síðustu ár og þarf nýr skólastjóri að hafa áhuga á því að halda þeirri vinnu áfram og
þróa enn frekar. Skólinn notar spjaldtölvur í námi og kennslu með markvissum hætti og hafa kennarar sótt fjölmörg námskeið um
notkun þessara tækja í skólastarfi.
Nýr skólastjóri þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. ágúst n.k.
Í Höfðaskóla eru um 80 nemendur í 1.-10.b. og koma nemendur frá Skagaströnd og Skagabyggð. Kennarar og annað starfsfólk
skólans mynda vel menntað og áhugasamt teymi. Húsnæði skólans og allur aðbúnaður er góður. Stutt er í íþróttahús og
tónlistarskóla og er gott samstarf þar á milli.
Hlutverk og ábyrgð
• Veita faglega forystu og móta framtíðarsýní samræmi við
skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla og
lög umgrunnskóla.
• Stýra og bera ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi
skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum,
starfsþróun og vinnutilhögun.
• Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Leyfisbréf sem grunnskólakennari og farsæl kennslureynsla
í grunnskóla.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða farsæl
stjórnunarreynsla æskileg.
• Vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á
þróunarstarfi.
• Vilji og áhugi á nýtingu upplýsingtækni í skólastarfi, þ.m.t.
snjalltækja.
• Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og metnaður.
• Færni og reynsla í starfsmannastjórnun sem og í fjármála-
stjórnun og áætlanagerð er kostur.
Umsókn
Umsóknarfrestur er til og með 24. mars n.k. Umsóknum skal
skila á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is
Með umsókn skal skila starfsferilsskrá, nöfnum tveggja
umsagnaraðila, stuttri kynningu á umsækjanda og
greinargerð þar sem umsækjandi gerir grein fyrir sýn sinni
á skólamál og faglegri reynslu og getu sem nýtist í starfi.
Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr
sakaskrá.
Frekari upplýsingar um starfið veitir skólastjóri í síma
4522800 eða netfangið hofdaskoli@hofdaskoli.is Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin. Réttur áskilinn til að hætta við ráðningu og/eða
auglýsa stöðuna að nýju.
Loftorka Reykjavík ehf.
Miðhrauni 10
210 Garðabæ.
Jarðvinnuverkstjóri
Loftorka Reykjavík ehf óskar eftir að ráða
jarðvinnuverkstjóra til starfa.
Starfsvið:
• Stjórnun á jarðvinnuframkvæmdum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Reynsla og menntun sem nýtist í starfi.
• Bílpróf og vinnuvélaréttindi.
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu.
• Frumkvæði og faglegur metnaður.
• Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi.
• Stundvísi.
Loftorka Reykjavík ehf. er jarðvinnu og malbikunarverktaki
sem starfar á höfuðborgarsvæðinu í framkvæmdum fyrir
byggingar og opinbera aðila.
Umsóknir berist Loftorku Reykjavík ehf, á netfangið
loftorka@loftorka.com
Upplýsingar veitir Andrés Sigurðsson í síma 893227
Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt
upplýsingum um þá menntun og hæfni sem gerð eru til
starfsins, þar með talið menntunar- og starfsferilsskrá.
LÆKNASTÖÐUR Á HEILBRIGÐISSTOFNUN AUSTURLANDS
SÉRFRÆÐINGAR Í HEIMILISLÆKNINGUM
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar að ráða tvo lækna til starfa í heilsugæslu HSA með aðalstarfsstöð á
Egilsstöðum og í Fjarðabyggð. Önnur staðan er 80-100% og hin 50-100% og báðar veitast frá 01.06. 2019 eða eftir nánara
samkomulagi.
Austurland er stórt og dreifbýlt með um 11 þúsund íbúa, þar sem HSA sinnir heilsugæslu á 11 starfsstöðvum, rekur
Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað og þrjár hjúkrunardeildir. HSA kemur að kennslu læknanema, kandídata
og sérfræðinema í heimilislækningum. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu lækna með öðru fagfólki, með metnað og
framsækni að leiðarljósi til þróunar heilbrigðisþjónustu. HSA fagnar um þessar mundir tuttugu ára starfsafmæli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn læknisstörf.
- Heilsuvernd.
- Vaktþjónusta.
- Kennsla nema.
- Þátttaka í vísindastarfi, gæða- og umbótaverkefnum.
Hæfnikröfur
- Sérfræðimenntun í heimilislækningum.
- Sjálfstæði í starfi, skipuleg og öguð vinnubrögð og faglegur metnaður.
- Reynsla af og vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu).
- Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki.
- Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði.
- Íslenskukunnátta áskilin.
Umsóknarfrestur er til 10.04.2019.
Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra,
Lagarási 22, 700 Egilsstöðum.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar
um nám, starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Notkun tóbaks og rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
Nánari upplýsingar veita: Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3052 og 860-6830, netf. petur@hsa.is,
Emil Sigurjónsson, mannauðsstjóri, s. 470-3053 og 895-2488, netf. emil@hsa.is og Guðjón Hauksson, forstjóri HSA,
s. 470-3051, 470-1437 og 774-5030, netf. gudjonh@hsa.is.
Heilbrigðisstofnun Austurlands starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög.
Leikskólaráðgjafi
hjá skólaþjónustu
Sveitarfélagið Árborg auglýsir lausa til umsóknar stöðu
leikskólaráðgjafa. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi
með brennandi áhuga á skólaþróun. Skólaþjónusta og skólar
í sveitarfélaginu vinna að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu
við börn, foreldra og skóla. Áhersla er lögð á snemmtæka
íhlutun, öflug tengsl skóla og skólastiga og fjölbreytileg
skólaþróunarverkefni sem unnin eru í anda lærdómssam-
félagsins. Í Sveitarfélaginu Árborg eru um 9.500 íbúar, fimm
leikskólar og þrír grunnskólar með um 2000 börn.
Helstu verkefni
• Ráðgjöf til starfsfólks leikskóla varðandi starfshætti og
starfsþróun
• Þátttaka í fag- og nemendateymum skóla og skólaþjónustu
• Þróun úrræða fyrir börn í samstarfi skóla, skólaþjónustu o.fl.
• Ráðgjöf og stuðningur við skólastjórnendur í starfsmannamálum o.fl.
• Ráðgjöf og fræðsla til foreldra leikskólabarna
• Stuðningur við áætlanagerð leikskóla, skimanir og þróunarstarf
• Aðstoð við mat á sérkennsluþörf leikskóla
• Aðstoð við fyrirlögn, úrvinnslu og túlkun skimana
• Verkefni á sviði daggæslumála
• Ýmis önnur verkefni á skrifstofu skólaþjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leyfisbréf leikskólakennara og reynsla af starfi í leikskóla er
skilyrði
• Framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og kennslufræða er æskileg
• Góðir skipulagshæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
• Þekking og reynsla af ráðgjafarstörfum og rekstri leikskóla er
æskileg
• Færni í að tjá sig í ræðu og riti
Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, fræðslust-
jóri, sími 480-1900, 852-3918. Sótt er um starfið á vef
Árborgar: www.arborg.is. Umsóknarfrestur er til 17. mars
2019. Ráðning frá 1. maí 2019 eða eftir samkomulagi. Starfið
hæfir jafnt konum sem körlum. Laun fara eftir kjarasamningi
launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
8
-5
3
3
8
2
2
7
8
-5
1
F
C
2
2
7
8
-5
0
C
0
2
2
7
8
-4
F
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K