Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 52

Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 52
Fossaleynir 17 (Grafarvogi), 112 Reykjavík | www.studlar.is Tvær stöður sálfræðinga við meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga að Stuðlum eru lausar til umsóknar Lausar eru til umsóknar tvær stöður sálfræðinga á Stuðlum. Stuðlar starfa á grundvelli barnaverndarlaga og reglugerðar um Meðferðarstöð ríkisins. Stuðlar sinna unglingum á aldrinum 12-18 ára með hegðunarerfiðleika, þ.m.t. vímuefnavanda. Um fullt starf er að ræða en möguleiki er að semja um lægra starfshlutfall. Nánari upplýsingar veitir Funi Sigurðsson, forstöðumaður Stuðla í síma 530-8800 eða á netfanginu funi@bvs.is. Við úrvinnslu umsókna gildir mat forstöðumanns Stuðla á hæfni og eiginleikum umsækjanda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins við Sálfræðingafélag Íslands. Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík eða á netfangið bvs@bvs. is. Vinsamlegast athugið að umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 18. mars 2019 og þarf umsækjandi helst að geta hafið störf sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Auglýsingin gildir í 6 mánuði frá birtingu. Starfssvið Meðal verkefna sálfræðings er: • Greining og meðferð unglinga og vinna með fjölskyldum þeirra. • Gerð og framkvæmd meðferðaráætlana. • Ráðgjöf og stuðningur við barnaverndarnefndir, skóla sem og samvinna við ýmsar aðrar stofnanir. • Ráðgjöf og handleiðsla við starfsfólk Stuðla sem og við aðrar meðferðarstofnanir. • Þátttaka í almennri stefnumótun. • Þátttaka í ART (agression replacement training) og notkun áhugahvetjandi samtals (motivational interviewing). Persónulegir eiginleikar • Lögð er áhersla á persónulega eiginleika, svo sem góða samstarfshæfni og jákvæð viðhorf til skjólstæðinga. Hæfnikröfur: • Réttindi til að starfa sem sálfræðingur. • Þekking og reynsla á meðferð og greiningu unglinga er æskileg. • Þekking og færni í hugrænni atferlismeðferð, fjölskyldumeðferð, atferlismótun og félagsnámskenningum. • Frumkvæði í starfi og skipulagshæfileikar. • Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í teymi. Sumarstörf hjá Ísafjarðarbæ 2019 Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar - Sundlaugarverðir og vallarstarfsmaður Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar auglýsa eftir sundlau- garvörðum í sumarstörf við sundlaugarnar á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Jafnframt er auglýst eftir öflugum starfsmanni á vallarsvæðið á Ísafirði. Æskilegast er að sundlaugarverðir geti hafið störf í lok maí 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% störf í vaktavinnu. Vallarstarfsmaður hefur störf 1. maí 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Störfin eru tímabundin til loka ágústmánaðar. Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar – Yfirflokkstjóri Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir yfirflokkstjóra. Vinnuskólinn er útiskóli sem í sumar hefur aðsetur í Fjarðarstræti og Sundhöllinni, Austurvegi 9. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% starf til þriggja mánaða. Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar - Almennur flokkstjóri Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar er útiskóli þar sem starfið gefur einstaka möguleika á að njóta útivistar og eiga þátt í að prýða umhverfið í Ísafjarðarbæ. Óskað er eftir ábyrgðarful- lum flokkstjórum til starfa á Ísafirði og Þingeyri. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% störf til þriggja mánaða. Starfsmenn í garðyrkjudeild Ísafjarðarbæjar Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir starfsmön- num til sumarstarfa í garðyrkjudeild. Um er að ræða 100% störf við skemmtilega útivinnu á tímabilinu 14. maí til 16. ágúst eða eftir nánara samkomulagi. Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar - Sumarstarfsmenn Auglýst er eftir sumarstarfsmönnum við hin ýmsu störf hjá Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar (áhaldahúsi). Leitað er eftir starfsfólki 18 ára og eldra sem hefur áhuga á útivinnu. Starfstímabil er 14. maí til 16. ágúst og er vinnutími milli kl. 07.20 - 17.00 virka daga, nema til hádegis á föstudögum. Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar - Sumarstarfsmenn Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar óskar eftir sumarstarfsmön- num í blönduð störf við málefni fatlaðra og aldraðra. Störfin sem um ræðir eru við stuðnings- og stoðþjónustu (frekari liðveisla, félagsleg heimaþjónusta), hæfingu, sólarhringsþ- jónustu og sumarþjónustu við fötluð börn. Um er að ræða ýmist dag- eða vaktavinnu þar sem starfshlutfall er 40-100%. Starfstímabil er frá 20. maí til loka ágúst. Upplýsingamiðstöð – Sumastarfsmenn Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði óskar eftir að ráða tvo sumarstarfsmenn. Í starfinu felst m.a. að veita gestum upplýsingamiðstöðvar aðstoð og upplýsingar eftir þörfum, einkum varðandi Vestfirði en þó einnig um landið í heild. Um er að ræða fullt starf í júní, júlí og ágúst. Byggðasafn Vestfjarða – Gæslumaður Byggðasafn Vestfjarða auglýsir eftir gæslumanni í Turn- húsið í 100% starf tímabilið frá byrjun maí fram til 1. ágúst 2019. Um er að ræða almenna afgreiðslu og upplýsingave- itu um sýningar safnins og safnasvæðið, auk ýmiskonar aðstoðar og þrifa. Hafnir Ísafjarðarbæjar - Skipstjóri Hafnir Ísafjarðarbæjar auglýsa laust til umsóknar 100% starf skipstjóra í sumarafleysingu frá 1. maí til 30. september. Skipstjóri fer m.a. með stjórn lóðsbáts Ísafjarðarbæjar og ber almenna ábyrgð í samræmi við skyldur skipstjóra. Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveit- arfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til og með 19. mars 2019. Frekari upplýsingar um störfin má nálgast á vef Ísafjarðar- bæjar (www.isafjordur.is) undir „Laus störf“. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin. - Við þjónum með gleði til gagns - ÍSAFJARÐARBÆR Upplýsingar veita eftirtaldir aðilar: Heimahjúkrun Hraunbæ 119 – Dagný s. 411-9600 dagny.haengsdottir@reykjavik.is Heimahjúkrun Lindargata 59 – Kristín s. 411-9650 Kristin.Blondal@reykjavik.is Heimahjúkrun Efstaleiti 1 – Ragna Lilja s. 411-1590 ragna.l.gardarsdottir@reykjavik.is Sumarstörf í heimahjúkrun Reykjavíkurborg veitir heilbrigðisþjónustu í heimahjúkrun. Enn eru laus spennandi og gefandi sumarstörf á starfstöðunum. Leitað er eftir hjúkrunarfræðingum, hjúkrunarnemum, sjúkraliðum, sjúkraliðanemum og læknanemum til starfa. Fjölbreytt störf í vaktavinnu við heilbrigðisþjónustu inni á heimilum þjónustuþega. Um er að ræða eftirtalda vinnustaði: Heimahjúkrun Efstaleiti 1, heimahjúkrun Lindargötu 59 og heimahjúkrun Hraunbæ 119. VELFERÐARSVIÐ Hægt er að sækja um störfin á vef Reykjavíkurborgar: http://reykjavik.is/sumarstorf Hjúkrunarfræðingar – Hjúkrunarnemar Sjúkraliðar – Sjúkraliðanemar – Læknanemar 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -6 6 F 8 2 2 7 8 -6 5 B C 2 2 7 8 -6 4 8 0 2 2 7 8 -6 3 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.