Fréttablaðið - 02.03.2019, Qupperneq 52
Fossaleynir 17 (Grafarvogi), 112 Reykjavík | www.studlar.is
Tvær stöður sálfræðinga við meðferðarstöð ríkisins
fyrir unglinga að Stuðlum eru lausar til umsóknar
Lausar eru til umsóknar tvær stöður sálfræðinga á Stuðlum. Stuðlar starfa á grundvelli barnaverndarlaga og reglugerðar um
Meðferðarstöð ríkisins. Stuðlar sinna unglingum á aldrinum 12-18 ára með hegðunarerfiðleika, þ.m.t. vímuefnavanda. Um fullt starf er að
ræða en möguleiki er að semja um lægra starfshlutfall.
Nánari upplýsingar veitir Funi Sigurðsson, forstöðumaður Stuðla í síma 530-8800 eða á netfanginu funi@bvs.is.
Við úrvinnslu umsókna gildir mat forstöðumanns Stuðla á hæfni og eiginleikum umsækjanda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
ríkisins við Sálfræðingafélag Íslands. Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík eða á netfangið bvs@bvs.
is. Vinsamlegast athugið að umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 18. mars 2019 og þarf umsækjandi helst að geta hafið
störf sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Auglýsingin gildir í 6 mánuði frá birtingu.
Starfssvið
Meðal verkefna sálfræðings er:
• Greining og meðferð unglinga og vinna með fjölskyldum þeirra.
• Gerð og framkvæmd meðferðaráætlana.
• Ráðgjöf og stuðningur við barnaverndarnefndir, skóla sem og
samvinna við ýmsar aðrar stofnanir.
• Ráðgjöf og handleiðsla við starfsfólk Stuðla sem og við aðrar
meðferðarstofnanir.
• Þátttaka í almennri stefnumótun.
• Þátttaka í ART (agression replacement training) og notkun
áhugahvetjandi samtals (motivational interviewing).
Persónulegir eiginleikar
• Lögð er áhersla á persónulega eiginleika, svo sem góða
samstarfshæfni og jákvæð viðhorf til skjólstæðinga.
Hæfnikröfur:
• Réttindi til að starfa sem sálfræðingur.
• Þekking og reynsla á meðferð og greiningu unglinga er æskileg.
• Þekking og færni í hugrænni atferlismeðferð, fjölskyldumeðferð,
atferlismótun og félagsnámskenningum.
• Frumkvæði í starfi og skipulagshæfileikar.
• Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í teymi.
Sumarstörf hjá
Ísafjarðarbæ 2019
Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar -
Sundlaugarverðir og vallarstarfsmaður
Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar auglýsa eftir sundlau-
garvörðum í sumarstörf við sundlaugarnar á Ísafirði,
Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Jafnframt er auglýst eftir
öflugum starfsmanni á vallarsvæðið á Ísafirði. Æskilegast
er að sundlaugarverðir geti hafið störf í lok maí 2019 eða
eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% störf í
vaktavinnu. Vallarstarfsmaður hefur störf 1. maí 2019 eða
eftir nánara samkomulagi. Störfin eru tímabundin til loka
ágústmánaðar.
Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar – Yfirflokkstjóri
Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir yfirflokkstjóra.
Vinnuskólinn er útiskóli sem í sumar hefur aðsetur í
Fjarðarstræti og Sundhöllinni, Austurvegi 9. Æskilegast er
að viðkomandi geti hafið störf í lok maí 2019 eða eftir nánara
samkomulagi. Um er að ræða 100% starf til þriggja mánaða.
Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar - Almennur flokkstjóri
Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar er útiskóli þar sem starfið gefur
einstaka möguleika á að njóta útivistar og eiga þátt í að
prýða umhverfið í Ísafjarðarbæ. Óskað er eftir ábyrgðarful-
lum flokkstjórum til starfa á Ísafirði og Þingeyri. Æskilegast
er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí 2019 eða eftir
nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% störf til þriggja
mánaða.
Starfsmenn í garðyrkjudeild Ísafjarðarbæjar
Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir starfsmön-
num til sumarstarfa í garðyrkjudeild. Um er að ræða 100%
störf við skemmtilega útivinnu á tímabilinu 14. maí til 16.
ágúst eða eftir nánara samkomulagi.
Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar -
Sumarstarfsmenn
Auglýst er eftir sumarstarfsmönnum við hin ýmsu störf hjá
Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar (áhaldahúsi). Leitað er
eftir starfsfólki 18 ára og eldra sem hefur áhuga á útivinnu.
Starfstímabil er 14. maí til 16. ágúst og er vinnutími milli kl.
07.20 - 17.00 virka daga, nema til hádegis á föstudögum.
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar - Sumarstarfsmenn
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar óskar eftir sumarstarfsmön-
num í blönduð störf við málefni fatlaðra og aldraðra. Störfin
sem um ræðir eru við stuðnings- og stoðþjónustu (frekari
liðveisla, félagsleg heimaþjónusta), hæfingu, sólarhringsþ-
jónustu og sumarþjónustu við fötluð börn. Um er að ræða
ýmist dag- eða vaktavinnu þar sem starfshlutfall er 40-100%.
Starfstímabil er frá 20. maí til loka ágúst.
Upplýsingamiðstöð – Sumastarfsmenn
Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði óskar eftir að ráða
tvo sumarstarfsmenn. Í starfinu felst m.a. að veita gestum
upplýsingamiðstöðvar aðstoð og upplýsingar eftir þörfum,
einkum varðandi Vestfirði en þó einnig um landið í heild.
Um er að ræða fullt starf í júní, júlí og ágúst.
Byggðasafn Vestfjarða – Gæslumaður
Byggðasafn Vestfjarða auglýsir eftir gæslumanni í Turn-
húsið í 100% starf tímabilið frá byrjun maí fram til 1. ágúst
2019. Um er að ræða almenna afgreiðslu og upplýsingave-
itu um sýningar safnins og safnasvæðið, auk ýmiskonar
aðstoðar og þrifa.
Hafnir Ísafjarðarbæjar - Skipstjóri
Hafnir Ísafjarðarbæjar auglýsa laust til umsóknar 100% starf
skipstjóra í sumarafleysingu frá 1. maí til 30. september.
Skipstjóri fer m.a. með stjórn lóðsbáts Ísafjarðarbæjar og
ber almenna ábyrgð í samræmi við skyldur skipstjóra.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveit-
arfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur um
ofangreind störf er til og með 19. mars 2019.
Frekari upplýsingar um störfin má nálgast á vef Ísafjarðar-
bæjar (www.isafjordur.is) undir „Laus störf“. Við hvetjum
konur jafnt sem karla til að sækja um störfin.
- Við þjónum með gleði til gagns -
ÍSAFJARÐARBÆR
Upplýsingar veita eftirtaldir aðilar:
Heimahjúkrun Hraunbæ 119 – Dagný s. 411-9600
dagny.haengsdottir@reykjavik.is
Heimahjúkrun Lindargata 59 – Kristín s. 411-9650
Kristin.Blondal@reykjavik.is
Heimahjúkrun Efstaleiti 1 – Ragna Lilja s. 411-1590
ragna.l.gardarsdottir@reykjavik.is
Sumarstörf í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg veitir heilbrigðisþjónustu í heimahjúkrun. Enn eru laus spennandi
og gefandi sumarstörf á starfstöðunum. Leitað er eftir hjúkrunarfræðingum,
hjúkrunarnemum, sjúkraliðum, sjúkraliðanemum og læknanemum til starfa.
Fjölbreytt störf í vaktavinnu við heilbrigðisþjónustu inni á heimilum þjónustuþega.
Um er að ræða eftirtalda vinnustaði:
Heimahjúkrun Efstaleiti 1, heimahjúkrun Lindargötu 59 og
heimahjúkrun Hraunbæ 119.
VELFERÐARSVIÐ
Hægt er að sækja um störfin á vef
Reykjavíkurborgar:
http://reykjavik.is/sumarstorf
Hjúkrunarfræðingar – Hjúkrunarnemar
Sjúkraliðar – Sjúkraliðanemar – Læknanemar
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
8
-6
6
F
8
2
2
7
8
-6
5
B
C
2
2
7
8
-6
4
8
0
2
2
7
8
-6
3
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K