Fréttablaðið - 02.03.2019, Qupperneq 86
Ýmis verk úr smiðju StudioStudio síðustu misseri. Verk Rögnu Róbertsdóttur gerð skil í fallegu bókverki og bókarkápa skáldsögu Hallgríms Helgasonar þótti frumleg. MYNDIR/STUDIOSTUDIO
Halda hvort öðru á tánum
HönnunarMars er fram undan og verður haldinn í lok mars. Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Guðmunds-
dóttir hjá StudioStudio hönnuðu nýtt útlit hátíðarinnar. Þau hafa vakið mikla eftirtekt undanfarið fyrir verk sín.
Ar nar Frey r Guð-mundsson og Birna Guðmu nd sdót t i r hjá StudioStudio hafa hannað nýtt útlit fyrir Hönnun-
arMars í ár. Þau hafa vakið mikla
eftirtekt fyrir verk sín undan-
farið. Þau sérhæfa sig í bókahönn-
un, ímyndarvinnu, týpógrafíu,
umbroti og ýmsu ritstjórnarefni
og vinna þvert á geira, bæði fyrir
listamenn og fyrirtæki.
Arnar er grafískur hönnuður
frá Listaháskóla Íslands og kennir
þar sem stundakennari. Birna er
einnig grafískur hönnuður frá
Listaháskólanum og er einnig með
meistaragráðu í bókahönnun frá
Reading-háskóla í Bretlandi. Birna
er fagstjóri í grafískri hönnun í
hönnunar- og arkitektúrdeild
Listaháskóla Íslands. Þau starfa
saman í Gimli, fallegu turnhúsi
á Bernhöfts torfunni við Lækjar-
götu.
„Við höfum unnið saman í fimm
ár. Við kynntumst í gegnum fagið
og sameiginlega vini,“ segir Birna.
„Okkur finnst gott að vinna saman
því við höfum svipaða sýn,“ segir
hún.
„Við höfum misjafna styrkleika
og hífum hvort annað upp,“ segir
Arnar.
„Já, það mætti segja að við
höldum hvort öðru á tánum,“ segir
Birna.
Eitt af nýlegum verkum Arnars
og Birnu er bókarkápa, á Sextíu
kíló af sólskini, eftir Hallgrím
Helgason. Bókarkápan var af álits-
gjöfum Fréttablaðsins valin sú
besta í ár og vakti almenna eftir-
tekt fyrir vandað útlit sem hæfði
efni bókarinnar vel.
Fundur í Hrísey
Hugmyndavinnan hófst í Hrísey.
„Það sem virkaði vel í þessu ferli er
hvað samtalið við hann Hallgrím
var gott,“ segir Arnar. „Við vorum í
sumarfríi norður í landi þegar Hall-
grímur hafði samband við okkur
vegna bókarinnar og var þá sjálfur
á leiðinni í frí norður, við hittumst
í Hrísey og áttum þar samtal um
bókina og innihald hennar,“ segir
Arnar.
„ H a n n v a r
búinn að sanka
að sér mynd-
r æ n u m t i l -
vísunum sem
honum þótti
viðeigandi. Til
d æ m i s au g -
lýsing um f rá
þessum tíma,
gömlum eld-
spýtustokkum
og slíku,“ segir
Birna.
Verk þeirra
A r n a r s o g
Birnu eru fjöl-
breytt og ólík
i n n b y r ð i s
þót t ef lau st
meg i g reina
þráð. Veiga-
mikil bók um
verk Rög nu
Róbertsdóttur er þar á meðal.
„Það er allt öðruvísi verkefni
með erlendum útgefanda. Það var
stærra samtal í gangi, maður þurfti
að gera sér ferð á meginlandið.
Lengra en út í Hrísey,“ segir Birna
og hlær.
„En það var eins með hana. Við
áttum gott samtal við hana og
fengum aðgang að öllum hennar
verkum,“ segir Arnar. Birna tekur
undir og segir samtalið mikilvægt.
„Já, það er vænlegast til vinn-
ings. Í samtalinu finnur maður
líka hvort maður er rétti aðilinn
í verkið. Því þetta er alltaf per-
sónulegt og maður gefur sig allan
í þetta. Þegar maður er búinn að
skila af sér verki þá er stundum
allur vindur úr manni,“ segir Birna.
Jákvæð þróun
Þeim fannst áhugavert að takast á
við að hanna nýtt útlit fyrir Hönn-
unarMars. Í hönnuninni tóku þau
tillit til þess að hátíðin er bæði fyrir
fagfólk og áhugafólk um hönnun.
„ Þ e t t a e r
þannig verk-
efni að það er
eðlilegt að það
s é r ó t e r i n g
á þessu . Við
höldum samt í
ákveðna þræði
sem er búið að
leggja undan-
f a r i n 10 á r.
Þetta snýst ekki
end i leg a u m
að f inna upp
hjólið heldu r
byggja ofan á þá
þekkingu sem er
komin.
„Já , það er
mik ilvæg t að
fólk finni fyrir
því að þetta sé
hát íð sem er
alltaf í þróun.
Og það þarf að tala bæði til hönn-
uða og líka þeirra sem hafa áhuga
á hönnun, eru forvitnir og áhuga-
samir,“ segir Birna.
Þau eru sammála um að hönnun
hafi sífellt meira vægi í íslenskri
menningu.
„Það er mjög jákvæð þróun í
gangi. Fólk sér mikilvægið og sér-
stöðuna. Frá því að ég fór að velta
hönnun fyrir mér finnst mér lands-
lagið hafa breyst,“ segir Birna.
„Margir eru að gera virkilega
spennandi hluti,“ segir Arnar.
„Það er til dæmis mikið af sjálf-
sprottnum verkefnum og mikil
f lóra. Mjög fjölbreytt stemming,“
segir Birna.
Og hefur orðstírinn aukist? Út á
við?
„Þegar við erum að vinna erlend
verkefni líður manni stundum eins
og það sé verið að sækja vatnið yfir
lækinn. En kannski höfum við
eitthvað annað fram að færa sem
skiptir máli. Einhverja aðra sýn,“
segir Arnar.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
sýna
sjá
segja
spá
28.
29.
30.
31.03.
2019
Hönnunar
Mars Design
March
H
on
nu
na
rM
ar
s.
is
D
es
ig
nM
ar
ch
.i
s
Re
yk
ja
ví
k
Arnar Freyr og Birna hafa starfað saman í fimm ár. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
8
-4
4
6
8
2
2
7
8
-4
3
2
C
2
2
7
8
-4
1
F
0
2
2
7
8
-4
0
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K