Morgunblaðið - 13.11.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2018
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Reykjavíkurborg leggst gegn tillögu
Minjastofnunar um friðlýsingu Vík-
urgarðs, hins forna kirkjugarðs í
miðborg Reykjavíkur. Þetta kom
fram á fundi borgarráðs sl. fimmtu-
dag þar sem kynnt var svar borgar-
lögmanns við tillögunni.
Í umsögn borgarlögmanns kemur
fram að Minjastofnun færir þrjár
röksemdir fyrir tillögu sinni um frið-
lýsinguna. Í fyrsta lagi að sam-
kvæmt gildandi aðaluppdráttum sé
gert ráð fyrir að aðkoma slökkviliðs
að nýju hóteli verði innan lóðar-
marka Víkurgarðs. Í öðru lagi að
annar af tveimur aðalinngöngum
hótelsins snúi út í Víkurgarð sem
hafi það í för með sér að aðkomuleið
hótelgesta muni liggja um garðinn. Í
þriðja lagi að Reykjavíkurborg hafi
gefið út afnotaleyfi til framkvæmda-
aðila án heimildar Minjastofnunar.
Borgarlögmaður segist draga í
efa að tillaga Minjastofnunar um
friðlýsingu sé besta leiðin til að ná
fram því sameiginlega markmiði að
frágangur Víkurgarðs sé til sóma,
og einnig að hún sé nauðsynleg eða
byggð á nægilega traustum laga-
grunni.
Varðandi fyrsta atriðið sé nú
ákveðið að fundin verði ný aðkomu-
leið slökkviliðs innan lóðarmarka
hótelbyggingarinnar og gefi því um-
rætt atriði ekki tilefni til friðlýsing-
ar. Um annað atriðið sem Minja-
stofnun nefnir segist borgarlög-
maður ekki sjá hvaða rask eða
spilling á minjum fylgi innganginum
enda sé hann innan lóðarmarka hót-
elsins. Sú ráðstöfun að hafa einn af
inngöngum hótelsins frá Víkurgarði
hafi komið til sögu að kröfu Alþingis
sem vildi ekki að inngangur yrði frá
Kirkjustræti. Þá segir borgarlög-
maður að leyfið sem veitt hafi verið
framkvæmdaaðila til að nota hluta
Víkurgarðs sem athafnasvæði sé
tímabundið og feli ekki í sér jarð-
rask. Ennfremur segir borgarlög-
maður að friðlýsing sé viðurhluta-
mikið inngrip í þinglýst eignar-
réttindi borgarinnar sem takmarki
verulega afnot og umráð yfir þeim.
Borgin telji að hvorki séu til staðar
málefnaleg sjónarmið né lögmætur
grundvöllur til þess að heimilt sé að
friðlýsa Víkurgarð.
Bréf heiðursborgara kynnt
Á borgarráðsfundinum var einnig
kynnt bréf heiðursborgara Reykja-
víkur þar sem því er mótmælt að
reist verði hótel í Víkurgarði, „ein-
um elsta kirkjugarði og helgistað í
höfuðborginni,“ eins og komist er að
orði. Við umræðurnar létu fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins
bóka að lítil virðing hefði verið borin
fyrir hinum forna Víkurkirkjugarði í
miðborg Reykjavíkur í gegnum tíð-
ina. „Garðurinn var áður til prýði en
hefur horfið undir bílastæði, stein-
hellur, lagnir og söluvagna. Nú
liggja fyrir áform um friðlýsingu og
það ferli ber að virða. Mikilvægt er
að raska ekki garðinum meira en nú
er og stefna á að umgjörð Víkur-
kirkjugarðs verði með þeim hætti að
hæfi þessum merka og forna reit,“
segir í bókun þeirra.
Borgin leggst gegn
friðun Víkurgarðs
Borgarlögmaður hafnar rökum Minjastofnunar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Friðlýsing Það var í október sem Minjastofnun hóf undirbúning að friðun Víkurgarðs (Fógetagarðs).
Albert Kemp
Fáskrúðsfirði
Haldið var upp á 140 ára afmæli
kirkjunnar á Kolfreyjustað í Fá-
skrúðsfirði um helgina.
Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
sóknarprestur leiddi messuna en pró-
fastur Austurlandsumdæmis, sr.
Davíð Baldursson, hélt hátíðarræðu
þar sem hann fjallaði meðal annars
um þann vanda sem steðjar að ung-
mennum á Íslandi og hvað kirkjan
gæti látið gott af sér leiða í þeim mál-
um. Sagði hann að það væri nú svo, að
oftar en ekki hefði guðsorð hjálpað í
mörgum erfiðum málum hér á landi.
Varð Davíð tíðrætt um ræðu Geirs
H. Haarde, þáverandi forsætisráð-
herra, í hruninu þegar hann bað guð
að hjálpa Íslendingum í þeim voða
sem þá var framundan. Hafði hann
orð á því að þau orð hefðu verið túlk-
uð á annan veg.
Við athöfnina las Berglind Agnars-
dóttir m.a. upp samantekt Ingigerðar
Jónsdóttur um sögu presta staðarins
frá upphafi, en prestar hafa margir
setið staðinn mjög lengi. Kirkjunni
hefur verið sýndur sómi í gegnum tíð-
ina og einnig nú í seinni tíð. Er hún
nokkurskonar stofustáss sem vel er
farið með.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Vel með farin Kirkjan á Kolfreyjustað er 140 ára gömul um þessar mundir.
Haldið upp á 140
ára kirkjuafmæli
Vel farið með kirkjuna á Kolfreyjustað
Prestarnir Davíð Baldursson og
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir.
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
VATNSHELDIR
SKÓR
Lytos Cosmic Run er léttur
alhliða útivistarskór
Verð 22.995
Stærðir 36 - 47
Innsóli: Anatomico Ortholite
Sóli: Vibram Skyrunning Advanced
Þyngd: 361 gr (í stærð 42)
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Dömubuxur
Kr. 5.900
Str. 38-56 • Litur: Svartur
Fjöldi undirskrifta undir Ákall til
stjórnvalda vegna málefna sjúkra-
húss SÁÁ á Vogi var að nálgast 18
þúsunda markið í gærkvöldi. Í
undirskriftunum felst stuðningur
við þá ósk að stjórnvöld auki þegar
í stað framlög til sjúkrahússins á
Vogi um 200 milljónir kr. til að út-
rýma biðlista eftir áfengis- og
vímuefnameðferð.
Bent er á að fíknsjúkdómar eru
ein alvarlegasta heilbrigðisvá sem
samfélagið stendur frammi fyrir.
Enginn sjúkdómur leggi jafn margt
ungt fólk að velli. Fram kemur að
framlög til SÁÁ hafi verið skorin
niður. Að jafnaði séu 600 manns á
biðlista eftir meðferð á Vogi. Taka
þurfi við 8 einstaklingum á dag í
stað 6 til að útrýma þessum biðlista.
Undirskriftirnar eru á akall.is og
hófst átakið með tónleikum í Há-
skólabíói sl. fimmtudagskvöld.
Morgunblaðið/Hari
Ákall Bubbi var meðal þeirra listamanna
sem fram komu á tónleikum SÁÁ.
Nærri 18 þúsund
kalla stjórnvöld til
aðstoðar Vogi