Morgunblaðið - 13.11.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2018
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
K371 sófi
Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir
3ja sæta 2ja sæta og stólar
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Erum á
facebook
Veður víða um heim 12.11., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Akureyri 5 rigning
Nuuk -3 léttskýjað
Þórshöfn 6 rigning
Ósló 9 skýjað
Kaupmannahöfn 10 rigning
Stokkhólmur 9 alskýjað
Helsinki 5 rigning
Lúxemborg 15 léttskýjað
Brussel 10 léttskýjað
Dublin 10 léttskýjað
Glasgow 10 rigning
London 12 skúrir
París 11 alskýjað
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 12 súld
Berlín 13 heiðskírt
Vín 11 þoka
Moskva -4 heiðskírt
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 19 léttskýjað
Mallorca 20 heiðskírt
Róm 19 léttskýjað
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -14 skýjað
Montreal -1 alskýjað
New York 6 skýjað
Chicago 1 alskýjað
13. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:51 16:35
ÍSAFJÖRÐUR 10:14 16:21
SIGLUFJÖRÐUR 9:57 16:03
DJÚPIVOGUR 9:25 15:59
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á miðvikudag Austan 5-10 m/s og smáskúrir
sunnanlands, hiti 2 til 6 stig. Hægari vindur í öðrum
landshlutum, yfirleitt þurrt og hiti kringum frost-
mark.
Austan 3-10 m/s. Bjartviðri suðvestanlands, en dálítil rigning eða slydda um tíma í öðrum lands-
hlutum. Hiti 0 til 6 stig.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Ég stefni að því að láta hann
blása fyrir vorið,“ segir Gunnar
Gunnarsson, forstjóri Perlu norð-
ursins, í samtali við Morgunblaðið
og vísar í máli sínu til gervigos-
hversins Stróks sem finna má við
Perluna í Öskjuhlíð í Reykjavík.
Forsvarsmenn Perlu norðurs-
ins hafa haft mikinn áhuga á því
að koma goshvernum aftur í gang,
en hann hefur legið í dvala í sex
ár eða síðan Reykjavíkurborg lét
loka honum árið 2012. Var það
gert vegna mikils rekstrarkostn-
aðar.
Í frétt Morgunblaðsins frá því
í nóvember 2017 er greint frá vilja
fyrirtækisins til að koma gos-
hvernum aftur í gang á árinu
2018. Gunnar segir framkvæmdina
hins vegar flókna og því hafi hún
tafist.
„Vandinn er sá að við þurfum
sjóðandi heitt vatn til þess að geta
knúið þennan hver,“ segir hann,
en goshverinn, sem hannaður er af
vélaverkfræðingnum Ísleifi Jóns-
syni, er stæling á náttúrulegum
goshverum, Strokki og Geysi. Í
frétt Morgunblaðsins frá árinu
1997, þegar gervihverinn var fyrst
prófaður, kom meðal annars fram
að heita vatnið í Strók hafi komið
úr borholum við Suðurlandsbraut
og Laugaveg. Var það leitt um
dælustöðina við Bolholt og upp í
Öskjuhlíð, en yfirleitt var vatnið
120 til 130 stiga heitt og það tekið
óblandað inn á hverinn, því það
þarf að vera mjög heitt til að hann
virki sem skyldi.
„Við höfum mikinn hug á því
að láta hann blása aftur, en það
verður gert með einhvers konar
dælikerfum. Hann mun aldrei
blása aftur með sambærilegum
hætti og hann gerði því við höfum
bara ekki nógu heitt vatn,“ segir
Gunnar og bætir við að fram-
kvæmdin muni kosta talsvert.
„Það mun kosta milljónir að láta
hann virka aftur.“
Borholan 30 metra djúp
Árið 1997 samþykkti Reykja-
víkurborg tillögu að frágangi
manngerðs goshvers í Öskjuhlíð.
Boruð var 30 metra djúp hola og í
hana sett stálrör sem jarðhitavatn
rann í gegnum. Umhverfis hverinn
er steinlögð skál, en goshæðin var
um 10 til 15 metrar.
Reykjavíkurborg tók við
hvernum 2012 þegar Orkuveita
Reykjavíkur seldi Perluna og var
honum í kjölfarið lokað.
Strókur endurvakinn með dælum
Forstjóri Perlu norðursins vill koma goshvernum í Öskjuhlíð í gang fyrir vorið Hverinn hefur
legið í dvala frá árinu 2012 Mun kosta milljónir króna að endurvekja hverinn með nýjum dælum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Slökkt Manngerði hverinn Strókur hefur legið í dvala frá árinu 2012.
Listaverk Þorbjargar Pálsdóttur myndhöggvara, sem
ýmist gengur undir nafninu Dansleikur eða Hljóm-
sveitin við Perluna, vekur jafnan mikla athygli vegfar-
enda sem leið eiga um Perluna í Öskjuhlíð. Eru mynda-
vélar og farsímar dregin upp og smellt af, líkt og þessi
maður gerði í gær. Þorbjörg vann listaverkið árið 1970
en gaf Reykjavíkurborg það árið 1995. Fjórar tveggja
metra háar styttur sýna hljóðfæraleikara í sveiflu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hljómsveitin við Perluna dregur að
Bronsstytturnar í Öskjuhlíð eru vinsælt myndefni
Víglundur Þor-
steinsson, lögfræð-
ingur og fyrrverandi
forstjóri BM Vallá
hf., lést á líknardeild
Landspítalans í fyrri-
nótt. Hann var 75 ára
að aldri. Víglundur
var lengi forystumað-
ur í samtökum vinnu-
veitenda.
Víglundur var
fæddur í Reykjavík
19. september 1943.
Foreldrar hans voru
Þorsteinn Þor-
steinsson fisksali og
Ásdís Eyjólfsdóttir,
fulltrúi á Skattstofu Reykjavíkur.
Hann lauk lögfræðiprófi frá Há-
skóla Íslands vorið 1970. Var
fulltrúi hjá ríkissaksóknara þá um
sumarið og síðan framkvæmda-
stjóri fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík til hausts 1971.
Eftir það var hann fram-
kvæmdastjóri og síðar stjórnar-
formaður BM Vallá hf. til ársins
2010.
Víglundur var bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnar-
nesi í eitt kjörtímabil. Hann var
virkur í samtökum vinnuveitenda.
Var í stjórn Félags íslenskra iðn-
rekenda í þrettán ár,
árin 1978 til 1991,
þar af formaður fé-
lagsins í níu ár.
Hann var í stjórn
Verslunarráðs Ís-
lands, formaður
stjórnar Útflutnings-
miðstöðvar iðnaðar-
ins og í fram-
kvæmdastjórn
Vinnuveitenda-
sambands Íslands í
fjórtán ár, árin 1984
til 1998, þar af eitt
ár varaformaður. Þá
átti hann sæti í
stjórn Lífeyrissjóðs
verslunarmanna í mörg ár og í
stjórnum nokkurra atvinnufyrir-
tækja, meðal annars Íslandsbanka
og Eimskips. Hann var varafor-
maður stjórnar Eimskips síðustu
árin.
Eftirlifandi eiginkona Víglundar
er Kristín María Thorarensen,
skrifstofumaður. Fyrri kona hans
er Sigurveig Ingibjörg Jónsdóttir
fréttamaður. Synir Víglundar og
Sigurveigar eru Jón Þór, Þor-
steinn og Björn. Börn Kristínar,
stjúpbörn Víglundar, eru Axel Örn
Ársælsson og Ásdís María Thor-
arensen.
Andlát
Víglundur Þorsteinsson,
fv. forstjóri BM Vallá