Fréttablaðið - 02.03.2019, Side 53

Fréttablaðið - 02.03.2019, Side 53
Læknisstaða á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands SÉRFRÆÐINGUR Í LYFLÆKNINGUM Laus er til umsóknar staða sérfræðings í lyflækningum við Umdæmissjúkrahús Austurlands/HSA í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur til greina og starfið gæti hentað 2-3 læknum að deila með sér. Staðan veitist frá 1. júní 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð Þátttaka í daglegri læknisþjónustu á deildum umdæmissjúkrahússins og heilsugæslunnar þar. Þetta innifelur m.a. vaktskyldu, samskipti og þjónustu við sjúklinga, kennslu og þverfaglega samvinnu (teymisvinnu). Hæfnikröfur Fullgild sérfræðiréttindi í almennum lyflækningum. Sjálfstæði í starfi, skipuleg og öguð vinnubrögð og faglegur metnaður. Reynsla af og vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu). Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2019. Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Notkun tóbaks og rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. Nánari upplýsingar veita: Jón Sen, forstöðulæknir Umdæmissjúkrahúss Austurlands, s. 470-1450 og 840-4144, netf. jon@hsa.is, Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3052 og 860-6830, netf. petur@hsa.is, Emil Sigurjónsson, mannauðsstjóri, s. 470-3053 og 895-2488, netf. emil@hsa.is og Guðjón Hauksson, forstjóri HSA, s. 470-3051, 470-1437 og 774-5030, netf. gudjonh@hsa.is. Umdæmissjúkrahús Austurlands/HSA í Neskaupstað starfrækir blandaða lyf- og handlækningadeild, hjúkrunardeild, fæðingarþjónustu og endurhæfingardeild ásamt stoðdeildum, sem og heilsugæslu fyrir íbúa í Neskaupstað og Mjóafirði. Auk lyflæknis starfa svæfingalæknir, skurðlæknir og deildarlæknir á sjúkrahúsinu. Þjónustusvæði þess nær frá Bakkafirði til Djúpavogs, svæðis sem telur um 11.000 íbúa. Meginhlutverk sjúkrahússins er að veita almenna sjúkrahúsþjónustu samanber lög um heilbrigðisþ- jónustu nr. 40/2007 og það er hlekkur í þjónustukeðju HSA, sem starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Á þjónustusvæði HSA eru auk um- dæmissjúkrahússins sjö heilsugæslur, en alls eru starfseiningarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu. Fjarðabyggð er ákjósanlegur kostur jafnt í starfi og leik: Læknateymið Sérfræðingur í lyflækningum myndar ásamt skurðlækni, svæfingalækni, deildarlækni og heimilislækni öflugt teymi lækna við sjúkrahúsið. Sjúkrahúsið er vel búið tækjum, s.s. CT tæki, ómtæki af nýjustu gerð og rannsóknar- stofan er góð. Farandsérfræðingar í ýmsum greinum heimsækja sjúkrahúsið og sinna þannig sérfræðiþ- jónustu í nærumhverfinu. Samfélagið Í Neskaupstað er sterkt skólasam- félag; leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og verk- menntaskóli. Spölkorn er í næsta menntaskóla yfir á Fljótsdalshéraði. Vegalengdir eru að jafnaði stuttar og fólk því fljótt í förum milli staða, hvort sem um er að ræða t.d. skóla eða þjónustu af ýmsum toga. Íbúarnir eru samheldnir og samfélagið líflegt. Íþróttir Íþróttalífið á svæðinu er bæði fjölbreytt og fjörugt, hvort sem um er að ræða fótbolta, blak, sund, glímu, hestamennsku eða karate. Oddsskarð er skíðasvæði í fjöllunum milli Norðfjarðar og Eskifjarðar. Það er rómað fyrir náttúrufegurð og góðan aðbúnað. Mjög góður 9 holu golfvöllur er í Norðfirði. Æfingagjöld barna þykja hér hagstæðari en víða annars staðar. Samgöngur Hin nýju Oddsskarðsgöng hafa stórbætt samgöngur í Fjarðabyggð líkt og Fáskrúðs- fjarðargöngin gerðu einnig á sínum tíma og stuðla bæði að greiðari samgöngum um allt sveitarfélagið. Egilsstaðaflugvöllur er í aðeins klukku- stundar akstursfjarlægð. Náttúrufegurð Náttúra Austurlands er í senn mikilúðleg og fíngerð. Útivistarfólk á auðvelt með að finna eitthvað við sitt hæfi frá fjörum til fjalla og náttúruunnendur eru óvíða betur í sveit settir en einmitt í Fjarðabyggð. Hvort sem menn vilja lóna á fjörðum eða sigra fjöll er það allt innan seilingar. Áhugafólk um veiðar hefur fjölbreytta möguleika til sjós og lands og allir eru þeir nærtækari en menn gæti að óreyndu grunað. Please apply before 10th of March through our recruitment site lsretail.com/jobs Product Owner LS One The Product Owner of LS One is directly involved in the development of LS One, takes part in design and strategy meetings, and manages the product roadmap. If you have product owner experience, solid programming skills, working knowledge of C#, .NET and MS SQL Server, communication skills, and you aspire to work on exciting tasks with a great team then this might be perfect opportunity for you! BSc degree in Computer Science or similar and at least five years’ relevant work-experience is required. Further details: https://www.lsretail.com/jobs/ Bid and Licensing Manager The Bid and Licensing Manager manages the software licensing team, besides overseeing the bid process for large accounts directly, and in cooperation with LS Retail partners around the world and various stakeholders within the company. If you have a proven leadership track record, strong commercial skills, are fluent in spoken and written English, then this might be the perfect job for you. A degree in business, engineering or similar, and at least five years’ management experience is required. Further details: https://www.lsretail.com/jobs/ We make business easy 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 8 -7 5 C 8 2 2 7 8 -7 4 8 C 2 2 7 8 -7 3 5 0 2 2 7 8 -7 2 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.