Morgunblaðið - 13.11.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2018
Vörurnar frá tetesept fást á eftirfarandi stöðum: Akureyrarapótek, Austurbæjar apótek, Heilsuver, Íslandsapótek og Reykjanesapótek.
EKKI
láta haustið
ná þér
fundur í Súðavík um aðalskipulag
sveitarfélagsins til 2030 og mættu
30-40 manns á fundinn. Að sögn
Péturs sveitarstjóra hefur upp-
bygging við Langeyri verið rædd
ítrekað í sveitarfélaginu síðan 2014
og málið því vel kynnt íbúum í
Súðavíkurhrepppi.
Áhugi á Álftafjarðargöngum
„Flestir þætti Langeyrarverkefn-
isins liggja fyrir og á fundinum var
ýmislegt annað ofar í hugum fólks.
Meira var til dæmis rætt um hvar
heppilegt væri að hafa ganga-
munnann á væntanlegum Álfta-
fjarðargöngum. Í hugum manna er
ekki spurning hvort þau komi held-
ur hvar þau eigi að vera. Í þeim
efnum var einkum rætt um að fara
upp Sauradalinn upp af þorpinu
eða við Dvergastein þrjá kílómetra
fyrir utan þorpið,“ segir Pétur.
vegna kalkþörungaverksmiðjunnar
verði í krika Langeyrar, skammt
innan þorpsins við Álftafjörð. Þar
er fyrirhuguð vinnsla þörunga úr
Ísafjarðardjúpi á vegum Íslenska
kalkþörungafélagsins, sem vinnur
kalkþörunga á Bíldudal og áformar
einnig slíka vinnslu í Stykkishólmi.
Pétur segir að verkefnið sé stærsta
einstaka atvinnurþróunarverkefni á
norðanverðum Vestfjörðum, að lax-
eldi undanskildu, og mun skapa 40
bein og óbein störf samkvæmt
skýrslu KPMG um verkefnið.
Fjórir kostir voru til skoðunar og
greindi Vegagerðin valkostina og
kostnaðarmat með tilliti til hafnar-
gerðar. Í fundargerð bæjarstjórnar
Súðavíkurhrepps kemur fram að
samkvæmt könnun á kostum og
göllum staðsetninga sé krikinn við
Langeyri talinn hagkvæmastur.
Á laugardag var haldinn íbúa-
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Kostnaður við hafnarkant, landfyll-
ingu og grjótvarnargarð í Súðavík
svo svæðið verði tilbúið til að hefja
þar byggingu
kalkþörunga-
verksmiðju er
áætlaður hátt í
500 milljónir
króna. Að sögn
Péturs G. Mark-
an, sveitarstjóra
í Súðavíkur-
hreppi, má áætla
að 280 milljónir
færu í hafnar-
kant sem yrði styrkhæfur af hálfu
ríkisins. Það sem eftir stendur
kæmi í hlut sveitarfélagsins og seg-
ist Pétur reikna með að kostnaður
hreppsins gæti orðið 250-300 millj-
ónir króna.
Sterk fjárhagsleg staða
„Í svona stóru verkefni kemur
alltaf eitthvað upp á og því finnst
mér eðlilegt að miða við hærri töl-
una til að hafa borð fyrir báru,“
segir Pétur. „Þetta er stórt verk-
efni, sem hefur ákveðna breytingu í
för með sér á atvinnuháttum í
sveitarfélaginu, en myndi tryggja
stöðu þorpsins. Við tókum meðvit-
aða ákvörðun 2014 þegar glitti í
góðæri að safna fé og fara ekki í
framkvæmdir meðan unnið væri að
nýjum verkefnum. Það hefur leitt
til þess að fjárhagsleg staða okkar
er sterk.“
Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps
hefur mælt með að framkvæmdir
Morgunblaðið/Golli
Súðavík Mörg störf myndu skapast með starfsemi kalkþörungaverksmiðju á staðnum.
Ný verksmiðja breytir
atvinnuháttum í Súðavík
Undirbúningsframkvæmdir gætu kostað hálfan milljarð
Pétur G. Markan
Gert er ráð fyrir byggingu fjölnota
íþróttahúss við íþróttamiðstöðina í
Borgarnesi, samkvæmt drögum að
fjárhagsáætlun Borgarbyggðar sem
lögð var fyrir bæjarstjórn til fyrri
umræðu á fundi fyrir helgi. Gert er
ráð fyrir 450 milljóna króna fjárveit-
ingu í verkefnið á árunum 2021 til
2022. Mikið var rætt um þetta verk-
efni fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar og er sveitarstjórnarfólk
að bregðast við því. Engin ákvörðun
hefur þó verið tekin um þessa fram-
kvæmd og óvíst hvort húsið lítur
dagsins ljós á þessum árum.
Þrjú stór verkefni eru á dagskrá
sveitarfélagsins, áður en kemur að
fjölnota íþróttahúsi. Það eru viðbygg-
ing við grunnskólann í Borgarnesi og
lagfæringar á húsnæði skólans sem
nú er unnið að, bygging nýs leikskóla
á Kleppjárnsreykjum og lagfæringar
á húsi skólans og lagning ljósleiðara
um dreifbýli sveitarfélagsins.
Athuga með flýtingu
Viðbygging grunnskólans í Borg-
arnesi er fjárfrekasta verkefnið.
Framkvæmdir hófust á síðasta ári og
standa til ársins 2021. Gunnlaugur A.
Júlíusson sveitarstjóri segir að verið
sé að athuga möguleika á því að
stytta framkvæmdatímann til að
draga úr umróti og hafa samfellu í
verkinu. Gert er ráð fyrir byggingu
leikskólans Hnoðrabóls á Klepp-
járnsreykjum á næsta ári og ljúka
endurbótum á húsnæði skólans í
framhaldinu.
Borgarbyggð hefur sótt um styrk
úr verkefninu Ísland ljóstengt til að
leggja ljósleiðara í dreifbýlið á næstu
þremur árum. Þá hefur tilboði í lagn-
ingu ljósleiðarans verið tekið.
Lagt verður á hámarksútsvar á
næsta ári, eins og verið hefur. Hins
vegar verður álagningarhlutfall fast-
eignaskatts lækkað, bæði á íbúðar-
húsnæði og atvinnuhúsnæði.
helgi@mbl.is
Nýtt íþrótta-
hús á dagskrá
Miklar framkvæmdir í Borgarbyggð
Fjárfest í skólahúsnæði og ljósleiðara
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarnes Fjárhagsáætlun næsta
árs er til umræðu í bæjarstjórn.
Pólverjar búsettir á sunnanverðum
Vestfjörðum efndu til mikillar há-
tíðar í samkomuhúsinu á Patreks-
firði sl. sunnudag til að minnast
þjóðhátíðardags Póllands og að 100
ár eru liðin frá því að Pólverjar
fengu sjálfstæði.
Pólland varð sjálfstætt ríki í lok
fyrri heimsstyrjaldarinnar, raunar
á sjálfan friðardaginn 11. nóv-
ember 1918. Á samkomunni á Pat-
reksfirði var saga dagsins sögð í
stuttu máli og sungin ættjarðarlög
frá Póllandi.
Mætti fólk víðsvegar að af sunn-
anverðum Vestfjörðum og voru
Pólverjar ánægðir með hversu
margir Íslendingar tóku þátt í há-
tíðarhöldunum með Pólverjum sem
búsettir eru á svæðinu.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Þjóðhátíð Sungnir voru pólskir ættjarðarsöngvar í samkomuhúsinu.
Fögnuðu sjálfstæði