Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 53
Læknisstaða á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands
SÉRFRÆÐINGUR Í LYFLÆKNINGUM
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í lyflækningum við Umdæmissjúkrahús Austurlands/HSA í Neskaupstað.
Starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur til greina og starfið gæti hentað 2-3 læknum að deila með sér.
Staðan veitist frá 1. júní 2019 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í daglegri læknisþjónustu á deildum umdæmissjúkrahússins og heilsugæslunnar þar. Þetta innifelur m.a. vaktskyldu,
samskipti og þjónustu við sjúklinga, kennslu og þverfaglega samvinnu (teymisvinnu).
Hæfnikröfur
Fullgild sérfræðiréttindi í almennum lyflækningum.
Sjálfstæði í starfi, skipuleg og öguð vinnubrögð og faglegur metnaður.
Reynsla af og vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu).
Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki.
Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði.
Íslenskukunnátta áskilin.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2019.
Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra,
Lagarási 22, 700 Egilsstöðum.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám,
starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á
innsendum umsóknargögnum.
Notkun tóbaks og rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
Nánari upplýsingar veita: Jón Sen, forstöðulæknir Umdæmissjúkrahúss Austurlands, s. 470-1450 og 840-4144, netf. jon@hsa.is,
Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3052 og 860-6830, netf. petur@hsa.is, Emil Sigurjónsson, mannauðsstjóri,
s. 470-3053 og 895-2488, netf. emil@hsa.is og Guðjón Hauksson, forstjóri HSA, s. 470-3051, 470-1437 og 774-5030, netf. gudjonh@hsa.is.
Umdæmissjúkrahús Austurlands/HSA í Neskaupstað starfrækir blandaða lyf- og handlækningadeild, hjúkrunardeild, fæðingarþjónustu og endurhæfingardeild ásamt
stoðdeildum, sem og heilsugæslu fyrir íbúa í Neskaupstað og Mjóafirði. Auk lyflæknis starfa svæfingalæknir, skurðlæknir og deildarlæknir á sjúkrahúsinu. Þjónustusvæði
þess nær frá Bakkafirði til Djúpavogs, svæðis sem telur um 11.000 íbúa. Meginhlutverk sjúkrahússins er að veita almenna sjúkrahúsþjónustu samanber lög um heilbrigðisþ-
jónustu nr. 40/2007 og það er hlekkur í þjónustukeðju HSA, sem starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Á þjónustusvæði HSA eru auk um-
dæmissjúkrahússins sjö heilsugæslur, en alls eru starfseiningarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Fjarðabyggð er ákjósanlegur kostur
jafnt í starfi og leik:
Læknateymið Sérfræðingur í lyflækningum myndar
ásamt skurðlækni, svæfingalækni, deildarlækni og
heimilislækni öflugt teymi lækna við sjúkrahúsið.
Sjúkrahúsið er vel búið tækjum, s.s. CT tæki, ómtæki
af nýjustu gerð og rannsóknar-
stofan er góð. Farandsérfræðingar í ýmsum greinum
heimsækja sjúkrahúsið og sinna þannig sérfræðiþ-
jónustu í nærumhverfinu.
Samfélagið Í Neskaupstað er sterkt skólasam-
félag; leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og verk-
menntaskóli. Spölkorn er í næsta menntaskóla yfir á
Fljótsdalshéraði. Vegalengdir eru að jafnaði stuttar
og fólk því fljótt í förum milli staða, hvort sem um
er að ræða t.d. skóla eða þjónustu af ýmsum toga.
Íbúarnir eru samheldnir og samfélagið líflegt.
Íþróttir Íþróttalífið á svæðinu er bæði
fjölbreytt og fjörugt, hvort sem um er að ræða
fótbolta, blak, sund, glímu, hestamennsku eða
karate. Oddsskarð er skíðasvæði í fjöllunum
milli Norðfjarðar og Eskifjarðar. Það er rómað fyrir
náttúrufegurð og góðan aðbúnað.
Mjög góður 9 holu golfvöllur er í Norðfirði.
Æfingagjöld barna þykja hér hagstæðari en víða
annars staðar.
Samgöngur Hin nýju Oddsskarðsgöng hafa
stórbætt samgöngur í Fjarðabyggð líkt og Fáskrúðs-
fjarðargöngin gerðu einnig á sínum tíma og stuðla
bæði að greiðari samgöngum um allt sveitarfélagið.
Egilsstaðaflugvöllur er í aðeins klukku- stundar
akstursfjarlægð.
Náttúrufegurð Náttúra Austurlands er í senn
mikilúðleg og fíngerð. Útivistarfólk á auðvelt með
að finna eitthvað við sitt hæfi frá fjörum til fjalla og
náttúruunnendur eru óvíða betur í sveit settir en
einmitt í Fjarðabyggð. Hvort sem menn vilja lóna á
fjörðum eða sigra fjöll er það allt innan seilingar.
Áhugafólk um veiðar hefur fjölbreytta möguleika til
sjós og lands og allir eru þeir nærtækari en menn
gæti að óreyndu grunað.
Please apply before 10th of March through our
recruitment site lsretail.com/jobs
Product Owner LS One
The Product Owner of LS One is directly involved in the development
of LS One, takes part in design and strategy meetings, and manages
the product roadmap.
If you have product owner experience, solid programming skills,
working knowledge of C#, .NET and MS SQL Server, communication
skills, and you aspire to work on exciting tasks with a great team then
this might be perfect opportunity for you! BSc degree in Computer
Science or similar and at least five years’ relevant work-experience is
required. Further details: https://www.lsretail.com/jobs/
Bid and Licensing Manager
The Bid and Licensing Manager manages the software licensing team,
besides overseeing the bid process for large accounts directly, and in
cooperation with LS Retail partners around the world and various
stakeholders within the company.
If you have a proven leadership track record, strong commercial
skills, are fluent in spoken and written English, then this might
be the perfect job for you. A degree in business, engineering or
similar, and at least five years’ management experience is required.
Further details: https://www.lsretail.com/jobs/
We make business easy
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
8
-7
5
C
8
2
2
7
8
-7
4
8
C
2
2
7
8
-7
3
5
0
2
2
7
8
-7
2
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K