Morgunblaðið - 13.11.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2018
Viðskiptablaðið ræddi í síðustuviku við Drífu Snædal, nýjan
forseta Alþýðusambands Íslands.
Þar var meðal annars komið inn á
húsnæðismálin, sem Drífa telur
einn lykilþáttinn í
kjarasamningagerð
næstu mánaða.
Hún segir vanda-málið á hús-
næðismarkaði fyrst
og fremst felast í
framboðsskorti: „Þetta er rosalegt
vandamál sem við þurfum að leysa,
og sveitarfélögin bera mikla
ábyrgð, vegna skorts á lóðafram-
boði.“
Drífa segir vandann mjög brýn-an og að hugsa verði „í ein-
hvers konar bráðabirgðalausnum.
Þar getum við litið til nágranna-
landanna, þar sem bráðabirgða-
húsnæði – sem samt uppfyllir alla
gæðastaðla – hefur verið komið
upp á lóðum sem eru ekki endilega
ætlaðar sem íbúðalóðir til fram-
tíðar. Lóðir sem bíða deiliskipulags
og svo framvegis. Þetta á að vera
hægt að gera án þess að slá af gæð-
um húsnæðis“.
Þetta eru umhugsunarverð sjón-armið. Getur verið að svo sé
komið hér á landi að grípa þurfi til
örþrifaráða? Höfum við verið að
ganga í gegnum náttúruhamfarir?
Lagði eldgos heilt byggðarlag í
eyði?
Nei, ekkert slíkt gerðist. Enlandsmenn hafa búið við það
árum saman að í höfuðborginni hef-
ur þeirri stefnu verið fylgt af trúar-
hita að byggja á „þéttingarsvæð-
um“ en ekki þar sem ódýrt og
fljótlegt er að byggja.
Það er ástæðan fyrir þessum al-varlega framboðsvanda.
Drífa Snædal
Náttúruhamfarir
af manna völdum
STAKSTEINAR
Sérstök dómnefnd hefur valið stól-
inn Kollhrif sem fulltrúa Íslands á
sýningu í norræna skálanum á lofts-
lagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna,
sem fer fram í Katowice í Póllandi í
desember.
Í byrjun september var hleypt af
stokkunum samkeppni með áherslu
á hönnun sjálfbærra stóla. Óskað
var eftir tillögum frá öllum löndum á
Norðurlöndunum en hægt var að
senda inn tillögu að nýrri hönnun
eða hönnun sem er nú þegar til. Tíu
íslenskir stólar voru upphaflega
valdir í fyrri hluta keppninnar og
hefur dómnefnd nú valið einn stól
frá hverju landi á Norðurlöndum
sem sigurvegara og fulltrúa sinnar
þjóðar á sýningunni.
Endurunnin sprittkerti
Sölvi Kristjánsson hannaði Koll-
hrif fyrir Portland. Úr umsögn dóm-
nefndar kemur meðal annars fram
að kollurinn sé í senn bæði nýsköpun
og umhverfisvænn og sé gott dæmi
um sjálfbæra hönnun.
Kollurinn er úr 14.400 endur-
unnum ál sprittkertum og korki sem
eru bæði mjög umhverfisvæn efni.
Fram kemur í tilkynningu frá Hönn-
unarmiðstöð Íslands að hönnun
kollsins snúi ekki aðeins að útliti
hans heldur taki hún einnig mið af
umhverfisáhrifum, endurvinnslu-
möguleikum og margnota gildi hans.
Kollurinn Kollhrif fer á sýningu SÞ
Búinn til úr 14.400 endurunnum sprittkertum úr áli og korki
Kollhrif Stóllinn er úr áli og korki.
Ekki er lagt til að veiðar verði
stundaðar á úthafskarfa næstu þrjú
árin, samkvæmt ráðgjöf Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins, ICES. Ekki er
samkomulag um veiðar á karfa á
Reykjaneshrygg eða í Grænlands-
hafi.
Um neðri stofn úthafskarfa segir
að hrygningarstofninn hafi minnkað
verulega frá því að veiðar úr stofn-
inum hófust í byrjun tíunda áratug-
ar síðustu aldar. Frá sama tíma hafi
veiðidánartala hækkað mikið og hafi
verið mjög há allt frá aldarmótum.
Leiðangrar til að meta stærð
stofnsins hafa verið farnir annað
hvert ár frá árinu 1999, síðast í ár.
Niðurstöður þessara leiðangra sýna
að stofninn hefur minnkað jafnt og
þétt allt frá því um 1995 og er nú
langt undir varúðarmörkum. Jafn-
framt sýna framreikningar að þótt
engar veiðar verði stundaðar næstu
þrjú árin muni stofninn áfram verða
undir varúðarmörkum í lok þess
tímabils, segir á heimasíðu Haf-
rannsóknastofnunar.
Þá hefur ICES á undanförnum
árum lagt til að engar veiðar yrðu
stundaðar úr efri stofni úthafskarfa,
veiðist á minna en 400 metra dýpi,
þar sem ástand þess stofns versnaði
mikið undir lok síðustu aldar og hef-
ur stofninn mælst mjög lítill í leið-
öngrum undanfarna tvo áratugi. Í
samræmi við varúðarsjónarmið ráð-
leggur ICES nú að ekki skuli
stunda beinar veiðar úr efri stofni
úthafskarfa árin 2019, 2020 og 2021.
Afli umtalsvert
meiri en ráðgjöf
Í upplýsingum með ráðgjöf næsta
árs segir meðal annars: ICES lagði
til að engar veiðar yrðu stundaðar
úr neðri stofni úthafskarfa árin 2017
og 2018 vegna mjög neikvæðrar
þróunar á stofnstærð á undanförn-
um árum. Norðaustur-Atlantshafs-
fiskveiðinefndin (NEAFC), sem fer
með stjórnun veiðanna, samþykkti
að afli úr neðri stofni úthafskarfa
yrði 7.500 tonn fyrir árið 2017 og
6.500 tonn árið 2018.
Rússar mótmæltu samkomulag-
inu og settu sér einhliða aflamark
sem nær til beggja stofna úthafs-
karfa. Nær aflamarkið bæði til efri
og neðri stofns úthafskarfa þar sem
þeir telja að um einn stofn sé að
ræða. Afli hefur því verið umtals-
vert meiri en ráðgjöf. aij@mbl.is
Engar veiðar
á úthafskarfa
næstu þrjú ár
Meira til skiptanna
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/