Fréttablaðið - 02.03.2019, Síða 80

Fréttablaðið - 02.03.2019, Síða 80
Plötusnúðahópurinn Hausar stendur fyrir drum & bass klúbbakvöldi í kvöld á Bravó, Laugavegi 22 í Reykjavík, en húsið hefur verið vagga raftón- listarmenningar og drum & bass senunnar hér á landi undanfarna tvo áratugi. Öll helstu tímabil raftónlistarmenningar hafa verið viðloðandi Laugaveg 22, meðal annars Skýjum Ofar, Elf 19 og breakbeat.is, en húsið hýsti lengi skemmtistaðinn 22 sællar minn- ingar. Hópurinn lofar brjáluðu fjöri langt fram á nótt en þessi kvöld hafa löngum verið afar vel sótt og færri komist að en vilja. „Við ætlum að bjóða upp á allar helstu stefnur drum & bass frá upphafi, þar með talið Jungle, Tech Step, Liquid Funk og Neuro Funk ásamt „klúbba-neglum“. Við hvetjum alla til að mæta snemma á Bravó en það verður frítt inn. Staðurinn verður örugglega fljótur að fyllast en við byrjum á slaginu kl. 22 og hættum allavega ekki fyrr en 4.30 um nótt,“ segir Ólafur Jónsson sem gengur undir nafninu Untitled í hópnum. Aðrir meðlimir Hausa eru Daniel Kristinn Gunnarsson (Croax), Bjarni Benediktsson (Bjarni Ben), Björgvin Loftur Jóns- son (Nightshock) og Halldór Hrafn Jónsson (Junglizt). Byrjaði í heimapartíum Plötusnúðahópurinn Hausar var upphaflega stofnaður árið 2012 en meðlimir hans eiga það allir sameiginlegt að hafa langa reynslu bak við spilarana og hafa verið viðloðandi plötusnúðamenn- inguna hérlendis í lengri tíma. „Eftir að liðsmenn breakbeat.is höfðu að mestu lagt upp laupana var fátt um viðburði þar sem var hægt að koma saman og hlusta á drum & bass. Við vildum bæta úr því. Fyrst um sinn hittumst við í heimapartíum og buðum vinum og kunningjum ásamt því að senda út beint á netinu. Á þeim tíma var lítið um skipulagða spilunartíma og hver sem vildi gat komið og tekið í spilarana. Meðal annars spiluðu plötusnúðar frá Skýjum Ofar á þeim kvöldum sem okkur þótti mikill heiður,“ segir Bjarni Ben. Núna erum við með föst klúbba- kvöld fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði sem haldin eru á Paloma þar sem alltaf er troðfullt út úr dyrum. Croax Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Brjálað fjör fram undir morgun Í kvöld verður slegið upp svakalegri dansveislu á skemmtistaðnum Bravó í Reykjavík þar sem plötusnúðahópurinn Hausar mun standa fyrir drum & bass klúbbakvöldi. Aðgangur er ókeypis. Fjörið á Bravó mun standa yfir til a.m.k. 4.30 í nótt. MYND/SIGURGEIR S. Meðlimir Hausa eiga allir langan og farsælan feril að baki. MYND/SIGURGEIR S. Plötusnúðahópurinn Hausar, sem heldur uppi fjörinu í alla nótt, inniheldur f.v. þá Croax, Bjarna Ben, Nightshock, Untitled og Junglizt. MYND/ERNIR Alltaf troðfullt Þegar búið var að reyna nógu mikið á nágrannana og áhorfið á streymið var miklu meira en búist var við ákváðu þeir að standa fyrir sínu fyrsta klúbbakvöldi sem var haldið á Faktorý sumarið 2012. „Það gekk vonum framar og næstu árin voru haldin fjöldamörg Hausa-klúbbakvöld á skemmti- stöðum borgarinnar. Núna erum við með föst klúbbakvöld fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði sem haldin eru á Paloma þar sem alltaf er troðfullt út úr dyrum ásamt öðrum kvöldum inn á milli. Gegnum tíðina höfum við einnig flutt inn nokkur stærstu nöfn drum & bass senunnar, meðal ann- ars Ivy Lab, The Upbeats, Emperor, Culture Shock, Synth Ethics, erb N dub og Chris.Su. Okkur hefur svo hlotnast sá heiður að spila á hinni heilögu þrenningu tónlistarhátíða á Íslandi, sem eru Iceland Air- waves, Sónar Reykjavík og Secret Solstice,“ bætir Croax við. Góðir gestir kíkt við Hausar hafa einnig verið með útvarpsþátt til fjölda ára á ýmsum útvarpsstöðvum við þó nokkrar vinsældir. „Þar hafa margir góðir gestir kíkt við, meðal annars Aggi Agzilla sem er goðsögn í íslenskri drum & bass menningu og Bala- tron. Auk þeirra hafa fjölmargir erlendir gestir heimsótt okkur, t.d. Bensley, Panacea, Evol Intent, John Rolodex og Sinistarr sem aðdáend- ur drum & bass ættu að kannast við,“ bætir Night shock við. Spennandi ár fram undan Árið 2019 verður viðburðaríkt hjá félögunum en utan þess að halda mánaðarleg fastakvöld á Paloma munu Hausar meðal annars spila á Sónar Reykjavík í lok apríl. „Við erum einnig í viðræðum við skipu- leggjendur nokkurra tónlistar- hátíða erlendis en getum því miður ekki sagt nánar frá því að svo stöddu. Við mælum eindregið með því að fólk fylgi okkur á samfélags- miðlum til að fá nýjustu fregnir. Einnig viljum við benda á að við höldum úti vikulegum mixum á tónlistarveitunni SoundCloud þar sem farið er yfir það nýjasta í drum & bass í bland við eldra efni,“ segir Junglizt að lokum. Dagskráin hefst kl. 22 í kvöld og stendur yfir langt fram á nótt. Nánari upplýsingar á Facebook (Hausar). BÍLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Mest lesna bílablað landsins kemur næst út þriðjudaginn 5. mars næstkomandi. Ritstjóri blaðsins er Finnur Thorlacius sem er bílaáhugamaður af lífi og sál. Umsjón auglýsinga: Atli Bergmann • atli@frettabladid.is • sími 512 5457 FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 8 -7 0 D 8 2 2 7 8 -6 F 9 C 2 2 7 8 -6 E 6 0 2 2 7 8 -6 D 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.